09.11.1976
Sameinað þing: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (336)

54. mál, sjóminjasafn

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Hinn 21. febr. 1974 var samþ. shlj. hér á hv. Alþ. till. til þál. um sjóminjasafn. Till. var á þessa leið:

Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að hefja nú þegar í samráði við þjóðminjavörð undirbúning að stofnun sjóminjasafns. Skal leita eftir samvinnu við Hafnarfjarðarbæ um hentugt landsvæði fyrir slíkt safn svo og um byggingu þess og rekstur.“

Mér er um það kunnugt að hinn 28. ágúst 1974 skipaði menntmrh. nefnd til að fjalla um stofnun sjóminjasafns í samræmi við fyrrgreinda ályktun Alþ. og gera till. um fyrirkomulag slíks safns. N. þessi starfaði síðan undir forustu þjóðminjavarðar veturinn 1974–1975 og skilaði allítarlegu nál. og till. til menntmrh. í maímánuði 1975. Nál. þetta var fjölritað og sent öllum alþm. og fleirum í desembermánuði 1975. Ég skal ekki fjölyrða um nál., enda ekki tími til, en aðeins nefna þrjú atriði sem þar var lögð áhersla á, en þau eru þessi:

1. Að sem fyrst verði samið um landrými undir safníð. Nefndir voru þeir staðir innan bæjarmarka Hafnarfjarðar sem til greina kæmu, og raunar hinn fjórði og e.t.v. æskilegasti á mörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar.

2. Að unnið verði skipulega að söfnun og björgun sjóminja og reynt að tryggja sómasamlega varðveislu þeirra meðan safnhús og sýningarskálar eru ekki komnir upp.

3. Að byggingarnefnd verði skipuð hið fyrsta sem hafist gæti handa um undirbúning framkvæmda.

Nú vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh.: Hvað hefur verið gert til að framkvæma þáltill. Alþ. frá 21. febr. 1974 fram yfir það sem ég hef nú rakið? Mér leikur sérstök forvitni á að vita hvað hæstv. ráðh. hefur gert eða hyggst gera með þær till. sem felast í fyrrgreindu nál. Hæstv. ráðh. og hans menn hafa nú haft þessar till. og þetta nál. til umfjöllunar í hálft annað ár, og ég vona að það verði ekki talið ótímabær hnýsni af minni hálfu, sem tel mig áhugamann um framgang málsins, þótt ég spyrji hvar það er nú á vegi statt.