10.11.1976
Efri deild: 10. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (358)

66. mál, vegalög

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Hér liggur fyrir til 1. umr. frv. til vegalaga, en eins og kunnugt er eru vegalög í augum hv. þm. mikið mál og merkilegt, enda ekki undarlegt þar sem samgöngumál og þar með vegirnir skipta þjóðina svo miklu máli eins og raun ber vitni um.

Það var hinn 9. júní 1975 sem ég skipaði 7 manna n. til þess að vinna að endurskoðun gildandi vegalaga. Ég hafði áður lýst því yfir hér á hv. Alþ. að ég mundi leita eftir því að ná samstöðu um þær breytingar sem fyrirhugaðar væru og gera það með því að fela einum þm. úr hverjum stjórnmálaflokki, er sæti á hér á hv. Alþ., ásamt tveim embættismönnum, ráðuneytisstjóranum í samgrn. og þáv. vegamálastjóra, að vinna þetta verk. Í skipunarbréfi til n. var þetta tekið fram, með leyfi hæstv. forseta, sem verkefni n.:

„1. Gildandi ákvæði um flokkun vega, sem nú er skipt í hraðbrautir, þjóðbrautir og landsbrautir. M.a. vegna hringvegarins, sem opnaður var á s.l. ári, telur rn. nauðsynlegt að athugað sé hvort honum skuli skipt í hraðbrautir og þjóðbrautir, og enn fremur telur rn. nauðsyn bera til að athuga samband tengiveganna við hringveginn, eins og vegi á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Austfjörðum, svo að dæmi séu nefnd.

2. Þá telur rn. rétt að n. kanni hvort gera eigi sérstakar svæðaáætlanir eða landshlutaáætlanir, eins og nú á sér stað, eða fella allar vegaframkvæmdir inn í vegáætlun sem Alþingi afgreiðir þá í heild.

3. Fjárþörf sýsluvegasjóða.

4. Önnur ákvæði laganna er leiða kann af breytingum samkv. liðum 1–3 hér að framan.“ Í n. voru skipaðir Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, sem var formaður n., Sigurður Jóhannsson vegamálastjóri, varaformaður, og alþm. Ásgeir Bjarnason, Helgi Seljan, Lárus Jónsson, Magnús T. Ólafsson og Sighvatur Björgvinsson. Ritari n. var ráðinn Jón Rögnvaldsson, þá deildarverkfræðingur, síðar yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins.

N. þessi hefur nú skilað áliti, og örlögin höguðu því svo til að það var síðasta verk fyrrv. vegamálastjóra, áður en hann fór í sína síðustu ferð, að ganga frá þessu nál. ásamt samstarfsmönnum sínum, og náðist samstaða í n. um þetta lagafrv.

Meginatriði þessa frv. eru tvö.

Í fyrsta lagi er að flokkun vega er breytt frá því sem áður var. Það er gert með því að gera höfuðflokk sem heitir stofnvegir, en þessi flokkur nær til þess, sem nú tilheyrir þjóðbrautum og hraðbrautum í vegakerfinu, og enn fremur aðeins inn á landsbrautasviðið í sambandi við það takmark að ná til hinna einstöku þéttbýliskjarna sem stefnt er að með flokkun þessari. Með þessu móti er búið að ná því sem var takmark þessarar endurskoðunar, að hafa hringveginn í kringum landið og vegi til helstu svæðanna í einum og sama flokki. Hins vegar mun það verða svo í framkvæmdinni, að innan þessa flokks verða vegir gerðir með margvíslegu móti, þannig að þeir vegir, sem bera mestu umferðina, bæði toppinn og einnig allt árið um í kring, verði byggðir með það fyrir augum að varanlegt slitlag sé hægt á þá að leggja þegar að því kemur að ákvörðun verður gerð um það. Hinn þátturinn í þessum vegaflokki verða svo vegir sem er reiknað með að verði um langa framtíð malarvegir og umferðarþunginn verði ekki eins mikill og er á þeim sem í betri gerðinni eru í uppbyggingu vegakerfisins. Þetta hlýtur af sjálfu sér að leiða af umferðarþunganum og þeirri nauðsyn sem það er að undirbyggja vegina með tilliti til þess.

Þegar fyrsta vegáætlunin var samþ. á Alþ. 1964 voru þeir vegir, sem féllu í hraðbrautaflokk, aðeins 131 km. Þetta voru aðalvegir frá Reykjavík og hluti af Norðurlandsvegi norðan Akureyrar. Flokkun þjóðvega í vegáætlun 1964 var sem hér segir: Þjóðvegir í þéttbýli 97.8 km, hraðbrautir 131 km, þjóðbrautir 2857.3 km og landsbrautir 6375.7 eða alls 9361.6 km. Við þessa flokkun var það að athuga, að fjöldi vega í landsbrautaflokki uppfyllti ekki skilyrði 12. gr., hvorki um vegalengd né býlafjölda, en voru settir í þennan vegaflokk til næstu 5 ára samkv. sérstöku ákvæði í vegalögum, en það var um að vegir, sem voru komnir í þjóðvegatölu, féllu þaðan ekki út á 5 ára tímabilinu, enda var þá gert ráð fyrir að það yrði búið að gera á þeim þær endurbætur sem nauðsyn bæri til.

Við þessa flokkun vekur það athygli, að hraðbrautir eru 1.4% þjóðvegakerfisins og ekki nema 4.4 af hraðbrautum og þjóðbrautum samanlögðum. Hefði í raun mátt hafa hraðbrautir sem undirflokk í þjóðbrautum eða láta gerð þeirra ráðast af tæknilegum ákvæðum samkv. 13. gr.

Ástæðan til þess, að svo var ekki gert, var fyrst og fremst sú, að þörfin fyrir vegi með bundnu slitlagi á fjölförnustu vegaköflunum var svo mikið að menn vildu hafa þessa vegi í sérstökum flokki til þess að knýja á um úrbætur í þessum efnum.

Við gerð bráðabirgðavegáætlunar fyrir árið 1976 var flokkun vega óbreytt frá vegáætlun 1974–1977 sem samþ. var á Alþ. vorið 1975. Sú flokkun var byggð á umferðartölum frá 1974 og var eins og hér segir: Þjóðvegir í þéttbýli 131 km, hraðbrautir 636 km, þjóðbrautir 3100 og landsbrautir 4748 km eða alls 8616 km. Þessi flokkun er í fullu samræmi við ákvæði 12. gr. laganna, eins og að framan má sjá af styttingu landsbrautanna. Þegar þessi flokkun er skoðuð kemur í ljós, að vegir í hraðbrautaflokki hafa nær fimmfaldast frá fyrstu vegáætlun og eru nú 7.4% þjóðvegakerfisins og 17.1% af samanlögðum hraðbrautum og þjóðbrautum. Þessi mikla aukning hraðbrauta frá fyrstu flokkun í vegáætlun er bein afleiðing af því að á þessu tímabili hefur bifreiðaeign landsmanna aukist um 145%, eða í 71 364 bifreiðar 1. jan. 1975.

Í flokkun í vegáætlun 1976 eru hraðbrautir ekki lengur bundnar við aðalvegina út frá höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri, en ná út frá fjölmörgum kaupstöðum og kauptúnum víða um land. Þessir hraðbrautakaflar hafa þó það sameiginlegt að þeir hafa allir flust úr þjóðbrautaflokki vegna umferðarmagns yfir sumarmánuðina.

Ein af höfuðástæðunum til þess að farið var í þessa endurskoðun á vegal. var að það voru komnir í hraðbrautatölu vissir kaflar, en báðum megin við þá vegarkafla voru svo aftur þjóðbrautir og jafnvel landsbrautir, svo að erfitt var að sinna þessu. Það mátti því segja um ýmsa tengivegi, svo sem stórfellda tengivegi eins og Holtavörðuheiði og aðra þvílíka sem voru að sumu leyti í landsbrautaflokki, að með skiptireglum þeim, sem viðhafðar hafa verið hér á hv. Alþ., voru þm. margir hverjir ekki svo áfram um að taka af sínu takmarkaða skiptifé til þess að setja í þessa vegi. Sú varð því raun á bæði í hittiðfyrra og einnig við áætlunina fyrir árið í ár, að það varð að breyta út frá þessum reglum til þess að ná til veigamikilla atriða í samgöngumálum okkar, eins og vegarins yfir Holtavörðuheiði, til tengingar á Vestfjarðavegi og einnig það sem unnið hefur verið í því að tengja Austurlandsveg inn á þá nýju stefnu að fara ekki yfir Lónsheiði. Þetta gerði það að verkum að nauðsyn bar til að endurskoða málið í heild, og niðurstaðan hvað þetta atriði varðar er einmitt sú að hafa nú gert einn flokk úr þjóðvegum og hraðbrautum, sem áður var stofnbrautir, sem eru höfuðvegirnir í kringum landið og til þéttbýlisstaða víðs vegar á landinu, eins og ég áður sagði. Framkvæmdin verður hins vegar sú, að það mun verða misjöfn gerð þeirra vega sem í þessum stofnbrautum verða, og fer það eftir því hvað álitíð er um umferð um þá. Með þessari tilhögun á ekki að þurfa að koma til neinnar teljandi tilfærslu á milli vegaflokka, eins og við urðum að gera nú síðustu árin við endurskoðun vegáætlana. En tæknileg gerð veganna í hvorum flokki um sig fer að sjálfsögðu eftir áætlaðri umferð, þýðingu þeirra og landfræðilegum aðstæðum samkv. 3. gr. frv. þessa. Og ákvörðun um m.a., hvort bundið slitlag skuli lagt á tiltekinn vegarkafla í vegáætluninni, fer að sjálfsögðu eftir ákveðnum fjárveitingum á vegáætlun hverju sinni.

Að lokum skal það tekið sérstaklega fram, að n. hefur með ofangreindri till. sinni um breytingu á 12. gr. gengið út frá því, að við meðferð vegáætlunar á Alþ. fjalli fjvn. Alþ. í heild um skiptingu fjárveitinga til einstakra stofnbrauta og ekki verði um þann flokk beitt hundraðshlutaskiptingu milli kjördæma, svo sem gilt hefur um þjóðbrautir og landsbrautir um nokkur ár.

Annað atriði, sem er veigamikið í þessu frv., er að verulega er aukið fjármagn til sýsluvegasjóða. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að með gildistöku nýrra vegalaga 1. jan. 1974 var talið að nokkuð vel væri séð fyrir fjárþörf sýsluvegasjóða miðað við það sem áður var. Síðan hafa sýsluvegir verið lengdir tvisvar með breytingu á vegalögum, þ.e. l. nr. 24 1969 og nr. 27 1975. Hafa þeir á þessu tímabili lengst um nær 64%. En fjárveitingar til þeirra hafa ekki aukist að sama skapi, þó að nokkuð hafi áunnist með breytingum á vegalögum vorið 1975. Þessa þróun má glöggt lesa í yfirliti um lengd sýsluvega sem er hér á bls. 8 í grg. frv. og ég ætla ekki að eyða tíma í að lesa upp, enda eiga hv. alþm. kost á því að kynna sér það samkv. þessu yfirliti. En í ofangreindri töflu, sem ég vitnaði til, er einnig sýnt hverjar tekjur sýsluvegasjóða yrðu að óbreyttum lögum árin 1977 og 1978 og enn fremur hver aukningin yrði á ráðstöfunartekjum ef fram ná að ganga till. n. í 5., 6. og 7. gr. frv., þær sem nánar verður vikið hér að á eftir. Kemur þar fram að ríkisframlag mun á árinu 1978 tvöfaldast við breytinguna. Rauntekjur munu tæplega aukast jafnmikið og hlutfallstalan í aftasta dálki töflunnar gefur til kynna. Bæði má búast við því að sýsluvegir lengist nokkuð vegna heimildarákvæða 4. gr. um að taka vegi að sumarbústöðum í tölu sýsluvega, og einnig munu verðhækkanir á komandi árum hafa áhrif í þá átt að lækka hlutfallstölu á ný.

Komið hafa fram raddir um það á Alþingi, að þar sem framlög úr héraði til sýsluvegasjóða eru aðeins 1/3 af heildartekjunum væri vel athugandi að gera alla sýsluvegi að þjóðvegum. N. hefur rætt þessa hugmynd og er sammála um, að slíkt væri spor aftur á bak, sýslunefndarmenn hefðu hver í sínu héraði mun meiri kunnugleika til að bera til að skipta sýsluvegafénu á skynsamlegan hátt en ef gera ætti það jafnhliða afgreiðslu vegáætlunar á Alþ. Með því væri einnig verið að flytja vald úr héraði til miðstjórnarvalds í Reykjavik, og síst væri ástæða til að ýta undir þá þróun í þessum málum. Það færi ekki heldur vel í sambandi við vegamál okkar, því að Vegagerðin hefur öðrum stofnunum fremur flutt valdið út til landsbyggðanna. Með því að setja verkfræðinga og yfirstjórn vegamála á tilteknum svæðum í kjördæmi, eins og Vegagerðin hefur gert, hefur hún að minni hyggju unnið merkilegt og þakkarvert starf í því að koma í framkvæmd raunverulegri byggðastefnu, enda sýnir það sig með hverju árinu betur að þeir aðilar, sem eiga heima í kjördæmunum, héruðum þeim sem þeir eiga að vinna í, hafa miklu betri staðbundna þekkingu til þess að vinna að þessum málum og auðveldara með að vinna úr þeim fjárveitingum sem eru til reiðu á hverjum tíma. Þess vegna er þetta spor mjög í rétta átt og þarf að vinna að því í sambandi við fleiri stofnanir.

Lagt er til að lágmarksgjald það, sem hver hreppur skal greiða í sýsluvegasjóð hækki úr andvirði 3 dagvinnustunda fyrir hvern íbúa í andvirði 6 dagvinnustunda fyrir hvern íbúa. Þykir þetta nauðsynlegt vegna mjög vaxandi framkvæmdaþarfar í sýsluvegum, m.a. vegna aukinna þungaflutninga um þá í sambandi við breytt fyrirkomulag við mjólkurflutninga, í sambandi við tankvæðinguna.

Heimildarákvæði til handa hreppsfélögum um að hækka gjald sitt er nokkuð þrengt, og gert er ráð fyrir að hámarksgjald megi nema andvirði 8 dagvinnustunda, en er tvöfalt lágmarksgjald samkvæmt gildandi lögum.

Nefndin kannaði ýmsar aðrar leiðir til þess að auka tekjur sýsluvegasjóða. Er gefið nokkurt yfirlit yfir þær athuganir á fskj. 11.

Í sambandi við þessa heimild vil ég segja það, að það verður að sjálfsögðu á valdi þeirra, sem heimildina hafa, að nota þetta. Ég tel hins vegar að það sé öllum ljóst, að mikla nauðsyn beri til að nota þessa heimild. Eins og þarna er drepið á, segja þungaflutningarnir í sambandi við mjólkurflutninga, sem eru orðnir á tankbílum og farið heim á hvern bæ, mjög til sín. Svo er annar þáttur sem er líka orðinn brýnn, en það er flutningur á skólabörnum sem er orðinn mikill hér um landið, að börn eru flutt heiman og heim daglega. Ber því brýna nauðsyn til að sinna þessum þáttum þannig að bæta úr heimkeyrslum á bæina og að skólastöðunum, það sem sýsluvegirnir ná þar. Ég geri því ráð fyrir að þó að einhver brögð verði að því að þessar heimildir verði ekki að fullu notaðar, þá muni þær í aðalatriðum verða notaðar.

Gjald samkv. 23. gr. gildandi laga hefur verið mjög lágt og í mörgum tilfellum heimt af mannvirkjum, löndum og lóðum. Það hefur verið innheimt með sama álagi á fasteignamat eins og önnur gjöld sveitarfélags sem reiknuð eru sem hlutfall af fasteignamati. Álag þetta er nú 173%, sbr. auglýsingu félmrn. Eins og áður er komið fram, þá eru sett lágmarksákvæði í sambandi við þetta gjald.

Ég sé nú ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa öllu fleiri orð um þetta frv. þótt merkilegt sé, enda er grg. þess glögg og með því fylgir mikið af skýrslum og kortum og öðru slíku sem þarf til þess að vinna úr þessu máli í hv. samgn. Alþ. Ég vil hins vegar, áður en ég lýk máli mínu þakka nm. öllum fyrir þeirra ágæta starf í sambandi við þetta mál, og það gladdi mig mjög að samstaða skyldi nást um það frá hendi n. Enda þótt mér sé það ljóst að hér sé vel unnið verk, þá er ekki þar með sagt að það geti ekki komið til einhverra breytinga í meðferð málsins hér á hv. Alþ., og hef ég aldrei verið mjög viðkvæmur fyrir því þótt einhverju hafi verið breytt í þeim frv. sem ég hef lagt hér fram, því að allt, sem betur má fara, vil ég til greina taka, og svo er í þessum efnum. Hitt er aðalatriðið, að mergur málsins í sambandi við þetta frv., sú flokkun að gera stofnbrautir hringinn í kringum landið, og aðalvegina til hinna einstöku staða, fái að haldast og landsbrautirnar leiði því af sjálfu sér, og að fjármagnið til aukinna sýsluvega nái einnig fram að ganga. Enda þótt mér sé ljóst, að það er mikill kostur að hafa góð vegalög, eins og hér er ætlast til að gera, og geri framkvæmd á skiptingu fjármagnsins og framkvæmdirnar um leið miklu auðveldari en að öðrum kosti væri, þá skiptir þó hitt mestu máli, að við getum fengið aukið fjármagn til framkvæmda í vegagerð. Á það skortir mjög að við höfum nóg fjármagn til þeirra hluta eða það fjármagn sem eðlilegt mætti telja að við hefðum til þess. Um það ræðum við síðar, þegar vegáætlun verður hér lögð fram, og ég vona að það geti orðið fyrr en seinna. En nauðsyn ber þó til að afgreiðsla þessa frv. eigi sér stað áður en vegáætlun verður afgreidd. Hún verður að byggjast á þessari löggjöf, því að að öðrum kosti væri flokkunin ekki framkvæmanleg. Ég treysti því hv. samgn. þessarar d. að vinna að þessu máli ötullega, eins og ég get með sanni sagt að hún hafi gert við þau mál yfirleitt sem ég hef lagt hér fram.

Ég vil svo, hæstv. forseti, leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. samgn.