24.11.1976
Efri deild: 14. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 753 í B-deild Alþingistíðinda. (526)

85. mál, eignarráð yfir landinu

Flm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Nokkur undanfarin þing hafa þm. Alþfl. flutt þáltill. um eignarráð á landinu, gögnum þess og gæðum. Aðalinntak þeirrar till. hefur verið að landið verði allt, gögn þess og gæði, sem og miðin umhverfis landið væru í raun sameign þjóðarinnar allrar og ríkisstj. ætti að láta sérfróða menn semja frv. til l. um þessa eign og þessi eignarráð til samræmis við breytta tíma, breyttan skilning þjóðarinnar á eignarráðum, ýmis ný viðhorf, m.a. vegna algerrar byltingar á sumum sviðum um gildi gagna og gæða landsins.

Þessi tillöguflutningur þm. Alþfl. hefur vakið verulega athygli og sívaxandi umr. manna á meðal, svo að alþjóð er farin að veita þessu máli fyrir sér af allt öðrum sjónarhóli en áður var.

Nú gerum við tilraun til þess að búa þessum sjónarmiðum Alþfl. og annarra, er líkar skoðanir hafa og hann á þessum málum, stakk í frumvarpsformi að lögum og þoka þannig málinu til ákveðnari umr.

Á s.l. vori var haldin á vegum Sameinuðu þjóðanna fjölmenn ráðstefna um búsetu mannsins á jörðinni. Nefndist hún Habitat og fór fram í Vancouver í Kanada. Sóttu ráðstefnu þessa fulltrúar rúmlega 120 þjóða, en ekki sá íslenska ríkisstj. ástæðu til að senda fulltrúa þangað og ber að harma það. Á ráðstefnu þessari voru gerðar víðtækar samþykktir sem yfir 120 þjóðir stóðu að einum rómi. M.a. er þar kafli um landið, og er athyglisvert fyrir íslenska þjóð að kynnast efni hans. Þar er skemmst frá að segja, að ráðstefnan varð einróma sammála um stefnu varðandi landið sem er mjög í sama anda og till. Alþfl. um eignarráð á landi, gögnum þess og gæðum, svo sem hér skal sýnt í þýðingu nokkurra atriða úr samþykktinni.

Í inngangsorðunum stendur t.d.:

„Félagslegt réttlæti, endurnýjun byggðar (borga) og framþróun, sem eru skilyrði fyrir mannsæmandi húsnæði og heilsusamlegu umhverfi fólksins, nást því aðeins að landið sé notað í þágu þjóðfélagsheildarinnar.“

Og síðan komu tölusettar samþykktir og skulu hér 5 nefndar.

1) „Landið er takmörkuð auðlind og meðferð þess á að vera háð opinberu eftirliti eða stjórn í þágu alþjóðar.“

2) „Breytingar á landnotum, sérstaklega frá landbúnaði til þéttbýlis, eiga að vera háðar opinberu eftirliti og reglum.“

3) „Óverðugan hagnað, sem myndast af því að land hækkar í verði vegna breyttra landnota, vegna opinberra framkvæmda eða ákvarðana eða vegna almenns vaxtar samfélagsins, skulu opinherir aðilar (þjóðfélagið) geta endurheimt, nema aðstæður kalli á aðrar frekari aðgerðir, svo sem breytta eignaraðild eða upptöku lands.“

4) „Tímabundinni eða varanlegri þjóðareign skal beita þegar nauðsynlegt er til að tryggja, stjórna og vernda land sem þarf fyrir vöxt þéttbýlissvæða, einnig til framkvæmdar á almennum umbótum í borgum og sveitum til að tryggja almenna þróun hagkvæma þjóðfélaginu.“

5) „Eignarréttarformi liðins tíma bera að breyta til samræmis við síbreytilegar þarfir þjóðfélagsins, svo að það sé hagstætt þjóðfélagsheildinni.“

Af þessum tilvitnunum má ljóst vera að þær skoðanir ryðja sér nú mjög til rúms hvarvetna að taka þurfi eignarráð á landi, gögnum þess og gæðum, til ítarlegrar endurskoðunar og umbreytinga.

Það er ekki viðfelldin staðreynd að fósturjörðin sé á braskhrakningi. Svo er þó raunin í dag. Hitaveituréttindi, veiðiréttur, sumarbústaðalönd, lóðir og lendur í og við þéttbýli eru eftirsótt verðmæti, svo að engu hófi sætir í kaupum og sölum. Með frv. því, sem hér er flutt, er lagt til að þessi brask- og verðbólguhvati sé frá einstaklingunum tekinn alfarið með því að þessi verðmæti séu gerð að sameign þjóðarinnar, þannig að ekki verði framar okrað á hitaveituréttindum, góðar bújarðir fari ekki úr búskaparnotum vegna gífurverðs, sumarbústaðalönd fáist á sanngjörnum kjörum fyrir þéttbýlisbúa er þess óska og sveitarfélög þurfi ekki framar að kaupa sér „lífsrúm“ á okurverði né lax- og silungsveiðimenn að sæta afarkostum til slíkra veiða.

Ef menn vilja athuga þetta frv., þá munu þeir fljótt átta sig á að það er eitt höfuðmarkmið að þau gögn og gæði landsins, sem samfélagið þarf til sinna nota og almenningur verður að leggja fé til að nýta og nota, — það er hugsun þeirra, sem að frv. standa, að slík gögn og gæði landsins séu eign alþjóðar. Tímar hafa breyst ákaflega mikið frá því sem áður var og hugmyndir manna um eignarráð. Það hafa komið verðmæti sem við varla vissum af fyrr í landinu, og vil ég þar fyrst og fremst nefna hitaréttindin, virkjunarréttindin, síðan lóðir og lendur í sambandi við þéttbýliskjarna, jafnvel sumarbústaði, og nú upp á síðkastið er veiðirétturinn orðinn ákaflega eftirsóttur. Þetta hefur orðið til þess að á þá, sem eiga landið eða telja sig eiga það, eins og hefur verið yfirleitt með jarðeigendur, hefur verið sótt af þeim, sem munar í þessi réttindi, og þeim boðið oft uppsprengt verð fyrir þetta land og landeigendurnir ekki staðist það að selja jarðir sínar á þessu háa verðlagi. Þannig hefur myndast, eins og ég sagði áðan, verðbólguhvati í þessum eignarráðum. Það er farið að selja veiðijarðir með það eitt fyrir augum að veiðirétturinn komist á hendur þeirra sem gjarnan vilja nota hann sér til skemmtunar og afþreyingar, en ekki hugsað um að þá fer kannske jörðin um leið í eyði sem góð bújörð. Sama má segja um hitaréttindin að nokkru leyti og þéttbýlismyndanirnar í kringum kaupstaði, eins og ég vék að áðan.

Annað er það sem ég veit ekki hvort menn hafa veitt athygli, en ég vil benda á, að í 3. gr. frv. stendur: „Þrátt fyrir 1. gr. laga þessara skal bændum frjálst, ef og meðan þeir svo kjósa, að eiga jarðir til eigin búrekstrar.“ M.ö.o.: bændur, sem vilja eiga jarðir til eigin búrekstrar það er allt í lagi frá okkar sjónarmiði með það. En þegar þeir eða einhverjir aðrir eru farnir að eiga jarðirnar og halda þeim þannig kannske úr byggð, þá er komið annað hljóð í strokkinn.

Og nú ætla ég að víkja að ýmsum slíkum málum, vegna þess að stundum hefur mér fundist, þvert ofan í það sem ég átti von á, að í hópi bænda ættu þessar hugmyndir um eignarráð yfir landinu, gögnum þess og gæðum, einkennilega mikla andstöðu, þó að þáltill., eins og hún var hugsuð áður, og frv., eins og það er hugsað nú, ættu á ýmsa lund að vera bændum til hagræðis. Í þeirri sveit, sem ég er fæddur og uppalinn í, er nú svo komið, þó að það sé þéttbýlissveit og ágæt sveit til búskapar, að þar eru jarðir innan um sem eru að leggjast í eyði vegna þess að eigendurnir eru hættir búskap og erfingjar fyrrverandi bónda koma sér ekki saman um að selja þessar jarðir. Síðan fara þær í vafasama ábúð ábúanda sem hirðir ekki eins vel um jörðina og áður var og jarðirnar drabbast niður. Undir þennan leka tel ég og við, sem stöndum að þessu frv., að mætti t.d. setja með þessu lagaákvæði, að því aðeins megi bændur eiga sinar jarðir að þeir stundi á þeim eigin búrekstur. Þetta þýðir það að erfingjar, sem eru kannske fluttir í kaupstað, geti ekki haldið jörðum í sveit og hindrað þannig búrekstur á þeim, og ekki heldur menn sem eru búsettir í kaupstað og langar til þess að eiga eyðijörð, þeir geti ekki heldur átt jarðir til þess að halda þeim þannig úr búrekstri.

Stundum gerast skrýtnir hlutir. Hér hafa verið flutt á Alþ. og samþ. nýlega lög um jarðir eða jarðakaup, og þá var því haldið fram, ef ég man rétt, að ýmislegt í þeim lögum ætti að koma til móts við þær hugsanir sem ég var að rekja áðan, að ekki yrði auðvelt að láta jarðir fara í brask. En alveg nýlegt dæmi hefur gerst sem við höfum lesíð um í blöðunum undanfarna daga. Óskabarn þjóðarinnar, Eimskipafélag Íslands, kaupir jörð uppi í Borgarfirði undir sumarbústaði á 35 millj. kr. Kunnugir segja mér að hefði þessi jörð gengið kaupum og sölum milli bænda til búrekstrar, þá væri verðið með þeim húsakosti, sem á henni er þó, varla meira en 5–8 millj. Fimmfalt verð er gefið fyrir jörðina af óskabarni þjóðarinnar og jörðin lögð í eyði sem bújörð. Nú skal ég ekki leggja dóm á það hvort hún hafi verið sérstaklega vel fallin til búskapar, en þó hygg ég það því að hún er í blómlegri sveit. Hér er hins vegar lagt til að um sumarbústaðalönd annist einmitt ríkið, skipuleggi slík lönd og sjái um að kaupstaðarbúar fái heppileg landssvæði undir sumarbústaðina, en ekki verði slík eftirsókn til þess að okurverð myndist á jörðunum.

Undanfarið hafa þessar hugmyndir okkar mætt ýmiss konar gagnrýni sem mér hefur þótt athyglisvert að hlusta á, og til sums af því hef ég einmitt tekið að nokkru leyti tillit við samningu þessa frv. M.a. hefur það verið gagnrýnt, eins og við í rann og veru gerðum ráð fyrir í upphafi, að veiðirétturinn yrði alfarið tekinn og settur undir ríkiseign. Þess vegna er í þessu frv. tekið tillit til þess að sumir, sem keypt hafa veiðijarðir, hafa vafalaust gert það einmitt vegna veiðiréttarins, og þá væri ekki óeðlilegt að slíkir eigendur fengju nokkurn umþóttunartíma til þess að njóta um skeið ánægju og arðs af þessum kaupum sínum, en þó skyldi markið vera, þegar til lengdar lætur, að þessi eign verði alþjóðareign. Um þetta er fjallað m.a. í 6. gr. frv., eins og þm. hafa vafalaust kynnt sér. E.t.v. kann sumum að þykja að fresturinn sé óhæfilega langur. En þetta frv. er ekki hugsað sem skyndiáhlaup um þessa breytingu, heldur er fyrst og fremst verið að benda á hvernig rétt væri að haga þessum málum.þegar til lengdar lætur.

Sama er að segja um t.d. 11. gr. þar sem er gengið út frá því að fyrir lóðir og lendur, sem eru í einkaeign þegar þetta frv. kynni að verða að lögum, verði bætt af viðkomandi sveitarfélagi, en þó eru settar á það ýmsar hömlur, þannig að t.d. verðbólgugróði eigi að reiknast frá að verulegu leyti og sveitarfélögum ekki bundinn sá baggi að greiða þetta undireins út, eins og kynni að verða gerð athugasemd um gegn þessu, heldur er tekin upp í 2. mgr. 11. gr. eins konar bótaháttur sem samvinnufélögin hafa notað varðandi útgreiðslu á stofnsjóði.

Ég hef á undanförnum þingum mælt töluvert oft fyrir þessum hugmyndum og ég ætla þess vegna ekki að vera langorður að þessu sinni, vonast eftir að um þessi mál verði nokkur umr. og ég geti komið inn á hana seinna. En mig langar að benda hv. þingheimi á að í Morgunblaðinu sunnudaginn 21. nóv. er grein eftir Jón Hjartarson, sem er auðsjáanlega rituð út frá sjónarmiði stangveiðimanna, og þar gefur hann þær upplýsingar að margar bestu veiðiár landsins séu nú svo umsetnar af útlendingum og komnar á þeirra snæri að meira og minna leyti, að ég get ekki stillt mig um að lofa þm. að hlýða á þessa upptalningu. Hann segir svo:

„Laxá í Kjós: Í þessari á veiða aðallega útlendingar, en Íslendingar fá leyfi sem losna eða ganga ekki út.

Laxá í Leirársveit: Þessi á, sem bændur leigja út sjálfir, er öll seld útlendingum. Íslendingar, sem höfðu eina stöng í ánni, buðust til að ganga inn í hæsta boð útlendinga, en misstu stöngina samt.

Grímsá: Bændur hafa sjálfir afhent fyrirtækinu „Fish and Game“ í Bandaríkjunum söluumboð frá 26. júní til 14. ágúst.

Kjarrá: Kjarrá í Kjarrárdal, fram á heiði, leigðu bændur svisslendingum.

Norðurá: Þessi á er seld útlendingum frá 1. júlí til 6. ágúst.

Langá á Mýrum: Í þessari á fá nær eingöngu útlendingar veiðileyfi í júní, júlí og ágúst, nema eitthvað hafi brugðist.

Hítará: Þessi á er leigð fyrir ameríkana sem nota ána.

Haffjarðará: Þessi á er seld föstum erlendum viðskiptavinum ár eftir ár, svo sem enska veitingamanninum Forte.

Straumfjarðará: Þessi á er dæmigerð útlendingaá. Íslendingar fyrst og síðast, útlendingar þegar einhver veiði er.

Laxá í Dölum: Í þessari á er niðurlæging íslendinga algjör. Þeir eru bannaðir við ána. Víðidalsá: Þessi á er leigð af íslendingum sem hafa fasta erlenda víðskiptavini frá 26. júní fram í ágúst.

Vatnsdalsá: Þessa á hefur John Ashley haft frá 1964 og selt veiðileyfi hæði innanlands og utan, án heimildar til atvinnurekstrar hér á landi.

Laxá í Aðaldal: Þessi á er leigð útlendingum

fyrir löndum þeirra jarða sem bóndinn í Nesi hefur umboð fyrir.

Hofsá: Hofsá í Vopnafirði hefur McDonald Booth rekið eins og fyrirtæki fyrir útlenda veiðimenn í mörg ár.

Sog: Í þessari á hefur besti tíminn í júlí og ágúst verði leigður frönskum veiðimönnum fyrir landi Alviðru.“

Það er svo kapítuli út af fyrir sig, sem hér verður ekki ræddur, hvernig gjaldeyrisskil hafa verið á þessu öllu saman. En ég held að m.a. þessi lesning ætti að geta vakið okkur til umhugsunar um að þessi mál eru í ólestri.

Ég get ekki svo við þessar veiðiár skilíð að benda ekki á, að hyggju okkar flm. fyndist okkur eðlilegra að þó að veiðirétturinn væri eign alþjóðar, þá væri hann falinn til umráða t.d. sveitarfélögum þeim, sem eiga þar landayfirráð nálægt, eða eigendum jarðanna þar sem árnar renna um, en þetta sé gegn ákveðnu gjaldi sem síðar renni til aukningar fiskræktar í ánum. Sömuleiðis er hér mætt því, sem ég þekki persónulega til, að til eru þeir einstaklingar hér á landi sem hafa sýnt veiðimálum einstaka aðgæslu og nærfærni og áhuga. Mér finnst ekkert við það að athuga að þeir fái að taka veiðirétt á leigu eins og sveitarfélög og sameignarfélög önnur, en að jörðin, sem þessi veiðiréttur nú heyrir undir, sé eign ríkisins og hægt sé að selja einhverjum áhugasömum bónda það á erfðafestu til búrekstrar eða taka þau lönd, sem álitleg þykja, undir sumarbústaði ef ekki þykir henta að búa á þeim.

Enn vil ég vekja athygli á því, að hér er enn afdráttarlausar tekið fram en áður hefur verið gert að engir, hvorki sveitarfélög, einstaklingar né upprekstrarfélög, geti átt afréttir, heldur séu þeir sameign þjóðarinnar. Hins vegar skuli sveitarfélög og upprekstrarfélög hafa sama notarétt, þ.e.a.s. beitarrétt á afréttunum og verið hefur. Þetta þykir okkur hlýða að taka afdráttarlaust fram, ef hægt væri að setja undir þann leka að mörg sveitarfélög standa í deilum við ríkið um þennan yfirráða- og eignarrétt. Í fyrravetur tjáði mér einn af héraðsdómurum landsins að það væru a.m.k. 15 mál fyrir héraðsdómstólum og hæstarétti um slík deiluefni.

Undanfarið, þegar við höfum mælt fyrir þessari ályktunartillögu, sem áður hefur verið, nú frv., þá hef ég stundum furðað mig á andstöðu nokkurra þm. sem ég hef ekki átt von á að væru andstæðir þjóðareign á landinu. Nú sé ég að hér hefur verið lagt fram í dag frv. til stjórnarskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, 17. júní 1944, og eru flm. þm. úr hópi Alþb. Ég fagna því að bær skoðanir, sem þetta frv. er byggt á, fara mjög í sama horf og þáltill. okkar undanfarið hefur verið í og núverandi frv. hefur verið sniðið eftir. Ég hjó aðeins eftir einu sem milli ber, svona í fljótu bragði. Þeir eru með það að hitaveituréttindin skuli ekki vera í eign jarðeigenda nema 100 m niður, og einmitt það var áður í þáltill. okkar. Nú ætlaði ég að vera ofurlítið meira sanngjarn kannske gagnvart landeigendum og nefndi 200 m. En það verður áhyggilega ekki ágreininesefni á milli flm. þessara frv. að minni hyggju.

Ég ætla ekki að lengja þessar umr. að svo stöddu meir. Ég er ekki alveg öruggur um undir hvaða n. þetta ætti helst að lúta. Hér er komið inn á fjárhag, hér er komið inn á landbúnað og fleira það væri kannske skynsamlegt að vísa því til allshn. (Forseti: Já, ég held það.) Ég legg þá til að að lokinni 1. umr. verði frv. þessu vísað til allshn.