18.10.1976
Efri deild: 4. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

25. mál, almenn hegningarlög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á almennum hegningarlögum er samið af svokallaðri hegningarlaganefnd sem vinnur að ýmsum breytingum og endurskoðun á ýmsum þáttum hegningarlaga. í þessari hegningarlaganefnd sitja menn sérfróðir í refsiréttarfræðum, og þess vegna er það að ég hef talið rétt að leggja þetta frv, fram eins og það kom frá n., en verð þó að segja að ég persónulega efast um að sumt í því sé til bóta eða mér finnst það a.m.k. orka tvímælis. En veigamestu breytingarnar, sem um er að tefla í þessu frv., eru varðandi sektarákvæði, um þau er fjallað í 4.–6. gr. frv., og í öðru lagi um rangan framburð, sem fjallað er um í 12.–15, gr frv., en auk þess fjallar frv. um nokkrar minni háttar lagfæringar og breytingar sem ég vík aðeins að hér á eftir.

Í 50. gr. hegningarlaganna er kveðið á um hver skuli vera lágmarks- og hámarksupphæð sektar. Segir þar að ekki megi gera manni á hendur lægri sekt en 4 kr. og ekki hærri en 30 þús. kr., nema sérstök lagaheimild sé fyrir því að ákveða sekt hærri eða lægri. Þetta ákvæði hefur staðið óbreytt frá setningu hegningarlaganna 1940, en með lögum nr. 14 frá 1948 var svo fyrir mælt, að þar sem fésektir væru ákveðnar í lögum án tillits til núgildandi verðlags skyldi lágmark þeirra og hámark breytast eftir vísitölu sem kaupgjald sé greitt eftir á hverjum tíma. Þar sem ekki hefur veríð um að ræða samfelldan útreikning á slíkri vísitölu kaupgjalds hefur dómstólum reynst örðugt að reikna út sektarfjárhæðir í samræmi við framangreint ákvæði. Er þess vegna lagt til nú að hegningarlagagr. verði breytt þannig að felld verði niður lágmarkssekt, en hámarkssekt verði 4 millj, kr. Miðast sú fjárhæð við útreikning sem gerður hefur verið á þróun vísitölu vöru og þjónustu frá árinu 1939 til byrjunar nóv. 1975.

Sektarmörk þau, sem greind eru í þessari gr. hegningarlaganna, ákveða ekki einungis sektir sem fjallað er um í hinum almennu hegningarlögum, heldur einnig sektir sem greindar eru í sérrefsilögum og ekki er tilgreint hámark eða lágmark í viðkomandi lögum. Þau refsilög, sem kveða á um tiltekið sektarlágmark eða hámark, halda hins vegar gildi sínu. En ljóst er að þörf er á breytingum á slíkum ákvæðum, sérstaklega í eldri lögum.

Það, sem manni getur dottið í bug í þessu sambandi, er það, hvort sé nauðsynlegt að ákveða hámark sektar í lögum og hvort ekki mætti láta það vera á valdi dómstóla að ákveða viðeigandi sekt hverju sinni, og frá því sjónarmiði hefði getað komið til greina að fella niður hámark sektarinnar alveg eins og lágmark sektarinnar. En það mun vera skoðun refsiréttarfræðinga að það sé varla viðeigandi að hafa þann hátt á, heldur verði að setja í lögum tiltekið hámark fyrir refsingu sem má dæma í. Og ég vil ekki véfengja að það sé rétt, þó að mér sýnist að hitt gæti út af fyrir sig verið skynsamlegt, að fela dómstólunum meira svigrúm í þessu efni. En hvað sem því líður, þá vil ég segja það og beina hví til n., sem fær þetta frv. til meðferðar, að athuga hvort ekki sé rétt að hækka jafnvel þetta hámark frá því sem gert er ráð fyrir í frv., en þér er miðað við frv. eins og það kom frá refsilaganefndinni, eins og ég sagði.

Enn fremur er það svo, að í þessu frv. er lagt til að nokkrar aðrar breyt. verði gerðar á sektarákvæðum hegningarlaganna, svo sem á 49. gr., þar sem lagt er til að heimilað verði að dæma fésekt jafnframt refsivist þegar ákærði hefur aflað sér eða öðrum fjárvinnings með brotinu eða það hefur vakað fyrir honum. Þetta nýmæli tel ég tvímælalaust til bóta.

Í 7. gr. þessa frv. er lagt til að staðfest verði sú dómvenja sem myndast hefur, að sé maður sektaður fyrir háttsemi sem honum sé ósaknæm, þá skuli vararefsing ekki ákveðin.

Í 12. gr. frv, er lagt til að 142. gr. verði breytt þannig að felld verði niður lágmarksrefsing, sem nú er 3 mánuðir, fyrir rangan framburð fyrir rétti eða stjórnvaldi sem heimild hefur til staðfestingar. Sömuleiðis er lagt til að felld verði niður 2. mgr., sem fjallar um aukna refsingu við heitfestri skýrslu. Er nú kveðið á um allt að 8 ára fangelsi fyrir slíkt athæfi.

Breytingar þær, sem lagt er til að gerðar verði á 143., 145. og 148. gr., sem allar fjalla um rangan framburð, eru einungis gerðar til samræmis við þá höfuðbreytingu sem lagt er til að gerð verði á 142. gr. Þau rök eru færð fram fyrir þessari breyt., að hún sé gerð til samræmis við breyt. sem gerðar hafa verið á hinum Norðurlöndunum á samsvarandi refsiákvæði í lögum þeirra landa. Það er að sjálfsögðu æskilegt að samræmi sé sem mest í refsilöggjöf þeirra landa sem eiga jafnmikið saman að sælda og Norðurlöndin. En rétt er að hv. n. taki þetta til athugunar.

Það má segja að aðrar breyt., sem felast í þessu frv., séu minni háttar, og eins og ég drap á áðan, þá geta e.t.v. sumar þeirra orkað tvímælis.

Í 1. gr. er lagt til að niður verði felld nokkur ákvæði, svo sem viðurlög við banni um neyslu áfengis, um mætingar hjá lögreglu fyrir þá sem dæmdir hafa verið fyrir auðgunarbrot, en þá má skylda þá til þess að mæta og láta fylgjast með sér, um að lýsa refsiverða háttsemi sem fólgin er í að valda hættu á sýkingu á kynsjúkdómi. Þetta er allt gert eftir fyrirmynd í erlendum lögum, Norðurlandalögunum, þar sem þessar breyt. hafa verið gerðar. En sjálfsagt geta verið skiptar skoðanir um það, hvort við eigum endilega að breyta þessum ákvæðum á þann veg sem þarna er lagt til.

Í 9. gr. er lagt til að auknir verði möguleikar á því að dæma í fleiri en eina tegund refsinga í sama dómi, svo sem að hafa dóm að hluta óskilorðsbundinn og að hluta skilorðsbundinn, dæma óskilorðsbundna fésekt í tengslum við skilorðsdóm, og þannig almennt að skapa dómstólunum aukna möguleika á vali refsinga. Þarna tel ég vera farið inn á alveg rétta braut.

Þá eru nokkur önnur minni háttar ákvæði sem gerð er grein fyrir í athugasemdunum og ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2, umr, og til hv. allshn.