16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
250. mál, aðgerðir vegna langvarandi neyðarástands í atvinnumálum á Bíldudal
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er í raun og veru hálfgerð hörmungarsaga sem hefur verið að gerast á Bíldudal s.l. ár, og það kemur mér satt að segja mjög á óvart ef byggðadeild eða Framkvæmdastofnun þarf lengi að vera að velta þessu máli fyrir sér, vegna þess að ég efast um að nokkrum ætti að vera kunnugra um, hvað hefur gerst, hvernig það hefur gerst og hvað ætti að gera til úrbóta, heldur en einmitt Framkvæmdastofnun ríkisins og Byggðasjóði.
Ég ætla ekki að ásaka hæstv. ríkisstj. eða Byggðasjóð fyrir það, að hann hafi ekki veitt fyrirgreiðslu á þennan stað. Ég held að það sé miklu fremur hægt að ásaka fyrir það, að haldið hefur verið óskynsamlega á því uppbyggingarstarfi sem þarna átti að eiga sér stað, þ.e.a.s. það hefur ekki verið unnið skipulega að þeirri uppbyggingu, sem þarna átti að verða, og það sé kannske fremur ásökunarefni heldur en hitt, að fyrirgreiðsla hafi ekki verið veitt. Ég ætla a.m.k. ekki að ásaka fyrir það. En eigi að siður er þetta svo, að 17–20% af íbúum Bíldudals hafa flutt burtu af staðnum og algjört neyðarástand er á þessum stað. Og ég tel það furðulegt, ef byggðadeild eða Framkvæmdastofnun ríkisins þarf að eyða mörgum dögum í að kanna þetta mál og sjá hvað þarna þarf að gera. Ég held að það sé svo augljóst. Það er a.m.k. augljóst fyrir mér. Ég hygg, að það sé augljóst fyrir öllum þm. Vestf., og það er a.m.k. alveg augljóst fyrir öllum íbúum Bíldudals hvað þarna þarf að gera. En ef verður slegið á frest að koma þessu í lag, þá er enginn vafi á því, að sú skriða, sem þegar er farin af stað í fólksflótta frá Bíldudal, heldur áfram og það í auknum mæli, og við því verður að sporna.
Ég tek undir það, sem hér hefur komið fram: Það er nauðsynlegt að bregðast nú þegar við, og ég treysti því og vil beina því til þeirra aðila, sem hér eru inni og hafa áhrif í Framkvæmdastofnun ríkisins, að þeir beiti sér fyrir því að þessu máli verði hraðað. Þeir vita allt um það. Þeir vita hvað þarf að gera. Það er bara að hrinda því af stað, sem hér þarf til að koma, til þess að hjólin geti farið að snúast á þessum stað.
Þetta getur verið dagaspursmál, ég tala nú ekki um viku eða mánaðar, að það gerist að mikill hluti af íbúum á Bíldudal flytjist frá staðnum, því skriðan er þegar komin af stað.