10.11.1976
Neðri deild: 10. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

50. mál, orkulög

Flm. (Magnús Kjartansson):

Hæstv. forseti. Ræða hv. þm. Ingólfs Jónssonar minnti mig á fyrri ræður sem hann hefur haldið um þetta sama efni. Það var lopi. Það var ekki hægt að festa hendur á neinu. Og þó var eitt sem hægt var að festa hendur á. Hann sagði að hæstv. iðnrh. gæti ekki sætt sig við frv. sem samið hefði verið í tíð fyrri ríkisstj., hann þyrfti að láta semja sérstakt frv. handa sjálfum sér. (Grípið fram í.) Og hv. þm. kallaði þetta frv. Magnúsar Kjartanssonar. Það er mikill misskilningur. Þeir, sem sömdu þetta frv., voru sérfræðingar Orkustofnunar og mjög hæfir lögfræðingar. Þeir sömdu þetta frv. og Orkustofnun hafði frumkvæði að því, sagði að það væri óhjákvæmilegt að taka ákvörðun um eignarréttaratriði í sambandi við þetta mál, ef ætti að vera einhver eðlileg þróun í nýtingu hitaorkunnar hér á Íslandi, þá yrði að setja slíka löggjöf.

Það er ekki til nein afsökun á vinnubrögðum Alþ. í sambandi við þetta mál. Þau vinnubrögð eru Alþ. til minnkunar og úr þeim verður að bæta á þessu þingi hvað þetta mál varðar.

Ég verð að segja það alveg eins og er, að ég er ekki sérlega uppnæmur fyrir því þótt hæstv. iðnrh. segi að hann ætli að láta semja frv. Ég hef heyrt margar slíkar yfirlýsingar frá hæstv. ráðh. áður, en efndirnar láta standa allmikið á sér.

Eitt fyrsta verk þessa hæstv. ráðh. var að stöðva lagningu byggðalínu til Norðurlands. Það var eitt fyrsta verk þessa ráðh. að gera það, með þeitn afleiðingum að ráðist var í að flýta Kröfluvirkjun og af því hafa hlotist vandkvæði sem allir þekkja. Skv. þeim lögum, sem sett voru um Kröfluvirkjun á sínum tíma, þurfti hún ekki að koma í gagnið fyrr en 1978 ef byggðalínan hefði verið lögð með þeim hraða sem áætlað var. En það var stöðvað af hæstv. iðnrh.

Hæstv. iðnrh. hefur stöðvað æðimargt fleira.

Hér var starfandi um alllangt skeið n. sérfræðinga sem hingað kom á vegum Sameinuðu þjóðanna til að undirbúa gerð iðnþróunaráætlunar fyrir Ísland. Það var mjög merk vinna sem þarna var unnin, og ég beitti mér fyrir því, að sett var upp sérstök deild í tengslum við iðnrn. til þess að vinna úr þessum efniviði svo að hægt væri að leggja á ráðin um skynsamlega og skipulega iðnþróun. Þessi stofnun hefur verið lögð niður af núv. hæstv. iðnrh., hún hefur verið lögð niður og sú mikla vinna, sem unnin var, er látin rykfalla.

Ég kom einnig á laggirnar gosefnahópi sem m.a. var settur á laggirnar vegna þess að kannanir á því sviði höfðu verið að nokkru leyti í höndum erlends auðhrings sem hafði notað okkur íslendinga á mjög undarlegan hátt í viðskiptum sínum í Evrópu. Þessi auðhringur þóttist hafa áhuga á því að. íslendingar hæfu framleiðslu á afurðum úr perlusteini. Þessi auðhringur hafði áður haft viðskipti við Grikkland á þessu sviði, en grikkir óskuðu hærri greiðslu fyrir hráefnið heldur en auðhringurinn hafði greitt. Þess vegna tók auðhringurinn upp viðræður við íslendinga. En þegar búið var að sannfæra grikki um, að auðhringurinn ætti kost á að ná góðum kjörum á Íslandi, þá lækkuðu grikkir hugmyndir sínar um greiðslur með þeim afleiðingum að auðhringurinn sendi okkur bréf og taldi að perlusteinsvinnsla á Íslandi væri algerlega út í hött. Ég beitti mér fyrir því að íslenskir sérfræðingar voru settir í að kanna þetta mál og fleiri gosefni, og það kom í ljós að perlusteinn var ákaflega dýrmætt hráefni sem hægt væri að nýta á margan hátt, og ég sá í sjónvarpi í gærkvöldi að það er búið að setja upp sýningu í sambandi við það. En þessi hópur, sem ég setti á laggirnar, var lagður niður af hæstv. ráðh.

Það er æðimargt fleira sem hæstv. iðnrh. hefur ekki komið í verk. Ég lagði hér fram á sínum tíma frv. um Iðntæknistofnun sem er ákaflega mikilvæg fyrir iðnþróun á Íslandi og forustumenn iðnaðarins höfðu mikinn áhuga á. Hæstv. iðnrh. sagðist ætla að flytja þetta frv. aftur eitthvað breytt, en það eru liðin tvö ár og ekkert slíkt frv. hefur séð dagsins ljós. Ég held því ekki að það sé nein ástæða til þess fyrir alþm. að bíða í auðmýkt eftir því að hæstv. ráðh. komi hér fram einhverjum frv. Það hefur komið í ljós að það er ansi djúpt á þeim.

Það frv., sem hér liggur fyrir, er vel unnið. Það er unnið af sérfróðum mönnum. Í því eru ákaflega skýrar meginlinur og þarf enginn maður að velta neinum hlutum fyrir sér í sambandi við það lengur. Þess vegna legg ég enn áherslu á það, sem ég sagði í upphafi, að ég bið hæstv. forseta um að fylgjast vel með því að iðnn. starfi að þessu máli á eðlilegan hátt og skili fljótlega áliti, því þarna er ekkert sem þarf að athuga lengur, aðeins vita hver er afstaða þm.