04.05.1977
Neðri deild: 90. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4296 í B-deild Alþingistíðinda. (3375)
172. mál, umferðarlög
Gunnlaugur Finnsson:
Hæstv. forseti. Mér þykir rétt að gera grein fyrir því, hvers vegna ég tók ekki þátt í afgreiðslu n. á þessu máli. Ég var og er efnislega samþykkur því að breytingar verði gerðar í þá átt sem frv. gerir ráð fyrir, og ég gerði strax grein fyrir því þegar málið kom fyrir skömmu til umr. í allshn. Nd. Hins vegar sýndist mér að ýmsir þættir, sem tengjast þessu máli, þyrftu nánari skoðunar við, og mér sýndist að málið væri hvorki það stórt í sniðum né aðkallandi að það væri ekki full ástæða til þess að þeir þættir yrðu kannaðir. Þá á ég við það, sem fram kom og hv. frsm. nefndi, þ. e. hugsanlega skaðabótaskyldu vegna óhappa sem kynnu að verða vegna þeirra ráðstafana sem þarna eru gerðar, hvernig með þau mál skuli farið, athugun á því, hvort líklegt er að tryggingarfélög krefðust hærri iðgjalda en ella o. s. frv. Þess vegna þótti mér rétt að annaðhvort biði þetta frv. til haustsins eða gildistökuákvæðum frv. yrði breytt í þá átt, að það tæki ekki gildi fyrr en í haust og í millitíðinni gæfist tóm til að setja þær reglur sem frv. gerir ráð fyrir að dómsmrh. setji, þannig að það gefist nokkur umþóttunartími þar til lögin koma til framkvæmda.
Nú var ekki hægt að breyta gildistökuákvæði með tilliti til þess, að Ed. hefur þegar lokið störfum og það hefði þurft að senda frv. til Ed. ef það ætti að hljóta afgreiðslu á þessu þingi. Þess vegna sá ég ekki ástæðu til þess að taka þátt í afgreiðslu málsins, annars vegar vegna þess að ég vil ekki leggjast gegn frv., vegna þess að ég er efnislega samþykkur því að það nái fram að ganga, en mér þykir líka hitt ótækt, að lögin taki gildi nú þegar.