16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

250. mál, aðgerðir vegna langvarandi neyðarástands í atvinnumálum á Bíldudal

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir það, sem kom fram hjá hæstv. forsrh., að fyrirgreiðsla við Bíldudal hefur verið mikil. Hins vegar get ég ekki tekið undir þau ummæli hans, að e.t.v. hafi hún verið óeðlilega mikil. Menn verða að athuga það, að á Bíldudal hefur hvert óhappið rekið annað. Þar hafa fjögur atvinnufyrirtæki orðið gjaldþrota á skömmum tíma og fjármagn er af þeim sökum ekkert til heima fyrir, — bókstaflega ekkert. Það má vitanlega deila um það og raunar væri fróðlegt athugunarefni hvers vegna svo fór. Það má vel vera að ekki hafi áður verið staðið skynsamlega að uppbyggingu þar, en um það er ekki rætt hér nú. En þessi staðreynd leiðir til þess, að ekki var um annað að ræða en að sjá dæmið allt í heild. Það var ekki hægt að gera ráð fyrir meira fjármagni heima fyrir en komið hefur þegar fram.

Ég get ekki samþykkt það, að staðið hafi á fyrirgreiðslu hjá Byggðasjóði. Þar hefur raunar hver till. eftir aðra um aukna fyrirgreiðslu verið samþ. Hins vegar má um það deila, hvort Byggðasjóður hafi átt að leggja áherslu á að aðrir aðilar í hinu fræga kerfi kæmu inn í þetta mál. En það hefur verið gert og talið eðlilegt að aðilar eins og Atvinnuleysistryggingasjóður, sem hefur veitt nokkra aðstoð, bankar, Fiskveiðasjóður o.fl. kæmu inn í þetta á eðlilegan máta. Ég held að sú töf, sem hefur orðið, hafi stafað af því að þessir aðilar hafa ekki viljað líta á það sem hlutskipti sitt að bjarga stað eins og Bíldudal. Ég segi: að bjarga stað, því að staðreyndin er sú, að þar er sveitarsjóður raunar nánast orðinn gjaldþrota. Það má heita að hann sé gjaldþrota. Þar er ekkert fjármagn heima fyrir, og þar hefur verið flótti nú upp á síðkastið, eins og hér hefur komið fram.

Ég tek undir allt sem hefur verið sagt um nauðsyn þess að leysa þetta mál nú. Báturinn er sem betur fer fenginn og kemur líklega til veiða aftur um næstu helgi, og það er einlæg von mín og reyndar trú, að það takist að leysa þann hnút sem nú er á þessu máli, þ.e.a.s. að greiða vinnuskuldir heima fyrir fyrir næstu helgi, þannig að vinnsla geti þar hafist. Hins vegar er þetta náttúrlega kennslubókardæmi um hvernig á í framtíðinni að standa að málefnum staðar sem svipað er komið fyrir eins og Bíldudal, og það þyrfti að athuga.

Ég vona sem sagt að þetta leysist. Ég er hins vegar sammála um það, að framtíð Bíldudals er ekki tryggð fyrr en þangað kemur lítill skuttogari, og það er von mín að svo verði innan tíðar.