15.11.1976
Neðri deild: 11. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Alþingi, 11. nóv. 1976.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Eyjólfur Sigurðsson prentari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Gylfi Þ. Gíslason,

9. þm. Reykv.“

Eyjólfur Sigurðsson prentari hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa hér í deildinni.

Mér hefur borist annað bréf, svo hljóðandi:

„Til forseta Nd. Alþingis.

Vegna sérstakra anna við skyldustörf get ég ekki tekið sæti Gylfa Þ. Gíslasonar, 9. þm. Reykv., í forföllum hans nú í nóvembermánuði.

Reykjavík, 15. nóv. 1976.

Virðingarfyllst,

Björn Jónsson.“

Að till. forseta var ákveðin ein umr.