09.11.1976
Sameinað þing: 17. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

55. mál, Landhelgisgæsla Íslands

Flm. (Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. um könnun og undirbúningi á framtíðaraðstöðu fyrir Landhelgisgæslu Íslands, svo hljóðandi:

Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna og undirbúa framtíðaraðstöðu fyrir Landhelgisgæslu Íslands í Hafnarfirði.“

Forsaga þessa máls er nokkuð löng og skal hún rakin í stuttu máli.

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði höfðu um alllangt skeið íhugað nýtingu og uppbyggingu Hafnarfjarðarhafnar og aðstöðu þar í landi, hvort opinber fyrirtæki gætu ekki nýtt þá aðstöðu sem bærinn getur boðið. Hafnarfjarðarhöfn er með bestu höfnum landsins frá náttúrunnar hendi, en ekki uppbyggð enn nema að nokkru leyti og býður því mikla möguleika fyrir stofnanir sem þurfa sérstaka hafnaraðstöðu. Við þessa könnun kom m.a. í ljós að Landhelgisgæsla Íslands býr við mjög þröngan leiguhúsnæðiskost og við heldur ófullkomna hafnaraðstöðu í Reykjavík.

Það mun hafa verið á árunum 1972–1973 að viðkomandi yfirvöldum var kynnt sú aðstaða sem kostur var á í Hafnarfirði fyrir Landhelgisgæsluna. Þá var til sölu húsnæði sem hentaði henni ágætlega, svokallað Dvergshús, sem nú er nýtt sem skólahúsnæði að nokkru leyti, og mun það, eftir því sem ég kynnti mér í morgun, fáanlegt enn, a.m.k. hluti þess, og það mun vera í könnun að önnur ríkisstofnun fái þarna inni. Þetta er mjög stórt húsnæði, þannig að þessar stofnanir gætu vel búið þarna í sambýli, alla vega fyrst um sinn. Úr húsnæði þessu sér vel yfir höfnina, enda rétt hjá henni.

Aðstaða til gerðar hafnarmannvirkja í Hafnarfirði er frá náttúrunnar hendi sérlega góð. Eðlilegast verður að telja að Landhelgisgæslan eigi í framtíðinni sína eigin höfn sem sé miðuð við þarfir hennar.

Sérstaklega má benda á að lóðir í miðbæ Hafnarfjarðar í beinum tengslum við hafnarsvæðið, þ.e. við svokallaða Fjarðargötu, eru enn óbyggðar, þannig að þar gæti Landhelgisgæslan eignast eigið húsnæði í beinum tengslum við höfn sína og þar mætti einnig koma fyrir aðstöðu fyrir þyrlur. Verulegur hluti af starfsliði Landhelgisgæslunnar er nú búsettur í Hafnarfirði og Garðabæ. Einnig má benda á, að vel er við hæfi að Landhelgisgæslan eigi aðsetur í bæjarfélagi sem byggst hefur upp vegna hinnar góðu hafnaraðstöðu á staðnum, í sannkölluðum sjómannabæ. Ágætar skipasmíðastöðvar eru í Hafnarfirði svo og vélsmiðjur og olíubirgðastöð, þannig að auðvelt er um þjónustu við skipin.

Síðast, en ekki síst vil ég víkja að því hver fengur það væri bæjarfélagi eins og Hafnarfirði að fá stofnun eins og Landhelgisgæsluna í bæinn. Fyrir utan þá fjölbreytni í atvinnulífinu, sem slíkt mundi skapa, tel ég að það mundi auka á reisn og virðingu bæjarfélagsins og setja sitt svipmót á bæjarbrag. Sveitarfélög svo nærri höfuðborg sem Hafnarfjörður er hljóta alltaf að eiga í nokkurri vök að verjast að verða ekki nokkurs konar úthverfi eða svefnbær. Koma Landhelgisgæslunnar til Hafnarfjarðar mundi bregða „stórum svip yfir dálitíð hverfi“, eins og Einar Benediktsson orðaði svo snilldarlega. Hér mundi hún setja svip á bæinn og skipa virðulegan sess í bæjarlífinu. En síðast, en ekki síst eru þar aðstæður til að búa eins vel að henni til frambúðar og ég veit að við viljum öll, og verður ekki séð að betri aðstæðna sé kostur annars staðar.

Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til allshn.