18.10.1976
Efri deild: 4. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (37)
22. mál, fullorðinsfræðsla
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil á þessu stigi leyfa mér að draga athygli þessarar hv. d, og þá sérstaklega þeirra nm., sem eiga að fjalla um þetta frv. í menntmn. d., að bls. 89 þar sem er samþykkt sem gert var í fræðsluráði Reykjavíkur hinn 28. okt. 1974. Og ég vil leyfa mér að lesa upp part af þeirri samþykkt, með leyfi hæstv. forseta. En áður vil ég þó segja að ég er menntmrh. sammála að mörgu leyti, og það er ekki til þess að gagnrýna eitt eða annað, sem fram kom í hans málflutningi, sem ég kveð mér hljóðs. Að sjálfsögðu er rétt að mennta fólk eins vel og kostur er á og eyða eins miklum peningum og við höfum efni á til þess að gera hvern einstakling eins vel úr garði og hægt er. Mætti það gjarnan vera í þeim hlutföllum fjárhagslega sem aðrar þjóðir nota í menntamál plús hermál, þannig að okkar framtíð byggist mest á baráttu með vitsmunum, en ekki vopnum. En ég vil lesa þessa samþykkt upp sem varnaðarorð þrátt fyrir það og gríp hér inn í þar sem 3. mgr. hefst:
„Þarfir fyrir bætt menntakerfi og menntunarskilyrði eru mun meiri en geta opinberra aðila til að uppfylla þær og því nauðsynlegt að verkefnum sé raðað og ekki of mikið færst í fang í einu, en það gæti leitt til ófullnægjandi framkvæmdar á öllum sviðum.
Að mati Fræðsluráðs Reykjavíkur skortir enn þá mjög á að ríki og sveitarfélög geti látið í té nægilegt fjármagn til að hægt sé að uppfylla kröfur núv. fræðslulaga um menntun og menntunaraðstöðu. Meðan svo er telur fræðsluráð Reykjavíkur varhugavert að lögfesta svo viðtækar skyldur og heimildir um fullorðinsfræðslu sem í frv, felast, einkum þar sem það er gert án þess að nokkur grein sé gerð fyrir kostnaði við framkvæmd frv.
Frv, um fullorðinsfræðslu virðist einkum byggt á erlendum fyrirmyndum og ekki sem skyldi tekið mið af íslenskum aðstæðum og reynslu.“
Ég vil leyfa mér að skjóta hér inn í, ef hv. þm. vilja fletta upp á bls. 74–76, þar sem vitnað er í yfir 30 erlenda aðila, en ekki einn einasta íslenskan, og held ég þá áfram lestrinum.
Þrátt fyrir langa og ítarlega grg, er þar enga vitneskju að finna um þá fræðslu fullorðinna sem á sér stað á Íslandi og hefur farið fram allengi með mismunandi hætti hjá ýmsum aðilum.
Augljóst er að með frv. þessu er stofnað til nýs fræðslukerfis við hliðina á því sem fyrir er. Áætlun um fullorðinsfræðslu á Íslandi hlýtur að byggjast framar öllu á nákvæmri vitneskju um ríkjandi ástand í þessum efnum.
Á grundvelli þeirrar reynslu, sem fyrir hendi er, ættu lög um fullorðinsfræðslu fyrst og fremst að byggja með þeirri víkkun viðfangsefna og aukningu opinberrar aðstoðar sem út frá raunsæjum forsendum yrði talið unnt að koma í framkvæmd. Má þar til nefna sérstaklega t.d. fullorðinsfræðslu sem er hliðstæða frummenntunar, sbr. 16, gr, frv., námsflokkastarf á vegum fræðsluumdæma, en innan þess getur rúmast margt það sem frv. gerir ráð fyrir, bréfaskóla og skipulagningu ævimenntunar vegna atvinnuveganna. Vandlega þarf að íhuga hvort ekki er unnt að komast hjá að setja upp sérstakt stjórnkerfi vegna fullorðinsfræðslu í þeim mæli sem frv. gerir ráð fyrir og hvort framkvæmd væntanlegra laga getur ekki að mestu fallið undir skólayfirvöld samkv. almennum fræðslulögum (grunnskóla og framhaldsskóla), þar sem tekið yrði tillit til sérstöðu t.d. atvinnuvega með skipun nefnda er störfuðu á vegum skólayfirvalda.
Fræðsluráð Reykjavíkur mælir með því að sem fyrst verði sett lög um fullorðinsfræðslu, en telur að endurskoða þurfi það frv., sem nú liggur fyrir, með það markmið fyrir augum að skýrt verði kveðið á um hvað í frv. á að koma til framkvæmda strax og hvað líta beri á sem framtíðarmarkmið sem ekki sé unnt að framkvæma að svo stöddu og yrði þá annaðhvort fellt burt úr frv. eða kveðið á um frestun þess.“
Ég ætla ekki að hafa þessi orð lengri, en ég vil bara mæla þessi orð sem veganesti til viðbótar við það, sem hæstv, ráðh, sagði hér áðan, til banda menntmn. þessarar hv. deildar.