16.11.1976
Sameinað þing: 20. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (443)
Mræður utan dagskrár
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Ég átti þess ekki kost að sitja þessa ráðstefnu, en þetta er að sjálfsögðu mikið merkismát og mikið heilbrigðismál og eitt af okkar allra stærstu félagslegu vandamálum.
Vegna þess að hér var minnst á fjárskort þeirra sem að þessum málum vinna, þá langar mig til að vekja athygli á því, að á næstsíðasta þingi flutti ég frv. um tekjustofn til áfengisvarna sem átti að verða á þá lund að greiða 100 kr. af hverri þriggja pela flösku sem seld væri af Áfengisverslun ríkisins. Þetta frv. fékk allsögulega afgreiðslu. Það var samþ. í Ed., en var svo vísað til ríkisstj. frá Nd. Það liggur því í athugun hjá ríkisstj. Ég fyrir mitt leyti held að markaður tekjustofn í þessu skyni sé það mesta öryggi sem við getum fengið fyrir þessar áfengisvarnir til þess að tryggja fjárhag þeirra. Það hefur margsinnis sýnt sig að veiting á fjárl. er erfið. Við höfum haft Gæsluvistarsjóð á annan tug ára a.m.k. og framlög úr Gæsluvistarsjóði hafa hvergi nærri fylgt verðlagi, og enda þótt allmikið hafi verið hækkuð nú síðustu tvö ár sú fjárhæð sem úr Gæsluvistarsjóði kemur til áfengisvarna, þá er fjarri því að það sé nóg.
Eitt af því, sem getið var um í þessu frv., var að það skyldi setja á stofn eins konar slysavarðstofu fyrir bráða áfengissjúklinga. Það álít ég vera eitt af okkar stærstu verkefnum, að koma á eins konar slysavarðstofu þar sem hægt er að taka á móti þeim sem eru í vímu, annaðhvort vegna neyslu áfengis eða fíkniefna. Þetta er í raun og veru sjálfsagður hlutur og nauðsynin er mikil. Slysavarðstofan hér í Reykjavík er gersamlega að kikna undan þessu verkefni, vegna þess að hún neyðist til þess að taka við þessu fólki án þess að vera undir það búin. En það er mitt mat á þessu, að þessi mál yrðu best leyst með því að fá þeim markaðan tekjustofn og áhugafélög fengju það verkefni að sjá um þær fyrirbyggjandi aðgerðir, sem nauðsynlegar eru, og koma á stofn þessari slysavarðstofu sem ég tel algera nauðsyn. Þá á ég von á því, að þegar Vífilsstaðahælið er nú tekið til starfa, þá mundu þessi mál a.m.k. komast á allmiklu betri rekspöl en nú er í dag.