29.11.1976
Neðri deild: 15. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (572)
99. mál, tímabundið vörugjald
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Virðulegi forseti. Ég get verið sammála síðustu tveimur ræðumönnum um ýmislegt sem þeir hafa sagt varðandi það gjald sem hér er til umr. Ég held hins vegar að það væri mjög óskynsamlegt fyrir okkur að fella það niður á næsta ári og láta þar með lönd og leið hvort tekjur ríkissjóðs nægi til þess að standa undir þeim útgjöldum sem áformuð eru. Eins og hér hefur komið fram, er í endurskoðun í fjmrn. og ég vænti að innan örfárra daga sjái þm. hér á borðum sínum frv. til l. um breyt. á l. um tekjuskatt og eignarskatt ásamt frv. til l. um breyt. á l. um tollskrá. Hér er um að ræða endurskoðun sem undir vissum kringumstæðum þýðir tekjutap fyrir ríkissjóð, eins og ég vék að áðan, en áfram verður skoðuð sú hlið málsins, þ.e.a.s. tekjuöflun fyrir ríkissjóð, í sambandi við aðflutningsgjöld og þá að sjálfsögðu með það sjónarmið fyrir augum að það bráðabirgðagjald, sem hér er tekið, falli niður.
Ég er enn sömu skoðunar og ég var þegar þetta gjald var sett á, að hér væri um að ræða tímabundið gjald. Það getur að sjálfsögðu enginn fjmrh. lýst því yfir að það falli niður. Það fer að sjálfsögðu eftir vilja Alþ. hverju sinni hvernig tekjuöflun ríkisins er háttað. Númer eitt held ég að við getum verið allir sammála um það, að við verðum að afla ríkissjóði þeirra tekna að jafnvægi sé í ríkisbúskapnum, þess krefst það efnahagsástand sem við höfum haft um skeið. Og ég held að það væri mjög óráðlegt ef við féllum frá þeirri stefnu sem hefur verið í sambandi við jöfnuð á ríkisfjármálunum. Vonandi komumst við frá þeim vandamálum og getum horft fram til þess tíma að slík bráðabirgðaskattlagning þurfi ekki að vera. Hins vegar liggur það ljóst fyrir, að með einum eða öðrum hætti verður að afla ríkissjóði tekna. En ég er sammála því, að það á ekki að gera með bráðabirgðatekjuöflun. Það á heldur að reyna að koma því þannig fyrir að um eðlilega skattlagningu og sanngjarna geti verið um að ræða.
Varðandi það, sem hv. 2. þm. Austurl. sagði um 1. gr. frv., þá held ég að það fari ekkert á milli mála að það er aðeins verið að breyta þar 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna, þannig að allt annað í lagagreininni, eins og hún gildir í dag, stendur óbreytt þar til Alþ. hefur ákveðið annað, annaðhvort með samþykkt frv. um breytta tollskrá eða að þingið við meðferð þessa máls breyti þeim vöruflokkum sem í greininni standa. En ég ítreka að hér er aðeins verið að breyta einum málslið, þeim málslið sem ákvað tímasetningu vörugjaldsins. Ég bið menn að misskilja ekki 1. gr. frv.