18.11.1976
Sameinað þing: 21. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 18. nóv. 1976.

Steingrímur Hermannsson, 2. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég verð vegna læknisaðgerðar fjarverandi frá þingstörfum um sinn, óska ég hér með eftir því, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Þórðarson skólastjóri, Súgandafirði, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

Til forseta Sþ.“

Ólafur Þórðarson hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili, og býð ég hann velkominn til starfa.