16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (417)
245. mál, úrbætur í atvinnumálu á Snæfellsnesi
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Mér þykir leitt að hæstv. sjútvrh. fylgist ekki með því sem gerist hér á Alþ., ekki nægilega vel a.m.k. Ég studdi hann mjög og fékk einn þingmanna sérstakar glósur frá Siglufirði - og er hægt að fletta því upp í Morgunblaðinu sem birti það með stóru letri, — af því að ég studdi hann í því að taka Norglobal því ég taldi það skynsamlega ráðstöfun. En hann metur náttúrlega slíkan stuðning að engu samkv. því sem maður getur dregið af ályktunum hans. Ég tel nefnilega mest um vert að koma afla í vinnslu, þó hann dreifist á ýmsa staði. Þess vegna vil ég vekja athygli á því, að það kann að skapast alvarlegt ástand á loðnuvertíðinni í vetur vegna þess að það hefur ekkert sérstakt verið gert fyrir utan það að koma verksmiðjunni upp í Neskaupstað, sem fór illa í þeim náttúruhamförum sem þar áttu sér stað. Fyrir utan það hefur ekkert sérstakt átak verið gert, jafnvel hamlað á móti. Ég ætla ekki að fara að rekja einstök dæmi hér, en ég gæti þó nefnt þau, um að jafnvel hafi verið hamlað á móti að endurskipuleggja verksmiðju og bæta reksturinn.