18.11.1976
Sameinað þing: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

40. mál, lagning bundins slitlags á þjóðvegi

Páll Pétursson:

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér er til umr., um lagningu bundins slitlags á þjóðvegi, er, eins og hv. 1. flm. orðaði það, með nokkrum hætti stefnumörkun Alþingis. Þetta er spurning um röðun á verkefnum. Þetta er í mínum huga spurning um forgang. Mér er alveg ljóst að það er ákaflega mikilvægt verkefni sem þarna er lagt til að tekist verði á við, og ég vil ekki gera lítið úr því, það væri gaman ef af þessu gæti orðið. En ég lít svo á að þetta sé framtíðarverkefni sem verði að þoka fyrir öðru sem er enn þá brýnna.

Það var gaman að hlýða á þær ágætu ræður sem hv. flm. eru búnir að halda hér. Höfðu þeir mjög mikið til síns máls báðir tveir, og skal ég ekki gera lítið úr því. Annar þeirra er brautryðjandi í lagningu olíumalar og sjálfsagt okkar langfróðastur um það efni. Og ég vil ekki gera lítið úr því að það séu mikil þægindi og skemmtun að geta ekið á glöðum sumardegi um landið og í hálku á veturna á olíumöl.

Ég er ekki því sammála að við eigum að stefna að því endilega, jafnvel í framtíðinni, að leggja bundið slitlag á allan hringveginn. Það eru fjallavegir á hringveginum sem ég tel að ekki sé skynsamlegt að setja nokkurn tíma á bundið slitlag vegna þess að þar verður í ísingu mjög aukin slysahætta ef um bundið slitlag er að ræða.

Það, sem fyrir mér vakir, og það, sem ég vil láta hafa forgang fram yfir þessi mikilvægu og góðu verkefni, sem eru mjög fjárfrek, er að byggja vegina upp úr snjó og aur, bæði innan héraða og eins á milli byggða, mikilvægar samgönguæðar, eins og t.d. Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði, Vaðlaheiði og margar fleiri. Hér var flutt, var til umr. og afgreiðslu á þinginu fyrir þremur árum frv. til l. um happdrættislán til Norður- og Austurvegar. Það gekk í upphafi nokkuð mikið út á bundið slitlag, þetta frv. En í meðferð þingsins tók það breytingum, og breytingum til bóta þannig að aðaláherslan var nú lögð á að byggja vegina upp og þó með þeim hætti að á mætti setja slitlag í framtíðinni, og það hygg ég að sé einmitt sú rétta stefna. Fyrir þetta happdrættislán hefur verið unnið, að vísu ekki nærri nógu mikið og ekki gengið nógu greiðlega að ná þessum peningum til þeirra verka sem þeir voru ætlaðir, en hafa þó orðið að nokkru gagni nú þegar.

Ég vil taka undir það með hv. þm. Jóni Helgasyni að holurnar eru slæmar og óþægilegt að hristast í þeim. En mér finnst snjórinn miklu verri. Og þó er foraðið verst því að þá er ekki einu sinni hægt að bjarga sér með mokstri þó að veðrið sé kannske gott. Þið hefðuð átt að fara um Vestur-Húnavatnssýslu í fyrravor þegar framleiðslan var gjörsamlega lömuð fyrir aur á vegum. Bændur komu ekki frá sér mjólkinni. Þeir náðu ekki heim fóðurbætinum. Þeir, sem voru næstir verslunarstöðum, náðu honum að vísu með harðræðum heim til sin að nokkru og losnuðu við afurðir, en þá varð verslunarstaðurinn fóðurbætislítill eða fóðurbætislaus. Menn urðu að breyta til um fóðurblöndur, og af þessu varð stórtjón hjá ýmsum bændum.

Ég er sem sagt ekki sammála þeirri stefnumörkun sem farið er fram á í þessari till. Ég vil vekja athygli á annarri till. sem hér er á dagskránni og ég er meðflm. að, 1. flm. er Ingi Tryggvason, en hún er um það að flýta uppbyggingu þjóðvega í snjóahéruðum landsins. Það er einmitt það verkefni sem ég lít svo á að við eigum að beita okkur að fyrst. Án þess þó að ég vilji gera lítið úr mikilvægi hins, að leggja bundna slitlagið, þá held ég að það sé skynsamlegt að láta það bíða.