09.11.1976
Sameinað þing: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (334)

42. mál, veiting lyfsöluleyfa

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil algjörlega mótmæla því að nokkur þessara lyfsöluveitinga sé háð stjórnmálaskoðunum viðkomandi manna, síður en svo. Því mótmæli ég algjörlega. En það, sem ber á milli, er það, að það er ráðh. sem á að veita lyfsöluleyfi. Nefndir eins og þessi eru fyrst og fremst og eingöngu settar til þess að fyrirbyggja að ófaglærður maður ráðstafi embætti sem slíku í hendur á mönnum sem eru óhæfir til að gegna því, enda segir að ráðh. velji á milli. Og í þessum tilfellum hefur alltaf verið um að ræða að það hefur verið tekinn efsti maður frá öðrum hvorum aðila. Það hefur orðið ágreiningur um 4 leyfi af þessum 9, 2 á milli þessara aðila, og þar verð ég auðvitað að skera úr. Ég taldi óréttláta og órökstudda niðurröðun og valdi þann manninn, sem var með eins árs lengri tíma sem lyfjafræðingur, við næstsíðasta leyfið. Hitt var mjög jafnt á metunum og er auðvitað alltaf í slíkum tilfellum erfitt fyrir veitingavaldið að gera upp á mílli manna þegar báðir eru prýðilega hæfir til starfans. Þess vegna held ég að menn bæti síg ekkert með því að vera að deila í þessum efnum í þeim dúr sem hv. fyrirspyrjandi gerði. Ég hef algjörlega farið eftir lögum. Ef á að breyta þessu, þá á að taka veitingarvaldið úr höndum ráðh. og setja það undir þessar hagsmunanefndir sem átti að skipa til 6 ára, en er alltaf verið að skipta um menn i. Slíkt gerir ekki störf samræmd, þannig að ráðh. eða rn. geti farið í öllu falli eftir því. En hitt skiptir höfuðmáli, að hér hefur aldrei verið tekinn annar maður í þessi störf en sá sem þessar n. hafa talið einn af þremur hæfustu umsækjendum og í öllum tilfellum einn af tveimur meðal hæfustu umsækjenda.