11.11.1976
Sameinað þing: 18. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 604 í B-deild Alþingistíðinda. (383)
33. mál, framkvæmd skattalaga
Flm. (Steingrímur Hermannason):
Herra forseti. Á þskj. 33 hef ég leyft mér að leggja fram till. til þál. um rannsókn á framkvæmd skattalaga. Tillgr. er orðuð svo:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram rannsókn á framkvæmd skattalaga í hinum ýmsu skattaumdæmum landsins.
Að lokinni þeirri rannsókn verði, ef ástæða þykir til, settar reglur sem stuðli að samræmingu í framkvæmd skattalaga, svo og um skyldu skattstjóra, bæði gagnvart ríkisvaldinu og skattgreiðendum. Verki þessu skal lokið fyrir álagningu skatta árið 1977 og niðurstöður birtar.“
Miklar umr. hafa orðið síðustu mánuðina um skattalögin og framkvæmd þeirra. Ég ætla ekki að gera hér að umr. þær breytingar sem nauðsynlegar eru á skattalögum. Ég legg aðeins ríka áherslu á að þær þurfa margar að verða, og að mínu mati þarf að tryggja að allir menn, sem komnir eru á þann aldur, taki einhvern þátt í kostnaði við sameiginlegar þarfir sveitarfélaga og þjóðarbús.
Hins vegar hefur hvað eftir annað komið fram hjá ýmsum aðilum, sem um þessi mál hafa fjallað, að framkvæmd skattalaga sé ekki siður mikilvæg og nauðsynlegt að tryggja þar samræmingu. M.a. kom þetta fram í stefnuræðu hæstv. forsrh. þar sem hann sagði orðrétt, með leyfi forseta: „Nauðsynlegt er jafnhliða að samræmi sé í framkvæmd skattalaga alls staðar á landinu.“
Það kom einnig mjög berlega fram í svari við fsp., sem hér var flutt fyrir nokkrum dögum, að þarna þarf að gera betur ef vel á að fara. Að vísu kom fram í svari hæstv. fjmrh. að ríkisskattstjóri gerir með tilvitnun til 42. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt vissar tilraunir til þess að samræma framkvæmd skattalaga. En í því sama svari komu einnig fram, með leyfi forseta, eftirfarandi ummæli sem höfð eru eftir ríkisskattstjóra:
„Öll framkvæmd við álagningu tekjuskatts og eignarskatts er í höndum skattstjóra, sbr. ákvæði 37. gr. skattalaga, og á þeirra ábyrgð. Ríkisskattstjóri hefur enga heimild til afskipta af því hvernig hver skattstjóri um sig skipuleggur og vinnur verkefnið. Það getur því verið misjafnt milli skattstjóra hversu ítarlega farið er í einstök atriði og hve mörg og þá hvaða atriði eru afgreidd við útkomu skattskrár og hver á síðara stigi úrvinnslu.“
Eins og ég sagði áðan, ber ríkisskattstjóra skylda til þess samkvæmt 42. gr. skattalaga að beita sér fyrir vissri samræmingu í framkvæmd þeirra hjá hinum ýmsu skattstjórum í skattaumdæmum landsins. Einnig ber fjmrh. samkv. 45. gr. skattalaga að hafa eftirlit með því að skattstjórar, ríkisskattstjóri og ríkisskattanefnd ræki skyldur sínar. Það hefur rétt til að fá sendar framtalsskýrslur og krefja skattstjóra og ríkisskattstjóra um skýringu á öllu því er framkvæmd laga þessa varðar, segir í 45. gr.
Þarna eru því ákvæði sem eiga að stuðla að samræmingu. En þó kemur greinilega fram, eins og ég las áðan, í svari ríkisskattstjóra að samræmið er alls ekki eins mikið og æskilegt væri.
Ég hef reynt að afla mér upplýsinga um atriði sem e.t.v. varpa ljósi á þessa staðreynd. M.a. hef ég fengið hjá ríkisskattstjóra upplýsingar um kærur í hinum ýmsu skattaumdæmum landsins á árunum 1974 og 1975 og eru þær upplýsingar eins og hér segir:
Í Reykjavík voru kærur árið 1975, eða vegna skattárs 1974, 2789, en 1975 3407. Í Reykjaneskjördæmi voru kærur vegna skattárs 1974 1321, en 1818 1975. Á Vesturlandi hef ég eingöngu tölu fyrir 1975, en þá voru kærur 306. Í Vestfjarðakjördæmi voru kærur hvort árið 550. Í Norðurlandskjördæmi vestra voru kærur 164 1974, en 180 1975. Í Norðurlandskjördæmi eystra voru kærur 1974 253, en 318 1975. Á Suðurlandi voru kærur 584 1974, en 596 1975.
Þessar tölur einar út af fyrir sig segja e.t.v. ekki mikið, svo ég hef reiknað þetta í hlutfalli við íbúafjölda. Þá kemur í ljós að kærur í Vestfjarðakjördæmi eru langsamlega hæstar eða u.þ.b. 55 fyrir hverja 1000 íbúa. Næsthæstar eru þær í Reykjaneskjördæmi eða rúmlega 42 fyrir hverja 1000 íbúa, þá í Reykjavík rúmlega 40 fyrir hverja 1000 íbúa, síðan á Suðurlandi 31 fyrir hverja 1000 íbúa, Vesturlandi 21, Norðurlandi vestra 18 og Norðurlandi eystra 14. Frá Austurlandi hef ég ekki fengið upplýsingar.
Ég hef einnig aflað mér upplýsinga um leiðréttingar skatta á grundvelli þessara kæra fyrir árið 1975. Þá kemur í ljós að í Reykjavík var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 35 1/2 millj., en tekjuskattur félaga lækkaður um 15 millj. eða samtals um rúmlega 50 millj. Í Vesturlandsumdæmi var tekjuskattur lækkaður um 14.6 millj. fyrir einstaklinga, en félaga um 6.4 millj, rúmlega. Í Vestfjarðakjördæmi var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um tæplega 13 millj., en tekjuskattur félaga lækkaður um 25.1 millj. Í Norðurlandskjördæmi vestra var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 5.7 millj., en tekjuskattur félaga hækkaður um rúmlega 500 þús. Í Norðurlandskjördæmi eystra var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 71/2 millj., en tekjuskattur félaga hækkaður um 10 millj. Í Austurlandskjördæmi var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 17 millj. rúmlega, en tekjuskattur félaga lækkaður um 1.6 millj. Í Suðurlandsumdæmi var tekjuskattur einstaklinga, þegar Vestmannaeyjar eru teknar með, lækkaður um u.þ.b. 13 millj. og tekjuskattur félaga lækkaður um u.þ.b. 18 millj. að Vestmannaeyjum meðtöldum, en Vestmannaeyjar eru sérstakt skattumdæmi. Í Reykjanesumdæmi var tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 58.3 millj., en tekjuskattur félaga lækkaður um 7.6 millj. Samtals fyrir landið allt er tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 164.5 millj., en tekjuskattur félaga um 63.4 millj.
Þessar tölur einar út af fyrir sig segja ekki heldur alla söguna. Ég hef því einnig lauslega reiknað breyt. út fyrir hverja 1000 íbúa í hinum ýmsu skattaumdæmum landsins. Þá kemur í ljós að í Vestfjarðaumdæmi er lækkun tekjuskatts samtals um 3.8 millj. fyrir hverja 1000 íbúa, þá hef ég tekið saman tekjuskatt einstaklinga og tekjuskatt félaga. Af öðrum kjördæmum er í Reykjavík hins vegar lækkun á tekjusköttum aðeins um 600 þús. fyrir hverja 1000 íbúa. Í Vesturlandsumdæmi er lækkunin 11/2 millj. fyrir hverja 1000 íbúa, í Norðurlandsumdæmi vestra er lækkunin innan við 600 þús. fyrir hverja 1000 íbúa og enn minni í Norðurlandsumdæmi eystra og öðrum kjördæmum, sem ég ætla ekki að lesa hér upp til að stytta mál mitt.
Að meðaltali nemur lækkun á tekjuskatti einstaklinga og félaga um 1 millj. á hverja 1000 íbúa landsins. Vestfjarðakjördæmi er langsamlega hæst með 3.8 millj. lækkun fyrir hverja 1000 íbúa. Vesturlandskjördæmi, Austurlandskjördæmi og Reykjaneskjördæmi koma næst með um það bíl 11/2 millj. fyrir hverja 1000 íbúa.
Mér virðist að þessar tölur sýni ákveðið að framkvæmd skattalaga sé mjög breytileg og lítil samræming á henni á milli hinna ýmsu skattaumdæma landsins. Ég hef fremur kosið að fara með slíkar tölur heldur en að rekja dæmi sem þó eru ákaflega mörg. Dæmi hafa verið nefnd í umr. hér á hv. Alþ. úr Vestfjarðakjördæmi. T.d. hefur verið vakin afhygli á harðorðri kæru og opinberu bréfi Búnaðarsambands strandamanna, þar sem það kærir álagðan tekjuskatt á starfsemi þeirra samtaka. Ég hygg að það muni vera einsdæmi að tekjuskattur sé lagður á slík samtök bænda.
Ég hef ekki heldur rætt neitt um söluskattinn. Ég hef eingöngu snúið mér að tekjuskatti einstaklinga og félaga, en ég hygg að sama megi segja um álagningu söluskatts. Hins vegar eru þær allar upplýsingar töluvert óljósari því kærur vegna söluskattsálagningar berast ekki á einum og sama tíma ársins nokkurn veginn, heldur allt árið og eru því stöðugt að koma inn og sömuleiðis leiðréttingar þar á. Hins vegar eru dæmin um álagningu söluskatts mörg og athyglisverð t.d. í Vestfjarðakjördæmi, sem er langsamlega hæst bæði með kærur og leiðréttingar, eins og ég hef gert grein fyrir. Í Vestfjarðakjördæmi er t.d. nú lagður söluskattur á framtalin hlunnindi, — hlunnindi sem hafa verið talin fram árum saman, — og er söluskatti safnað saman og lagður nú á 5 ár aftur í tímann. Vel má vera að hlunnindi þessi séu söluskattsskyld, og ætla ég alls ekki að ræða um það eða vefengja það, það gera þeir aðilar sem fjalla um kærur. En sú spurning hlýtur sannarlega að vakna, þegar slík hlunnindi hafa verið talin fram ár eftir ár, hvor er sekur, sá sem á að leggja á eða framteljandinn. Þessar tekjur af hlunnindum hafa verið taldar fram og eru með í þeim tekjuskattsstofni, sem á hefur verið lagt. Nú er hins vegar farið til baka yfir 5 ára tímabil og hluti af þessum sama stofni á að greiðast sem söluskattur. Ég held að það liggi nokkuð ljóst fyrir í þessu einfalda dæmi að þar er einhvers staðar veruleg brotalöm á og ástæða fyrir hið opinbera að skoða slíkt mál vandlega.
Ég get nefnt ákaflega svipuð dæmi um söluskatt á greiðasölu sem ávallt hefur verið talin fram og söluskattur greiddur af hráefni til slíkrar greiðasölu. En nú er skyndilega lagður á hár söluskattur 5 ár aftur í tímann, þótt á engan máta hafi framtöl verið vefengd og af þeim áður greiddur tekjuskattur, eins og ég nefndi í sambandi við hlunnindin. Þannig væri hægt að nefna um söluskattsálagningu ótalmörg dæmi sem lýsa hinni furðulegustu framkvæmd og sannfæra mig um að samræming á þessari framkvæmd er ákaflega nauðsynleg.
Hvaða úrbætur er þá hægt að gera í þessu sambandi? 42. gr. skattalaga gerir ráð fyrir því að ríkisskattstjóri hafi þá skyldu að stuðla að samræmingu í framkvæmd skattalaga. Hann hefur hins vegar sagt sjálfur sem svar við fsp. hér á þingi að framkvæmdin sé fyrst og fremst í höndum skattstjóra eða m.ö.o. að heimild hans sé þarna ákaflega takmörkuð. Vel má vera nauðsynlegt að styrkja þessa heimild ríkisskattstjóra verulega, og tel ég að það eigi að athuga ef sú verður niðurstaða sem ég hef fært rök að í þessari framsöguræðu minni.
Ég nefndi það einnig að samkv. 45. gr. skattalaga ber fjmrh. að hafa eftirlit með framkvæmd skattalaga. Sú spurning hlýtur að vakna hvort það eftirlit sé nægilegt, hvort það þurfi ekki að styrkja. En ég get einnig vel trúað því að efla þurfi skattstofurnar sjálfar. Ég geri mér grein fyrir því, að þær eru víða, ef ekki alls staðar, undirmannaðar og geta þá ekki sinnt hlutverki sínu eins og þeir einstaklingar, sem þar starfa, eflaust vilja.
Ég segi einnig í þessari till. að setja skuli reglur um skyldu skattstjóra, bæði gagnvart ríkisvaldinu og skattgreiðendum. Mér virðist allt of oft bera við að skattstjórar og starfsmenn skattstofa líti á sig sem eins konar tollheimtumenn ríkisins, en ekki sem starfsmenn afþjóðar. Þeir eru þar til þess að skipta þeirri byrði, sem við eigum öll að bera af rekstri þjóðarbúsins, sem sanngjarnast á okkur öll, og þeir eru að sjálfsögðu þannig ekki síður þjónar okkar heldur en ópersónulegir þjónar ríkisvaldsins.
Ég held að það þurfi að gera skattstofum kleift að sinna því hlutverki sínu að leiðbeina skattaframteljendum að vissu marki. Ég tek undir það, sem hefur komið fram í umr. um þetta mál, að það er ekki verkefni skattstofa að telja fram fyrir einstaklinginn. En þær eiga að mínu mati að geta leiðbeint einstaklingum sem til þeirra leita. Það er víða erfitt vegna þess hve starfslið er af skornum skammti.
Ég vil að lokum geta þess, að í þessu sambandi má gjarnan hafa í huga, — í sambandi við þann fjölda af kærum og leiðréttingum sem ég hef hér lesið upp, — að víða um landið er aðstaða til þess að kæra miklu lakari heldur en hún er hér á þéttbýlissvæðinu. Hér á þéttbýlissvæðinu hafa menn aðgang að endurskoðendum og öðrum sérfróðum mönnum á sviði skattalaga og framkvæmdar þeirra og geta fengið þar nauðsynlegar leiðbeiningar. Oft ber einnig svo við að póstur með skattframtölum eða álagningu skatta berst svo seint til viðtakanda að jafnvel kærufrestur er útrunninn. Þannig eru það fjölmörg atriði í dreifbýli sem stuðla að því að kærur verða þar raunar færri, þrátt fyrir þann fjölda sem ég nefndi áðan, en annars mundi verða.
Ég vona að mér hafi tekist að færa rök fyrir því hér með tölum, sem eru komnar frá ríkisskattstjóra og verða vonandi ekki hraktar, að framkvæmd skattalaga er mjög ábótavant, mjög breytileg á milli hinna ýmsu skattumdæma landsins. Ég hef kosið að styðjast við þá óánægju sem kemur fram hjá skattgreiðendum í kærum þeirra, og þá staðreynd, sem fram kemur í víðtækum breytingum og leiðréttingum á álögðum sköttum. eins og fram kom í því sem ég las upp áðan. Það er von mín að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, sjái sér fært að afgreiða það skjótt, skoða það vel og Alþingi sendi það síðan ríkisstj. Það er skoðun mín að fjmrn. ásamt ríkisskattstjóra eigi að framkvæma þessa rannsókn. Ég hef lagt til í tillgr. að athugun þessari verði lokið fyrir álagningu skatta árið 1977 og niðurstöður verði birtar, þannig að almenningur geti gert sér grein fyrir staðreyndum þessa máls.
Að loknum þessa hluta umr. legg ég til að till. verði vísað til hv. allshn.