03.05.1977
Efri deild: 87. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4255 í B-deild Alþingistíðinda. (3310)
129. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Frsm. minni hl. (Stefán Jónsson):
Herra forseti. Svo fór sem mig uggði, að á því yrði þörf að við þm. Alþb. ræddum þetta mál öllu nánar en við þó þegar höfðum gert.
Ekki er mér alveg ljóst hver muni hafa sagt hæstv. iðnrh. það, að alþb.-menn hefðu safnað undirskriftum uppi í Kjós undir þau einörðu mótmæli sem komið var á framfæri við hv. Alþ. nú fyrir skemmstu gegn járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga fyrirhuguðu. Hafi einhver sagt honum þetta, þá ætla ég að þar muni honum hafa verið sagt mála ósannast, vegna þess að eftir því sem ég hef komist næst munu það vera allkunnir fulltrúar Sjálfstfl. þar í hreppi sem mótmælunum hafa fyrst og fremst safnað.
Hæstv. ráðh. lagði enn á það ákaflega brýna áherslu, sem fyrr hafði komið fram, að ríkisstj. teldi nú ekki lengur gefast neitt tóm til þess að láta fara fram lýðræðislega og eðlilega könnun á afstöðu fólksins í hinum næstu byggðum við Grundartanga, til þess væri nú ekki tími lengur vegna þess, hversu málið væri komið langt áleiðis. Sannleikurinn er náttúrlega sá, að Grundartangaverksmiðjan er bókstaflega ekki komin neitt lengra áleiðis heldur en hún var fyrir tveimur árum, á þeim vordögum þegar við afgreiddum frv. hið fyrra sinn burt úr þessari d. um málmblendiverksmiðju í Hvalfirði í félagi við Union Carbide. Þá var byrjað á framkvæmdum efra, var hafið þar jarðrask, áður en frv. um málmblendiverksmiðjuna í samvinnu við Union Carbide hafði verið afgreitt úr iðnn. þessarar hv. d. Þá var hafið þar jarðrask áður. Síðan eru liðin tvö ár. Hefði hæstv. ráðh. talið tímabært fyrir tveimur árum og nógu snemmt fyrir tveimur árum að íbúar Borgarfjarðarsýslu, Akraness og hreppanna tveggja austan Hvalfjarðar bæru fram mótmæli, þá er það nógu snemmt enn, því að síðan hefur ekkert gerst í málinu annað en það að Union Carbide, ameríski auðhringurinn, hljópst burt úr kompaníinu við Íslenska járnblendifélagið og borgaði 850 millj. fyrir höfuðlausnina.
Ástæðuna fyrir brottför Union Carbide úr járnblendifélaginu taldi hæstv. ráðh. fyrst og fremst hafa verið þá, að forstöðumenn þessa stóra auðhrings, sem mig minnir endilega að hæstv. ráðh. hafi sagt okkur á þeim tíma að væri hinn níundi stærsti í heimi, — ástæðuna taldi hann fyrst og fremst hafa verið þá, að forustumenn þessa auðhrings hefðu ekki þóst sjá fram á að mikið mundu batna arðsemishorfur í málmblendiiðnaðinum frá því sem þær voru verstar, frá því sem þær voru raunar á því ári sem tekið var til viðmiðunar í útreikningum Þjóðhagsstofnunar að beiðni Sigurðar Magnússonar, fulltrúa Alþb. í iðnn. Nd., — þeim útreikningum sem hæstv. ráðh. bar brigður á áðan og taldi óeðlilegri en aðra útreikninga Þjóðhagsstofnunar, beinlínis vegna þess að þetta eru einu útreikningarnir sem ekki voru gerðir samkv. forsendum sem upp voru gefnar af hálfu stjórnar Járnblendifélagsins og af hálfu hans sjálfs. Hann taldi að hér væri reiknað með verði á málmblendi, á kísiljárni, í einhverjum þeim mánuði þegar verðið hefði verið lægst. Í skjalinu frá Þjóðhagsstofnun, sem þessir útreikningar birtast á, stendur til skýringar neðanmáls: Tekjuverð — þ. e. a. s. það sem reiknað er með — 2388 norskar kr. pr. tonn, sem hér er tekið sem dæmi, er skilaverð til norskra kísiljárnframleiðenda á árinu 1976. Það, sem skjal Þjóðhagsstofnunar upplýsir okkur um, er einfaldlega þetta, að hefði kísiljárnsverksmiðjan á Grundartanga verið rekin árið 1976 hefði tap af rekstri hennar, þessa fyrirtækis sem hæstv. ráðh. hefur oftar en einu sinni kallað nýja stoð undir efnahag íslendinga, numið röskum 800 millj. ísl. kr.
En hvað þá um tekjur okkar af raforkusölu til fyrirtækisins, raforkunni frá Sigöldu, sem hæstv. ráðh. hefur með trassaskap sínum í sambandi við línulagnir og samtengingar á línukerfum komið svo fyrir að ekki er sýnilegur markaður fyrir á næstu tveimur árum nema eitthvað róttækt sé gert í málinu, — hvað þá um hagnaðinn af raforkusölunni frá Sigöldu til verksmiðjunnar á þessu sama ári? Ef verksmiðjan hefði verið rekin, þá hefði hún keypt raforku frá Sigöldu fyrir 600 millj. kr. Þetta þýðir það, að enda þótt rafmagnið hefði verið gefið til verksmiðjunnar árið 1976, þá hefði samt orðið yfir 200 millj. kr. tap á henni.
Ástæðan fyrir því, segir hæstv. ráðh., að Union Carbide gekk úr félagsskapnum, var sú, að sérfræðingar þessa stóra fyrirtækis, sem sennilega fylgjast ekki verr með markaðshorfunum í heiminum fyrir stál heldur en forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar og forstjóri Járnblendifélagsins, þeir töldu að allar líkur bentu til þess að arðsemin af kísiljárnframleiðslu, af málmblendiframleiðslu og af stáli mundi ekki aukast á næstu árum, að horfurnar mundu frekar halda áfram að versna en batna, og þess vegna töldu forstöðumenn þessa níunda stærsta auðhrings í heimi, sem hæstv. iðnrh. átti fyrir tveimur árum ekki nógu sterk orð til þess að lýsa hversu vel væri rekinn og hyggilega og af mikilli framsýni og miklu trausti, — þess vegna töldu forustumenn þessa stóra fyrirtækis það fundið fé að fá að borga sig út úr félagsskapnum með upphæð sem nam meira en eins árs tapi verksmiðjunnar, yfir 800 millj. kr. Þeir þóttust sleppa vel. Svo má hver sem vill trúa því að mannaskipti í stjórn þessa auðhrings hafi valdið einhverju um það að fyrirtækið endurskoðaði afstöðu sína — eða kynslóðabil, eins og einn af stjórnarmönnum járnblendiverksmiðjunnar, hv. þm. Eggert G. Þorsteinsson, orðaði það þegar hann var að reyna að skýra þetta brotthlaup Union Carbide.
Nei, það var hreint og klárt vegna þess að forstöðumenn Union Carbide þóttust sjá fram á stórfellt tap af rekstri verksmiðjunnar. Þá kemur spurningin: Hvernig í ósköpunum stendur á því, að Elkem-Spigerverket gengur inn í þennan félagsskap? Af því að vitnað hefur verið í Norræna fjárfestingarbankann til þess að votta að þetta hljóti að vera arðbært fyrirtæki, sem hér er verið að koma á laggirnar, skal aðeins minnst á það, að bankastjóri þessa Fjárfestingarbanka sagði í útvarps- og sjónvarpsviðtölum hér á landi, þegar hann var spurður að því, hvers vegna Fjárfestingarbankinn teldi að járnblendiverksmiðja í Hvalfirði yrði arðbært fyrirtæki þrátt fyrir það þótt flutningar á hráefni til verksmiðjunnar og unninni vöru frá verksmiðjunni hlytu að vera miklu dýrari heldur en frá verksmiðjum á meginlandi Evrópu, þá sagði bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans einfaldlega: Ástæðan er sú, að hér fáum við raforku til framleiðslunnar 50% ódýrari en hún fæst í Noregi, þar sem hún er annars ódýrust í heimi, 75% ódýrari en hún fæst í Bandaríkjunum. — Hvernig í ósköpunum stendur svo á því að íslenskir forráðamenn vilja gera „bisness“ á borð við þennan? Ástæðan er sú, að hæstv. iðnrh. ber naumlega af sér þær sakir, að hann hafi gengið slælega fram í því að dreifa raforku um landið okkar með lagningu á nýjum línum og með því að treysta dreifikerfið, lét það hjá líða í tvö ár að hefjast handa um línulagnirnar. Hefði verið hafist handa vorið 1975 að leggja nauðsynlegar línur til Snæfellsness og á Vestfirði, þá hefðu þær línur verið komnar í gagnið núna og Vestfirðingafjórðungur, Snæfellsnes, Dalir og vesturhluti Húnavatnssýslna hefðu getað tekið við 200 gwst. af raforkunni frá Sigöldu og kaupendurnir á þeim markaði hefðu greitt fyrir þessar 200 gwst. slíkt verð, að það hefði samsvarað því verði sem nú er samið um að járnblendiverksmiðjan greiði fyrir 448 gwst.
Hæstv. ráðh. kom áðan að því í ræðu sinni, í þriðja sinn raunar, hvers vegna, svo sem ég drap á fyrr, hann teldi að ekki væri hægt að veita landsetum í landnámi Ingólfs Arnarsonar og Skallagríms Kveldúlfssonar sömu lýðréttindi og hann ætlar landsetum í landnámi Helga magra. Það er tíminn, sagði hæstv. ráðh. Það væri ekki tími til þess að láta fara fram leynilega atkvgr. í hreppunum fjórum sunnan Skarðsheiðar. Síðan spurði hann: En hvernig stendur á því, að þm. Alþb., þeir Ragnar Arnalds og Stefán Jónsson, ætla að svipta kosningarrétti í þessu tilfelli akranesbúa, aðra sýslubúa í Borgarfjarðarsýslu og síðan þá kjósverja og kjalnesinga? Því er náttúrlega fyrst til að svara, að það voru íbúar þessara fjögurra hreppa sunnan Skarðsheiðar, sem fólu þm. sínum og þá fyrst og fremst stjórnarþm. sínum að koma á framfæri við ríkisstj. þeirri ósk sinni, að þar yrði látin fram fara leynileg atkvgr. svo í ljós mætti koma afstaða fólksins til hinnar fyrirhuguðu verksmiðju. Það voru íbúar þessara hreppa sem héldu fund með þm. sínum, og þó voru það þm. sem til fundarins efndu að ósk þessara kjósenda, þar sem samþykkt var einróma ályktun um að beina þeirri ósk til ríkisstj. að afgreiðslu þessa máls yrði nú frestað á þingi og ríkisstj. léti síðan fram fara leynilega atkvgr. í þessum byggðarlögum, svo að í ljós mætti koma á óyggjandi hátt hver væri afstaða fólksins til þessarar verksmiðju, hvort fólkið vildi hana eða ekki. Því var nú það, að með skírskotun til þessarar samþyktar lögðum við hv. þm. Ragnar Arnalds og ég fram till. um ákvæði til bráðabirgða á þá lund, að lög þau, sem hér er um fjallað, skyldu eigi taka gildi fyrr en þessi leynilega atkvgr., sem svo þinglega hefur verið óskað eftir, hefði farið fram, og kæmi í ljós, svo sem ég er alveg um viss að koma mundi í ljós, að íbúar þessara hreppa vildu ekki verksmiðjuna, þá yrðu þessi lög ekki látin taka gildi.
Af því að hæstv. ráðh. orðaði það nú svo af skarpskyggni sinni og góðvild, að við hv. þm. Ragnar Arnalds vildum svipta þá akurnesinga og aðra borgfirðinga ásamt kjósverjum og kjalnesingum atkvæðisrétt í þessu máli, sem er náttúrlega alls ekki satt, þá leyfum við okkur nú að leggja fram till., skriflega till., svo hljóðandi, það er brtt. við frv. til 1. um járnblendiverksmiðju í Hvalfirði, borin fram af Ragnari Arnalds og Stefáni Jónssyni:
„Aftan við frv. bætist ákvæði til bráðabirgða, svo hljóðandi:
„Áður en lög þessi koma til framkvæmda skal íbúum Akraness, Borgarfjarðarsýslu og Kjósar-og Kjalarneshreppa í Kjósarsýslu gefinn kostur á að taka afstöðu til byggingar járnblendiverksmiðjunnar í Hvalfirði. Þátttaka í atkvgr. er bundin við þá, sem kosningarrétt hafa til Alþingis. Verði niðurstaðan sú, að meiri hl. þeirra, sem taka þátt í atkvgr., hafni byggingu verksmiðjunnar koma lög þessi ekki til framkvæmda.“
Þessa skriflegu brtt. leyfi ég mér hér með að afhenda forseta.
Ég ítreka svo það sem ég leyfði mér að kalla fram í fyrir hæstv. ráðh. og hann hlýddi raunar ljúflega á, að ég gerði við umr. utan dagskrár nú skömmu eftir kl. 21.00 í kvöld í d. grein fyrir þeirri skoðun minni, að ég teldi eðlilegt og æskilegt að íbúar Akraness og Borgarfjarðarsýslu fengju að taka þátt í þessari atkvgr., samtímis því sem ég lagði mjög þunga áherslu á gildi undirskriftanna sem fram fóru upp í Kjós, þar sem yfir 80% af kosningabærum mönnum í Kjósarhreppi lýstu yfir eindreginni andstæðu sinni gegn verksmiðjunni.
Hæstv. ráðh. frábað sér af mikilli einurð alla prédikun um mengunarhættu frá þessari verksmiðju í sömu andránni og hann gat um, að vísu ákaflega lauslega, það hlutverk sem Náttúruverndarráði hefði frá upphafi verið ætlað í sambandi við aðgát um mengunarhættu frá verksmiðju þessari. Mér er það í fersku minni, hversu fast hæstv. ráðh. hvað að orði þegar mál þetta var til umr. hér hið fyrra sinnið og samstarfsaðilinn var hið stóra og göfuga fyrirtæki, ameríska, alþjóðlegi auðhringurinn Union Carbide, um einlægan áhuga þessa fyrirhugaða samstarfsaðila á hollustuháttum í verksmiðjum sínum og hversu mikið þetta fyrirtæki legði af mörkum til þess að koma í veg fyrir mengun frá verksmiðjum sínum. Að vísu lágu þá fyrir skjöl upp á það, að í a. m. k. sumum málmblendiverksmiðjum Union Carbide þætti skorta nokkuð á hreinlætið. Lýsingar, sem lesnar voru upp úr tímaritum amerískra náttúruverndarsamtaka, bentu til hins gagnstæða. Þær nálguðust næstum því lýsingu landlæknis, Ólafs Ólafssonar, sem hann gaf okkur á málmblendiverksmiðjunum í samtali við okkur í iðnn. Ed. eftir að hafa litið lítillega á þessar verksmiðjur, þ. á m. málmblendiverksmiðjur Elkem-Spigerverket í Noregi, en hann sagði: „Ógeðslegri, skítugri og hryllilegri vinnustaði getur vart á jarðríki.“
En við skulum aðeins víkja að því, hvernig hugað hefur verið að mengunarhliðinni sem snýr að verksmiðju þessari. Vil ég þá lesa fyrir hv. þm. bréf frá Náttúruverndarráði sem afhent var iðnn. Ed. Alþ. er hún fjallaði um málið núna á dögunum. Bréfið er skrifað 29. apríl. Það er undirritað af Eysteini Jónssyni, formanni Náttúruverndarráðs, og Árna Reynissyni, framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs. Bréfið hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Í framhaldi af umr. í iðnn. Ed. Alþ. vill Náttúruverndarráð ítreka það álit sitt um skilyrði í starfsleyfi til Íslenska járnblendifélagsins, sem áður er tekið fram í bréfum, dags. 8. 7. 1975, 22. 10. 1976 og 26. 11. 1976, til Heilbrigðiseftirlits ríkisins er hafa verið afhent Alþ. vegna þessa máls og fylgja hér með í ljósriti. Ráðið“ — þ. e. a. s. Náttúruverndarráðið — „hefur kynnt sér þá kafla í starfsleyfi því sem heilbrrh. hefur gefið út til Járnblendifélagsins er snerta svið ráðsins“ — þ. e. a. s. mengunarmálin — „og borið þau saman við tilsvarandi kafla í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins til heilbrrh. vegna umsóknar félagsins. Ráðið telur að vikið hafi verið frá þeirri stefnu sem mótast hafði í samstarfi þess“ — þ. e. a. s. Náttúruverndarráðs — „og Heilbrigðiseftirlits ríkisins í veigamiklum atriðum. Telur ráðið að breyta þurfi leyfinu sem hér segir:
l. Grein 2.5 um bilanir á hreinsibúnaði er að mati Náttúruverndarráðs óviðunandi og mun í reynd óframkvæmanlegt að koma við stöðvun rekstrar þótt verulega beri út af með hreinsun útblásturs. Virðist fyrirtækið“ — þ. e. a. s. Járnblendifélagið — „geta haldið áfram starfsemi um langan tíma, þótt hreinsitækin séu óvirk, og borið fyrir sig þær takmarkanir sem settar eru um beitingu lokunar. Ráðið telur augljóst að hér séu fyrirtækinu sett mun rýmri starfsskilyrði en gilda í Noregi, þrátt fyrir eindregnar till. ráðsins og Heilbrigðiseftirlits ríkisins um að þau yrðu mun þrengri hérlendis. Náttúruverndarráð vísar til álitsgerða sinna í meðfylgjandi bréfum, en leggur til að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um gr. 2.5 verði teknar upp í starfsleyfi.“
Og vel að merkja, þetta bréf semur Náttúruverndarráð og skilar til iðnn. Ed. 29. apríl, eftir að starfsleyfið, sem hér um ræðir, hefur verið gefið út. Náttúruverndarráð óskar eftir því, að hv. Alþ. geri breytingar, geri kröfur um breytingar, setji skilyrði um breytingar á starfsleyfinu. En þetta er aðeins fyrsta aths. sem Náttúruverndarráð gerir við starfsleyfið sem samið var og sniðið, svo sem fyrr hefur komið hér fram í d., að fyrirmælum þeirra Elkem-manna, m. ö. o. hluthafanna í málmblendifélaginu.
Annað atriði í bréfi Náttúruverndarráðs: „Náttúruverndarráð telur brýnt, að meðferð og ráðstöfun úrgangs verði háð samþykki ráðsins og Heilbrigðiseftirlits ríkisins, og leggur því til að gr. 2.7 í heild verði breytt í það horf sem Heilbrigðiseftirlit ríkisins leggur til.“
Hér bar sem sagt á milli. Í starfsleyfinu er reiknað með öðru fyrirkomulagi á meðferð og ráðstöfun úrgangs heldur en lagt er til í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins og till. Náttúruverndarráðs.
Þriðja atriði: „Náttúruverndarráð telur óviðunandi að felld séu niður ákvæði í gr. 2.17 í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um skyldur fyrirtækisins til að láta framkvæma rannsóknir ef líkur benda til skaðlegra umhverfisáhrifa af rekstrinum. Sama má segja um niðurfellingu ákvæða um efnagreiningar á hráefnum og úrgangi sem felldar eru niður úr gr. 2.7, og leggur ráðið til að þau verði tekin upp í starfsleyfið.“
Fjórða aths.: „Náttúruverndarráð leggur til að farið verði að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um ákvörðun mengunarstaðla um brennisteinsinnihald kox og kola, sbr. gr. 2.10.“
Frá því skal greint til skýringar og það rifjað upp, að Heilbrigðiseftirlit ríkisins lagði til að hámark brennisteinsinnihalds í kolum og koxi, sem verksmiðja þessi mun brenna, en það verður um 65 þús. tonn á ári, yrði 1.5%, en í starfsleyfinu, sem gefið var út að geðþótta hluthafa, sem við skulum víkja að svolítið nánar, — hámarkið, sem þar var sett, var 2%, sem munar því, að þessi hjartfólgna verksmiðja, sem fyrirhuguð er á Grundartanga, fær að blása 500 tonnum af brennisteinssýrlingi út í loftið umfram það sem lagt er til í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
Fimmta aths. Náttúruverndarráðs: „Náttúruverndarráð telur nauðsynlegt, að áætlun um viðhald á hreinsibúnaði og aðgerðir í bilanatilfellum séu háðar samþykki Heilbrigðiseftirlits ríkisins, og leggur til að gr. 23 í till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins verði tekin upp í leyfið óbreytt.“
Sjötta aths. Náttúruverndarráðs: „Þá telur Náttúruverndarráð skaða að þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um eftirtalin atriði, og leggur til að þau verði endurskoðuð.“ Og þar eru taldar til fimm greinar sem felldar voru niður úr till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um starfsleyfi. Þær voru felldar niður, ekki inn á þær komið í starfsleyfinu sem hæstv. ríkisstj. lét lögfræðing í heilbrrn. semja í stað till. sem sérfræðingar heilbrigðiseftirlits ríkisins unnu að því að semja í fjóra mánuði og lögðu, eins og þeir sjálfir orðuðu það, nótt við nýtan dag. Þarna er um að ræða gr. 11 um starfsleyfi fyrir tvo ofna í stað eins, gr. 1.2 og 2.16 um mengunarrannsóknir, gr. 2.2 um afkastagetu hreinsibúnaðar, gr. 2.4 um aðild Heilbrigðiseftirlits ríkisins að mælingum á hæfni hreinsibúnaðar og gr. 26 um hæð reykháfa.
Sjöunda aths. Náttúruverndarráðs er svo hljóðandi: „Náttúruverndarráð álítur að ákvæði starfsleyfisins um flutning meðferð og geymslu hráefnis. sbr. lið 29 sé ófullnægjandi, og leggur til að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins um þetta atriði verði fylgt.“
Og síðan segir: „Náttúruverndarráð lýsir óánægju sinni yfir því að hafa ekki fengið tækifæri til að gefa umsögn um starfsleyfisdrög rn. áður en frá því var gengið, sérstaklega með hliðsjón af þeim umfangsmiklu breytingum sem orðið hafa frá till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins.
Að lokum leggur Náttúruverndarráð áherslu á að það telur áðurnefndar breytingar á starfsleyfinu til járnblendiverksmiðju nauðsynlegar til að viðunandi tökum verði náð á þeim þætti mengunarvarna og umhverfisverndar almennt sem eru á starfssviði þess.“
Vegna þess m. a., hversu oft og dyggilega hefur verið vitnað í afstöðu Heilbrigðiseftirlitsins til starfsleyfisins, vegna svardaga þeirra alþfl.-manna um það, að í einu og öllu hafi þeir mótað afstöðu sína til málmblendiverksmiðjunnar eftir því, hvort Heilbrigðiseftirlit ríkisins teldi rétt staðið að eftirliti með heilsugæslu og mengunarmálum, og að lesnum þessum aths. í bréfi Náttúruverndarráðs, undirrituðu af Eysteini Jónssyni og Árna Reynissyni, ætla ég að lesa hérna fyrir ykkur niðurlagið á aths. Heilbrigðiseftirlits ríkisins við starfsleyfið, en það er svofellt:
„Kröfur Heilbrigðiseftirlits ríkisins um fullkomnustu mengunarvarnir standa óhaggaðar.“ Ég veit ekki hvort hv. þm. þurfa á því að halda að ég flytji öðru sinni þessa upptalningu á breytingunum sem Náttúruverndarráð gerir grein fyrir. Ef ég hefði rökstuddan grun um það, jafnrökstuddan og ég hef um skaðsemi þessarar verksmiðju, að ég gæti komið sannindum þessa máls inn í höfuðið á hv. þm. Steingrími Hermannssyni með því að lesa honum þessar staðreyndir aftur, þá mundi ég gera það í annað, þriðja og fjórða sinn. En hjarnaskál hans virðist gerð úr þess háttar efnablöndu, að staðreyndir sem lúta að endurteknum skyssum hans sjálfs virðast hrökkva af henni.
Ég ætla svo öðru sinni í þessari hv. d. að vitna í samninginn við Elkem-Spigerverket sem undirritaður hefur verið og fylgir þessu frv. sem fskj. Ég ætla að vitna í 9. gr. um umhverfis- og öryggismál, 4. efnisgr. þeirrar gr., þar sem segir frá því raunverulega með hvaða hætti stjórn járnblendiverksmiðjunnar hefur komið því fram að till. Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Náttúruverndarráðs hafa verið sniðgengnar með þeim óskaplega hætti sem raun ber vitni. 4. efnisgr. hljóðar svona:
„Í samræmi við ákvæði þessarar gr.“ — þ. e. a. s. um umhverfis- og öryggismál — „hefur Járnblendifélagið sótt um starfsleyfi frá heilbr.- og trmrn. Járnblendifélagið skal leitast við að afla þess leyfis með skilmálum, sem hluthafarnir geta fallist á, svo fljótt sem unnt er.“
Sem sagt, íslenska ríkið, sem er eignaraðili að Járnblendifélaginu að 55%, undirritar samning við Elkem-Spigerverket upp á það, að félagið skuli leitast við að afla þess leyfis, þ. e. a. s. leyfisins sem hér er um fjallað, með skilmálum, sem hluthafarnir geti fallist á, svo fljótt sem unnt er.
Í framsöguræðu minni með nál. minni hl. iðnn. endursagði ég frásögn forstöðumanns Heilbrigðiseftirlitsins af því, með hvaða hætti forstjóri Járnblendifélagsins vék sér rösklega í það hvað Heilbrigðiseftirlitið snerti að afla þessa leyfis með skilmálum sem hluthafarnir gátu fallist á. Það tók að vísu fljótt af sú atrenna, vegna þess að starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins báðu forstjórann, eins og forstöðumaðurinn komst að orði, að hætta þessum tilraunum, svo að hann sneri sér náttúrlega annað. En það er ljóst að þetta samningsákvæði hefur Járnblendifélagið uppfyllt vasklega.
Hvers vegna í ósköpunum hæstv. iðnrh. og ráðunautar hans halda áfram með órofa þrákelkni að reyna að koma upp verksmiðju þessari á Grundartanga, þrátt fyrir þá mjög svo vafasömu sæmd og ég held áreiðanlega litla ánægju, heldur mikið kíf og skömm sem þessir aðilar hafa haft af málinu fram til þessa, — hví þeir halda áfram er torskýranlegt. En það er nú svona, að jafnvel hinir verri kækirnir verða að áráttu sem menn ráða ekki við, að því er virðist. Hér á að ráðast í fjárfestingu sem mun nema a. m. k. um það bil 160 millj. kr. á hvern starfsmann verksmiðjunnar. Það mun vera miklu meiri fjárfesting í hvert starf hér á landi heldur en nokkurn tíma hefur þekkst áður: 160 millj. fyrir hvern starfsmann. Svo dýrir starfsmenn hljóta að eiga að vinna nytsöm störf og framleiða ágætisvöru. Hver hefði orðið árangurinn af starfi þessara 150 starfsmanna málmblendiverksmiðjunnar, sem hefðu haft hver um sig að baki sér í tækjum 160 millj. kr., ef verksmiðjan hefði verið í gangi árið sem leið? Yfir 800 millj. kr. tap.
Og enn vil ég mælast til þess við hv. þm. hér í d., að þeir noti nú þessar síðustu mínútur, sem við eigum fyrir atkvgr. um málið, til þess að blaða gegnum fskj. nr. 1. með nál. minni hl., þar sem getur að finna þýddar greinar úr ýmsum kunnustu efnahagsmálatímaritum veraldar um stöðu málmblendiiðnaðarins og horfur málmblendiiðnaðarins og yfirvofandi hrun hans. Það má svo hver meðalgreindur maður geta sér til um það, hvernig á því stendur að ekki eru horfur á því að stál- og málmblendiiðnaðurinn rísi upp aftur til síns fyrra veldis, þegar það blasir við að olían, sem knúið hefur vélarnar sem steyptar hafa verið og gerðar úr málmblöndum þessum, úr stáli, er að þrjóta.
Ég hef oftar en einu sinni í salarkynnum þessarar hv. stofnunar minnt á ráðstefnu sem Félag ísl. búfræðikandídata og Verkfræðingafélag Íslands efndu til á vegum Landverndar að Hótel Loftleiðum um jólin 1975, þar sem fjallað var um fæðubúskap íslendinga, þ. e. a. s. möguleika íslendinga til þess að framleiða eggjahvítuefnaríka fæðu, þá vörutegund sem langmestur skortur er á í heiminum, þá vörutegund sem tugir þúsunda deyjandi manna hrópa á á banabeð sínum þó að mér sé ókunnugt um — það hefur a. m. k. ekki verið í sögur fært — að nokkur, sem þannig var ástatt um, hafi hrópað á kísiljárn. Niðurstöður þessarar ráðstefnu, sérfræðinganna á þessari ráðstefnu, var sú, að ef við íslendingar tökum þá pólitísku ákvörðun að beina afli okkar og tiltækri orku og vinnuafli og þekkingu að því að framleiða matvæli, þá eru gæði landsins slík, frjósemi lands og sjávar, að við gætum framleitt árlega eggjahvítuefna ríka fæðu sem nægir til þess að brauðfæða 36 millj. manna. En til þess verðum við að beina þreki okkar að því, efnum okkar að því og hætta að gæla við fáránlegar hugmyndir steinrunninna tæknikrata.