29.11.1976
Neðri deild: 15. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (578)
78. mál, Iðntæknistofnun Íslands
Flm. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Þegar ný ríkisstj. var mynduð 1971, þar sem ég tók m.a. við störfum iðnrh., var það fyrsta verkefni mitt að kanna að hverjum verkefnum væri verið að vinna innan rn. í þágu iðnaðarins. Ég reyndi að hafa þá könnun jákvæða, þótt skoðanir mínar og fyrirrennara míns væru æðiólíkar, vildi nýta allt það, sem ég taldi geta orðið til gagns, eða sveigja það inn á brautir, sem féllu nær skoðunum mínum og hinnar nýju ríkisstj. en fyrirrennara míns. Ég minnist þess ekki að ég hafi orðið fyrir því ámæli að stöðva framkvæmdir af einhverju ótilgreindu pólitísku ofstæki.
Ég nefni þetta vegna þess að eftirmaður minn, hæstv. ráðh. Gunnar Thoroddsen, hefur haft uppi þveröfug viðbrögð, stöðvað hinar mikilvægustu framkvæmdir án skýringa og að því er mér virðist einvörðungu af pólitísku ofstæki. Mikilvægasta verkefnið, sem var í undirbúningi í iðnrn. þegar ég hóf störf þar, var undirbúningur þess að samin yrði iðnþróunaráætlun með tilstyrk Sameinuðu þjóðanna, annars vegar um iðnþróun í landinu, hins vegar um viðskipta- og verslunarmál í þágu útflutningsiðnaðar. Viðreisnarstjórnin hafði snúið sér til Sameinuðu þjóðanna með ósk um aðstoð við slíka áætlunargerð eftir hrun viðreisnarstefnunnar 1967-1968. Það hrun bitnaði ekki síst á íslenskum iðnaði, dró úr framleiðslu hans og sýndi hvað innviðir þessarar atvinnugreinar voru veikir. Sú reynsla var svo alvarleg að engum gat dulist að aðild Íslands að EFTA, sem viðreisnarstjórnin hafði beitt sér fyrir, gæti tortímt íslenskum iðnaði að fullu ef ekki yrði gripið til umfangsmikilla og skjótra ráðstafana.
Sérfræðingar stofnunar Sameinuðu þjóðanna tóku til starfa ásamt íslenskum sérfræðingum um svipað leyti og vinstri stjórnin tók við. Þeir aðilar, sem fjölluðu um iðnþróun, störfuðu í sambandi við Iðnþróunarstofnun Íslands, en þeir, sem fjölluðu um útflutning iðnaðarvarnings, í sambandi við Í Útflutningsmiðstöð iðnaðarins.
Það varð ljóst í upphafi að viðfangsefnin voru mjög stórfelld og að koma þyrfti í verk byltingarkenndum breytingum ef íslenskur iðnaður ætti að halda velli og sækja fram í slíkri samkeppni.
Þróun iðnaðar á Íslandi hafði mótast af tollvernd og innflutningshöftum, þannig að rekstrarskilyrði hans voru óeðlilega hagkvæm og hafði það bitnað alvarlega á framleiðni. Framleiðni íslensks iðnaðar var svo lág 1971 að afköst hans námu á ýmsum sviðum 2/3 af afköstum þróaðs verksmiðjuiðnaðar og á sumum sviðum aðeins helmingi. Orsakirnar voru fyrst og fremst fjölbreytni framleiðslutegunda fyrirtækja og ófullkomnar stjórnunaraðgerðir innan þeirra.
Jafnhliða þessum hrikalegu veilum blasti sú staðreynd við, að iðnaðurinn var sú atvinnugrein sem tryggja þurfti vaxandi þjóð verkefni. Á vinnumarkað bætast nú árlega um 2000 manna. Landbúnaðurinn tekur ekki við þeirri fjölgun og ekki verður hún heldur nýtt til þess að draga aukinn fiskafla úr sjó, þegar ofveiði er háskalegasti vandinn sem við eigum við að stríða. því verða iðnaður og þjónustustarfsemi að taka við fjölguninni allri og vafalaust meira en henni. Ég vil þó taka það skýrt fram, að ég er ekki að lýsa þessari lausn sem neinu neyðarúrræði, heldur þróun sem ég tel óhjákvæmilega ef íslendingar ætla að sanna í verki að þeir geti verið efnahagslega sjálfstæðir, haldið til jafns við aðra í atvinnuöryggi og lífskjörum eða gert betur.
Þessar staðreyndir hafa lengi blasað við og stjórnarvöld hafa verið ákaflega lengi að átta sig á þeim. Kannanir, sem gerðar voru á áratugnum 1951–1960, sýndu að hver fjárfest króna í landbúnaði var rúm 11 ár að skila sér í auknum tekjum. Hliðstæð endurskil voru 21/2 ár í fiskiðnaði og 31/2 ár í almennum iðnaði, en það þykir allgott hlutfall á alþjóðlegan mælikvarða. Fjárfestingin á þessum áratug var hins vegar 115 þús. kr. á mann á ári í landbúnaði, en aðeins 6 þús. kr. í verksmiðjuiðnaði öðrum en fiskiðnaði. Og þessi vanhugsaða og skammsýna mismunun heldur enn áfram. Sama máli gegnir um rekstrarlán. Þegar ég varð iðnrh. höfðu sjávarútvegur og landbúnaður lengi búið við fastar lögbundnar reglur um rekstrarlán sín. En engin slík lög höfðu verið sett um iðnað, Ég lagði fyrir Alþ. frv. um jafnrétti iðnaðar á þessu sviði, og samþykkti Alþ. lög um veðtryggingu iðnrekstrarlána sem tryggði iðnaðinum grundvallarjafnrétti á þessum vettvangi. Framkvæmdin varð hins vegar mjög þröng í upphafi af hálfu Seðlabankans og var borið við óvissu um það hvað framkvæmdin kynni að hafa í för með sér. En jafnframt fylgdi loforð um að framkvæmdin skyldi rýmkuð. Ég held, að þær breytingar á framkvæmdinni hafi orðið allt of litlar, og hef engar spurnir af því að núv. hæstv. iðnrh. hafi reynt að fylgja eftir þessu stórhagsmunamáli iðnaðarins.
Af hálfu iðnrn. var að sjálfsögðu fylgst vandlega með störfum hinna erlendu og íslensku sérfræðinga, sem unnu að langtímaáætlunum, og gerðar ráðstafanir til þess að þróunin yrði í þá átt, að hún yrði samstiga sérfræðingunum. Stofnaðar voru iðngreinanefndir af ráðuneyti, Iðnþróunarsjóði og samtökum iðnaðarins, fulltrúum launamanna og atvinnurekenda, til þess að fjalla um samkeppnisstöðu nokkurra iðngreina og gera till. um ráðstafanir til þess að efla þær. Náðu þessar aðgerðir til prjónaiðnaðar, fataiðnaðar, tréiðnaðar, skipasmíðaiðnaðar, trésmiðaiðnaðar og málmiðnaðar. Varð mjög verulegur árangur af þessum störfum, sem birtist m.a. í stóraukinni framleiðni í ýmsum fyrirtækjum. Ýmsar ráðstafanir aðrar og af mörgum toga voru gerðar til þess að treysta samkeppnisstöðu útflutningsiðnaðarins, m.a. endurgreiddur hluti tolls og söluskatts í kostnaðarverði iðnaðarvarnings, sem sendur var til útflutnings, og tollskrá breytt mjög verulega í þágu iðnaðarins. Reynt var í heild að halda þannig á málum að hægt væri að nýta á sem skjótastan og áhrifamestan hátt till. hinna erlendu og íslensku sérfræðinga um iðnþróunaráætlun. Skýrslur þessar reyndust vera hin gagnmerkustu rit og var vissulega mikill fengur að þeim til þess að leiðbeina ríkisvaldi, stofnunum og samtökum iðnaðarins og einstökum iðngreinum um nauðsynlegar aðgerðir. Þeir einstaklingar, sem unnu að þessum verkefnum, störfuðu af mikilli kostgæfni og samviskusemi og sýndu næman skilning á íslenskum aðstæðum og vandamálum.
Nokkur mismunur var á tillögugerð þeirra tveggja aðila sem störfuðu annars vegar að framleiðsluþróun og hins vegar að sölu. Sérfræðingarnir, sem fjölluðu um viðskipta- og verslunarmál, gerðu ráð fyrir því að markmið iðnþróunar væru fyrst og fremst aukning þjóðarframleiðslu og þjóðarauðs og að öflug útflutningsstarfsemi í iðnaði væri burðarás iðnþróunar. Þeir lögðu því megináherslu á aðgerðir til þess að efla útflutningsiðnað, markaðsleit og sölustarfsemi. Til þess að ná árangri í útflutningi og gera hann arðbæran töldu sérfræðingarnir að auka þyrfti mjög framleiðni í iðnaði með breytingum á rekstrarstjórnun, skipulagi og framleiðslutækni í fyrirtækjunum og þyrfti því sérstakar ráðstafanir til þess að efla tækniþjónustu á því sviði.
Sérfræðingur sá, sem stjórnaði starfi iðnþróunardeildarinnar, lagði hins vegar megináherslu á að hætta yrði á atvinnuleysi í lok þessa áratugs þegar samkeppni við innflutning vegna tollalækkana tæki að gæta verulega og hinir stóru árgangar fólks, sem nú eru á framhaldsskólastigi, kæmu á vinnumarkaðinn, Hann taldi að tryggja þyrfti allt að 10 þús. ný starfstækifæri í iðnaði fyrir lok þessa áratugs. Mat hans var að gera þyrfti viðtækar ráðstafanir af hálfu hins opinbera til þess að efla iðnað í því skyni að komast hjá atvinnuleysi. Framleiðni í landbúnaði, fiskveiðum og fiskiðnaði mundi aukast, svo að þar fækkaði jafnvel fólki þrátt fyrir aukna framleiðslu og stærri landhelgi. Því yrðu aðrir atvinnuvegir að veita starfstækifæri og hefði iðnaðurinn mesta möguleika til atvinnujöfnunar. Hans mat var það, að af þessum ástæðum þyrftu að koma til jafnvel stærri fjárfestingarátök í þágu iðnaðar en þá áttu sér stað við stóraukningu togaraflotans og endurnýjun fiskvinnslustöðvanna. Hann benti á að annars staðar á Norðurlöndum hefði hið opinbera veitt iðnaðinum viðtæka aðstoð til þess að laga sig að nýjum samkeppnisaðstæðum. Vandi Íslands yrði jafnvel enn meiri en annarra Norðurlanda vegna þess að iðnaðurinn væri vanþróaðri hérlendis og vegna sveifluástandsins í efnahagsmálum hér á landi, en slíkt sveifluástand gerði iðnaðinum mjög erfitt fyrir að tryggja eðlilega rekstrarstöðu. Hann lagði enn fremur áherslu á nauðsyn þess að tvöfalda framleiðni í iðnaði.
Ýmsum þóttu aðvörunarorð þessa sérfræðings um hættuna á stórfelldu atvinnuleysi næsta fjarstæðukennd á tíma þegar barist var um vinnuafl. Skilningurinn á þessum aðvörunarorðum ætti þó að hafa aukist síðan þegar í ljós hefur komið undir nýjum stjórnarherrum að erlendar neyslulántökur hafa í vaxandi mæli verið látnar fylla upp í þau skörð sem myndast hafa í framleiðslugetu okkar. Iðnaðurinn verður að fylla upp í þau skörð og gera betur. En það verður og að gæta þess vandlega að ekki verði um láglaunaiðnað að ræða, því að hann samræmist ekki þeim kröfum sem við viljum gera um íslenskt þjóðfélag.
Eins og ég sagði áðan reyndi iðnrn. að fylgjast vandlega með störfum sérfræðinganna og reyndi að taka til hendi jafnhliða niðurstöðum þeirra og búa sig undir að nýta verkið í heild þegar því væri lokið. Sérfræðingarnir lögðu til, þegar þeir skiluðu verkum sínum, að sett yrði á laggirnar n. eða stofnun til þess að annast að verulegu leyti framkvæmd iðnþróunaráætlunarinnar og hefði hún heildarsýn yfir starfið. Iðnrn. féllst á þessa till. og skipaði n. til þess að annast þessi störf í öndverðu. Ég skipaði þessa n. án tilnefningar, en reyndi að gæta þess að sem best tengsl væru við þær stofnanir og þau samtök, sem helst þyrfti að sameina um framkvæmd iðnþróunaráætlunar. Í n. áttu sæti Bjarni Bragi Jónsson, en hann var forstöðumaður áætlanadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins, Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags ísl. iðnrekenda, Sigurður Markússon framkvæmdastjóri hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, Sigurgeir Jónsson aðstoðarbankastjóri hjá Seðlabankanum, Þröstur Ólafsson hagfræðingur í iðnrn. dr. Vilhjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðingur, sem var formaður n., og ritari hennar var Guðmundur Ágústsson hagfræðingur. Formaður og ritari voru í fullu starfi, og ég hafði hugsað mér að þessi nýja stofnun yrði varanleg deild í iðnrn., þó að ég gengi ekki formlega frá þeirri skipan, m.a. vegna þess að ég taldi æviráðningarregluna ekki samrýmast starfi þessarar nefndar.
Ég fól n. eftirfarandi atriði sem verkefni:
1. Endurskoðun á till. þeim um iðnþróun á Íslandi sem unnar höfðu verið af sérfræðingum.
2. Frumkvæði að breytingum á lögum og starfs
háttum hins opinbera að því er varðar ytri aðstæður til iðnrekstrar.
3. Að vinna að endurbótum innan iðnfyrirtækja.
4. Að hafa frumkvæði um samvinnu og samskipti iðngreina og iðnaðarhópa.
5. Að leggja áherslu á að efla sölu- og markaðsmál útflutningsiðnaðarins.
6. Að láta til sín taka ný iðnaðarverkefni, m.a. í samvinnu við viðræðunefnd um orkufrekan iðnað.
7. Að gera till. um ráðstöfun framlaga Iðnþróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna til Íslands.
N. þessi tók þegar til starfa. Hún vann mjög myndarlega að verkefnum sínum, bæði að mínu mati og manna sem ég taldi vel dómbæra. Hún gekk frá einni ítarlegri skýrslu þar sem birtar eru niðurstöður hinna erlendu sérfræðinga, rök þeirra metin og dregin fram forgangsverkefni með rökum. En þegar þessi byrjunarkönnun n. lá fyrir gerðust óvænt tíðindi. Hæstv. núv. iðnrh., Gunnar Thoroddsen, ákvað að leggja n. niður án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Hann ákvað sem sé að henda öllu því mikla verki, sem unnið hafði verið, inn í skápa iðnrn. og láta plöggin rykfalla þar. Þetta eru vinnubrögð sem eru gamalkunn á Íslandi. Ráðh. láta einatt kanna ýmis málasvið og safna till. um lausn vandamála til þess að auglýsa fyrir almenningi áhuga sinn og góðan vilja. Allt of oft hefur verið haldið þannig á málum síðan að hinu mikla starfi er stjakað til hliðar. Ég hygg þó að framferði hæstv. iðnrh., Gunnars Thoroddsens, sé mesta hneyksli af þessu tagi sem gerst hefur áratugum saman.
Ég veit ekki hvort hæstv. iðnrh., Gunnar Thoroddsen, hefur gert Alþ. grein fyrir þessum furðulegu amlóðavinnubrögðum sínum á síðasta þingi því ég tók ekki þátt í störfum þess. En hafi svo ekki verið, skora ég á hæstv. ráðh. eða krefst þess raunar að hann geri Alþ. grein fyrir þessum vinnubrögðum sínum, því að hér er um að ræða málefni sem getur skorið úr um atvinnuþróun og efnahagslegt sjálfstæði íslensku þjóðarinnar.
Ég vík að þessum málum í heild vegna þess að það frv., sem hér liggur fyrir, var einn hlekkur í langri keðju og að því var unnið í tengslum við mörg önnur hliðstæð verkefni. Efling iðntækniþjónustu var eitt af mikilvægustu verkefnum sem að var unnið þar til hæstv. ráðh., Gunnar Thoroddsen, stöðvaði verkið.
Um alllangt skeið hafa þrjár stofnanir starfað í þágu iðnaðarins. En sú skipan hefur ekki verið ákaflega markviss og samofin og ekki í nægum tengslum við iðnaðinn sjálfan. Iðntæknistofnanir annars staðar á Norðurlöndum hafa haft veigamiklu hlutverki að gegna og reynsla þeirra var forsenda þessa frv. Meginstoð allra þeirra miklu breytinga, sem gera þarf í iðnaði ef ekki á illa að fara, er skipulagning virkrar iðntæknistofnunar. Henni er ætlað að hafa sem nánast samband við iðnfyrirtæki og stjórnvöld og hafa frumkvæði að hvers kyns æskilegum breytingum í iðnaðarframleiðslu. Þær stofnanir, sem nú eru starfandi, geta ekki að óbreyttu tekið að sér þau margvíslegu verkefni sem Iðntæknistofnun er ætlað að leysa. Fyrirmynd þessarar stofnunar er sótt tií annarra Norðurlanda, þar sem svonefnd teknologisk institut starfa. Iðntæknistofnuninni er umfram allt ætlað það hlutverk að auka samkeppnishæfni þess iðnaðar, sem fyrir er í landinu, og hafa forustu um nýjar iðngreinar. Til þess að árangur náist er þörf gerbreytinga á rekstri fyrirtækja, bæði stjórnunarlega og á framleiðslusviðinu. Iðntæknistofnun er ætlað að veita iðnfyrirtækjum og iðnaðinum í heild margs konar þjónustu sem hann á nú ekki kost á nema í mjög litlum mæli. Iðnfyrirtæki á Íslandi eru yfirleitt mjög lítil og geta ekki veitt sér sjálf þá sérhæfu þjónustu sem nútímaiðnaður þarf á að halda. Í þeirri öru þróun, sem fyrrv. ríkisstj. stefndi að, var Iðntæknistofnuninni ætlað að veita margs konar beina aðstoð til fyrirtækja, svo sem við bókhald, hönnun og framleiðsluval. Hagræna og tæknilega ráðgjafarþjónustu þarf að veita, standa að stuðningsaðgerðum og stunda rannsóknir, einnig stuðla að örri þróun og þróun framleiðsluaðferða, t.d. í sambandi við innlent hráefni og orku.
Lýðræði á vinnustöðum er mjög til umr. um þessar mundir í nágrannaríkjum okkar á Norðurlöndum, og hafa svíar t.d. samþykkt heildarlöggjöf um það efni. Við höfum ekki fylgst með þróuninni á þessu sviði og er þó lýðræði á vinnustöðum nærtækara hér en annars staðar, þar sem nær 2/3 hlutar framleiðslukerfisins á Íslandi eru í eigu opinberra aðila: ríkis, bæjarfélaga og samvinnuhreyfingar. Við erum hér með lýðræðislegri eignarréttarskipan en flestir aðrir, en höfum ekki enn gefið þeirri skipan lýðræðislegt inntak. Ég hóf nokkra tilraunastarfsemi á þessu sviði meðan ég gegndi ráðherrastörfum, m.a. við Ríkisspítalana, Sementsverksmiðju og Landssmiðju. Hliðstæð hugsun mótar þetta frv. um Iðntæknistofnun án þess að ég reki það nánar að þessu sinni.
Það hefur háð iðntækniþjónustu hérlendis all mjög að tengsl hennar við iðnaðinn sjálfan hafa ekki verið nægilega traust. Frv. er ætlað að tryggja verulegar úrbætur að þessu leyti þar er lögð stóraukin áhersla á ráðgjöf og fræðslu og önnur slík atriði. Þar er gert ráð fyrir tilkomu sérstakra ráðunauta sem starfi í sem nánustum tengslum við iðnfyrirtækin sjálf, tilkomu tengimanna frá iðnaðinum eða einhverjum iðngreinum sem vinni með starfsmönnum stofnunarinnar, tilkomu fræðsludeildar sem hafi það sérstaka hlutverk að skipuleggja og hafa umsjón með fræðslustarfsemi.
Stjórn Iðntæknistofnunar er ætlað að hafa mun mikilvægara hlutverk en nú tíðkast. Gert er ráð fyrir tengslum við iðnaðinn í sambandi við einstök verkefni, en ekki formbundna fulltrúaskipan til óskilgreindra starfa eins og nú tíðkast. Í frv. er einnig reynt að tryggja sveigjanlegra starfsmannahald en nú tíðkast, sveigjanleika í launaákvörðunum og gert er ráð fyrir rýmri og sveigjanlegri framlögum til Iðntæknistofnunar en nú tíðkast um rannsóknastofnanir. Í því sambandi er vert að vekja athygli á því að framlög til rannsókna og þróunarverkefna í þágu iðnaðarins eru aðeins brot af því sem varið er í hliðstæðu skyni til sjávarútvegs og landbúnaðar, og er sú staðreynd í hrópandi andstöðu við þá þróun sem fram undan bíður.
Ég mun hér ekki rekja einstakar greinar frv., heldur vísa til grg. sem er að minni hyggju skýr og ítarleg.
Það leið ekki langur tími frá því að ég flutti þetta frv. að við tóku kosningar og ný ríkisstj. Skömmu eftir stjórnarskiptin kom ég að máli við hæstv. iðnrh., Gunnar Thoroddsen, og spurði hvort hin nýja ríkisstj. mundi ekki beita sér fyrir flutningi þessa frv., þar sem ég vissi að forustumenn iðnrekenda voru mjög miklir áhugamenn um framgang þess. Hæstv. iðnrh., Gunnar Thoroddsen, sagði mér að hann mundi að sjálfsögðu gera það, hann hefði hug á að nokkrar breytingar yrðu gerðar á frv., en mundi síðan beita sér fyrir því að ríkisstj. stuðlaði að framgangi þess. — Ég trúði þessum orðum og flutti því frv. ekki sem þm. haustið 1974, ég hafði svo mikinn áhuga á framgangi þess að ég vildi að það færi sem öruggasta boðleið.
En Gunnar Thoroddsen, hæstv. iðnrh., stóð ekki við þessa yfirlýsingu á þinginu 1974–1975, ekki heldur á þinginu 1975–1976. Ég fékk í þingbyrjun nú miða á borð mitt þar sem þetta frv. er boðað, en það hefur ekki séð dagsins ljós enn þá, og ég verð að segja hreinskilnislega að ég trúi ekki lengur á loforð hæstv. ráðh. Því flyt ég þetta frv. sjálfur og legg til, hæstv. forseti, að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. iðnn.