09.11.1976
Sameinað þing: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
42. mál, veiting lyfsöluleyfa
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Orðalag þessarar fyrirspurnar er óvenjulegt, en fyrirspyrjandi er líka óvenjulegur maður og hann ræður orðavali sínu sjálfur og það gerir auðvitað hver og einn eins og náttúra hans og innræti kalla á. En áður en ég svara fyrirspurninni, þá ætla ég að vísa skyldleika mínum við Dagblaðið til þessa hv. fyrirspyrjanda, ég hygg að oftast sé andi Dagblaðsins meira í ætt og skyldleika við hann heldur en mig.
Í sambandi við veitingu lyfsöluleyfa, þá segir S 7. gr. lyfsölulaga að forseti Íslands veiti slíkt leyfi. Síðan segir í gr.: „Umsóknir skal leggja fyrir tveggja manna nefnd, annar nm. skal kjörinn af Apótekarafélagi Íslands, en hinn af Lyfjafræðingafélagi Íslands. Varamenn eru kjörnir á sama hátt. Sæki nm. um lyfsöluleyfi tekur varamaður sæti hans í n. Kjörtími nm. er 6 ár. Nm. lætur landlækni í té rökstudda umsókn um þá umsækjendur, sem að hennar áliti eru hæfastir, og skipar þeim í töluröð, en þó aðeins þremur hinum hæfustu ef umsækjendur eru þrír eða fleiri. Telji n. einhvern umsækjanda óhæfan skal hún geta þess. Landlæknir sendir því næst ráðh. rökstutt álít um það, hverja af umsækjendum hann telur hæfasta í töluröð, og skal umsögn n. fylgja áliti hans.„
Síðan ég tók við embætti heilbrrh. hafa losnað óvenjumörg lyfsöluleyfi: þrjú vegna dauðsfalla, tvö ný lyfsöluleyfi hafa verið veitt og fjögur hafa losnað vegna tilflutninga.
Fyrsta lyfsöluleyfið, sem ég veitti, var í Hafnarfirði, Norðurbæjarhverfi. Þar voru umsagnaraðilar sammála, bæði apótekara og lyfjafræðinga, og landlæknir.
Í öðru lagi var lyfsöluleyfi á Akranesi. Þar voru umsagnaraðilar ekki sammála. Annars vegar voru sammála umsagnaraðilar apótekara og lyfjafræðinga, en hins vegar landlæknir sem hafði aðra niðurröðun. Ég veitti stöðuna þeim sem apótekarar og lyfjafræðingar settu í fyrsta sæti, en landlæknir setti í annað sæti.
Þá kom upp næst leyfisveiting til Vestmannaeyja og Stykkishólms, en um það var fullt samkomulag á milli umsagnaraðila, landlæknis og rn.
Fimmta lyfsöluveitingin var Iðunnarapótek. En þrátt fyrir það að apótekarar eigi að skipa n. til 6 ára, þá hafa verið fimm menn frá hendi apótekara í þessari umsagnarnefnd, sem sýnir að þar hafa orðið tíðar byltingar, og félagið hefur verið mjög ósamstætt í umsögnum sínum og áliti hinna einstöku nm. Við veitingu Iðunnarapóteks var mjög mikill ágreiningur á milli umsagnaraðila apótekara og lyfjafræðinga annars vegar og landlæknis hins vegar og síðan stórs hluta af apótekurum í félagi apótekara strjálbýlisins. Þar veitti ég embætti þeim manni sem hafði lengstan starfsaldur og landlæknir seti í annað af tveimur efstu sætunum, en n. lyfjafræðinga ekki. Um það urðu svo engar deilur.
Þá gerðist það að skipt var um fulltrúa apótekara í nefndinni eftir þessa veitingu og enn kom nýr aðili. Það var við veitingu lyfsöluleyfis í Borgarnesi og um það var fullt samkomulag.
Næst kemur að veitingu Ingólfsapóteks. Þar er settur í efsta sæti Ingólfur Lilliendahl, en í annað sæti er settur Werner Rasmussen og þeir eru taldir mjög áþekkir hvað snertir starfstíma sem lyfjafræðingar. Hins vegar eru þá aftur komnir til valda sem umsagnaraðilar Apótekarafélagsins þeir sem vilja láta þá, sem úti í strjálbýli hafa starfað, ganga fyrir. Ég gerði það aftur á undan, í sambandi við Iðunnarapótek, þá veitti ég það lyfsalanum úr Borgarnesi eftir till. landlæknis. En ég vil ekki gera það ófrávíkjanlegt skilyrði að menn hafi starfað úti á landi til þess að öðlast lyfsöluréttindi innan borgarmarka Reykjavíkur. Hins vegar var settur í efsta sætíð frá hendi landlæknis lyfsali hér á höfuðborgarsvæðinu, og mér fannst óeðlilegt að það væri verið að skipta um lyfsöluleyfi lyfsala hér innan höfuðborgarsvæðisins. Manninn, sem var settur af fulltrúum apótekara í efsta sætíð í sambandi við úthlutun lyfsöluleyfis fyrir Iðunnarapótek, skipaði ég lyfsala við Ingólfsapótek. Ef hann hefur verið fær að dómi apótekara og lyfjafræðinga að vera apótekari uppi á Laugavegi, þá er hann að mínum dómi jafnfær um að vera apótekari þó hann sé kominn niður í Aðalstræti. En þetta sýnir hve mikið samræmi er í störfum þessara umsagnaraðila.
Og þá kem ég að áttunda lyfsöluleyfinu, þ.e. á Egilsstöðum, sem fyrirspyrjandi gerði nokkuð að umræðuefni. Þar eru fimm umsækjendur og n. raðar þremur í þeirri röð sem fyrirspyrjandi gat um. Í ljós kemur að sá, sem er í öðru sæti, er einu ári eldri lyfjafræðingur en sá sem er í fyrsta sæti. Samkv. lögum segir að nefndin eigi að raða og hafa rök fyrir sínu máli. Rökin varðandi þann, sem var settur í efsta sæti, eru þau að dómi þessara nm., að um nokkurra ára skeið hafi hann unnið ötullega að því að komið yrði á fót lyfjabúð á Egilsstöðum og Héraðsbúum veitt fullkomin lyfjafræðiþjónusta sem rík þörf hafi verið fyrir um alllangt skeið. Auk þess voru önnur höfuðrökin þau fyrir því, að hann var settur í fyrsta sæti, en ekki Hjálmar Jóelsson, að hann hafi verið fús til starfa í dreifbýlinu, eins og fram komi í umsóknum um veitingu lyfsöluleyfa á þremur stöðum sem hann kom ekki til greina í vegna þess að þar voru eldri lyfjafræðingar. Þetta tel ég engin rök vera, að maður vilji ýta undir það að stofnuð verði lyfjabúð sem skipi honum mjög öruggt lífsviðurværi ævina á enda, og það sannar ekkert að viðkomandi sé neitt fúsari að vinna í strjálbýli heldur en allir aðrir sem um lyfsöluleyfi í strjálbýli sækja. Það, sem réð afstöðu minni til málsins, var að ég taldi það ekki vera nein rök hjá n. sem landlæknir einnig gerði að sínu, heldur réð úrslítum að maðurinn í öðru sæti var einu ári eldri lyfjafræðingur. Hvað snertir stjórnmálaskoðanir viðkomandi manna, þá get ég lagt eið út á það að ég hef ekki hugmynd um hvar sá maður er í stjórnmálum sem fékk þetta starf, þekki hann ekki nokkurn skapaðan hlut. Hann hefur einu sinni komið á minn fund og ég hef einu sinni séð hann. En hann hafði mjög góð meðmæli og um hann var fjallað af umsagnaraðilum af mikilli vinsemd.
Þá er slegið upp níunda og síðasta lyfsöluleyfinu, Neskaupstað, sem losnaði við það að sá apótekari fékk Borgarnes. Þar sækja þrír menn, tveir eru taldir koma öðrum fremur til greina vegna þess að þeir hafi mjög líkan starfsaldur, Einar Benediktsson og Vigfús Guðmundsson. Segir í umsögn aðila að Einar Benediktsson og Vigfús Guðmundsson hafi sama starfsaldur. Síðan segir n. orðrétt: „Eins og sjá má, er n. mikill vandi á höndum að velja á milli þeirra Einars og Vigfúsar. Starfsaldur þeirra er nákvæmlega hinn sami, en segja má að starfsreynsla Einars sé nokkru viðtækari, auk þess hefur hann verið sjálfstæður í starfi frá 1. júlí 1974, en Vigfús frá 1. júní 1976.“ Þetta er það sem um er að ræða. Það er nákvæmlega sami starfsaldur og samkv. lögunum hefur ráðh. fulla heimild til þess að veita lyfsöluleyfið hvaða umsækjanda sem er, sem talinn er hæfur að dómi þeirra sem um þessi mál eiga að fjalla. Þetta er í fullu samræmi við skoðanir fyrrv. heilbrrh. í sambandi við veitingu læknisembætta sem hann lét frá sér fara þegar var mikill ágreiningur um eina af þeim fáu stöðum sem hann veitti á sínu tímabili. Í sambandi við lyfsöluleyfi veitti sá ráðh. tvö leyfi. Honum var ekki mikill vandi á höndum. Í öðru tilfellinu sóttu fjórir aðilar, einn var með langlengstan starfsaldur. Og í hinu tilfellinu var honum miklu minni vandi á höndum því þar sótti einn maður. Hann var talinn hæfur til starfsins og ráðherra veitti honum það.