04.05.1977
Neðri deild: 89. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4291 í B-deild Alþingistíðinda. (3366)
124. mál, símaafnot aldraðs fólks og öryrkja
Lúðvík Jósepsson:
Hæstv. forseti. Ég skal aðeins hafa um þetta örfá orð af því að mér er ljóst, að tíminn er hlaupinn frá okkur og ekki nein ástæða til þess að ræða málið frekar en orðið er, enda hefur það þegar verið rætt nokkuð. En ég vildi aðeins vekja athygli á því, að mér finnst þær móttökur, sem þetta mál hefur fengið af hálfu hæstv. ríkisstj. eða þess ráðh. sem aðallega hefur með málið að gera, vera alveg fráleitar. Ég hef hlustað á það að hæstv. samgrh., sem ræður yfir símamálum, hefur bent á að hann teldi að þetta mál ætti í rauninni að flokkast undir almenn tryggingamál og það væri þá Tryggingastofnunin sem ætti að borga símaafnotagjaldið fyrir þetta gamla fólk til þess að síminn tapaði í engu. Þetta tel ég alveg fráleita skoðun. Mér sýnist að því miður komi það fram í nál. meiri hl., hann hefur það a. m. k. eftir þeim sem hafa upplýst hann um málið, að það er verið að búa til úr þessu einfalda og sjálfsagða máli í rauninni alveg óleysanlega flækju. Hér er sagt að raunverulega flokkist þetta mál undir fjögur rn.: fjmrn., menntmrn., samgrn. og heilbr.- og trmrn. Það er mikið að menn geta ekki fundið öll hin rn. líka til þess að koma þeim inn í þetta, búa til úr þessu flækju, þegar um það er að ræða að gera svipað og gert er víða annars staðar í löndum í kringum okkur. Ráðh. hefur þingssamþykkt til að undanþiggja þessa aðila afnotagjaldi af síma, og væri alveg sjálfsagt að setja í reglugerðina að þetta ætti aðeins við þegar viðkomandi öryrki eða viðkomandi gamalmenni býr eitt. Ef þessi aðili býr á heimili sem hefur síma hvort sem er með eðlilegum hætti, þá þarf hann ekki að njóta þessa. Þetta er afar einfalt.
En auðvitað kemur Póstur og sími eins og fyrri daginn, allt embættiskerfið, og segir: Það verður einhver að borga fyrir þetta fólk, ekki má ég tapa krónu. — Og svo segir auðvitað trmrn.: ég á að fara að borga þetta, þá verður fjmrh. að koma með meiri peninga. — Og svo kemur fjmrh. og segir: Ef ég á að fara að borga þetta, þá vil ég fá nýjan skatt. — Og svona heldur málið áfram.
Það, sem þarf að gera í þessu máli, er einfaldlega að fá úr því skorið hvort sá ráðh., sem með þetta hefur að gera, samgrh., vill fara eftir samþykkt sem gerð var hér á Alþ. um að veita þessum aðilum þessi réttindi. Ég verð að líta svo á að það sé samgrh. einn í þessu tilfelli og enginn annar sem stendur þá gegn því að þetta sé gert. En ég skal þó segja það, að auðvitað hefði verið langeðlilegast að afgreiða þetta mál, samþykkja það, til þess að ítreka vilja Alþ., þar sem beinlínis er lagt fyrir ráðh., honum er falið að gera þetta. Áður hafði kurteisisorðalagið verið notað, að honum væri heimilt að gera þetta. En þó er betra en ekki, úr því sem komið er, að fá samþykkta þá till. sem kemur fram á þskj. 683 frá meiri hl. n., því að þar er þó beinlínis tekið fram, að í trausti þess að fundin verði réttlát lausn sé þessu vísað til ríkisstj. Það er þó viðbótaráskorun, að vísu ekki alveg bindandi.
Mér er ljóst að það er ekki hægt, úr því sem nú er komið, að gera hvort tveggja að samþykkja þessa till. í þessari d., vísa málinu til Ed. og samþykkja till. þar líka, eins og þarf að gera, það verður ekki gert úr því sem komið er, og því er þetta þó skárra en ekki. En á hinu er rétt að sá ráðh. átti sig sem hefur með þessa framkvæmd að gera, þ. e. a. s. hæstv. samgrh., Halldór E. Sigurðsson, að ef hann framkvæmir þetta ekki, þá verður það skrifað á hans reikning. Alþ. hefur í rauninni sagt hver er þess vilji, og það er alveg ástæðulaust að þvæla þessu litla máli á milli allra rn., gott ef það lenti ekki að lokum í utanrrn. eða einhverju slíku. Menn geta áreiðanlega fundið einhverja krókaleið til þess.