03.05.1977
Efri deild: 87. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4274 í B-deild Alþingistíðinda. (3324)

236. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins leiðrétta, að það kom á engan hátt fram í mínu máli að þetta frv. verðlaunaði skuldakónga. Það get ég ekki skilið að hv. þm. hafi getað ráðið af mínu máli. Það er ljóst að skuldir standa í stað, þær eru ekki endur­metnar. Hins vegar eru fasteignir hækkaðar í verði, fasteignamatið er margfaldað, þannig að það er á engan hátt hægt að segja að þetta verðlauni skuldakónga. Hitt er svo annað mál, að skattfrelsismörkin eru hækkuð allverulega og það getur haft ýmiss konar áhrif. En það er á engan hátt hægt að segja, það er rangfærsla, að þetta verðlauni sérstaklega skuldakónga. Ég vil einnig taka það fram, að þetta frv. gerir ráð fyrir því að eignarskatturinn skili um það bil sömu upphæð og fjárlög fyrir 1977 gera ráð fyrir.