30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (582)
239. mál, rafmagn á sveitabýli
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 17 er fsp. til samgrh. út af framkvæmd á lögum nr. 24 frá 1975. Í þeim lögum segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Við 12. gr. laganna bætist:
Í reglugerð má ákveða að þeir, sem hljóta uppbót á elli- og örorkulífeyri samkv. 19. gr. laga um almannatryggingar frá 1971, verði undanþegnir afnotagjöldum fyrir síma.“
Það er rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði áðan, að ég svaraði fyrirspurn um þetta mál hér á hv. Alþ. í fyrra og gerði þá grein fyrir afstöðu til málsins og hvernig eðlileg framkvæmd þess væri. Þar segir, eins og ég áður sagði, í 12. gr. að megi ákveða að nánar skilgreindir þjóðfélagshópar verði undanþegnir afnotagjöldum fyrir síma, en ákvörðun um framkvæmd alfarið lögð í hendur ráðh. Í svari mínu við sams konar fyrirspurn á síðasta þingi skýrði ég frá því, að unnið væri að athugun málsins, en kynnti jafnframt sjónarmið póst- og símamálastjóra sem borist hafði rn. Á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hefur mál þetta verið tekið til rækilegrar meðferðar og hef ég á grundvelli þeirra gagna, sem aflað hefur verið, ekki séð mér fært að nota heimildina, heldur hef ég eygt möguleika á hækkun elli- og örorkulífeyris til hlutaðeigandi styrkþega er nemur sömu eða svipaðri upphæð og hér um ræðir. Þau mál eru nú í endurskoðun og verður þetta athugað samhliða því.
Að baki þessarar ákvörðunar stendur sú sannfæring mín, að fjárupphæð sú, er þjóðin greiðir þeim sem minna mega sín, hvort sem er fyrir sakir sjúkdóms eða elli, skuli á hverjum tíma vera svo rífleg að nægi fyrir þeim útgjöldum þeirra sem eðlileg geta talist og almennt eru viðurkennd, en án allra skuldbindinga um það hvernig þessu fé er varið. Sú skoðun, að einstakar stofnanir, svo sem Ríkisútvarpið hljóðvarp og Póstur og sími, eigi á einn eða annan hátt að taka við hlutverki því sem Tryggingastofnun ríkisins hefur markað, er að mínu mati röng og getur vart átt framtíð fyrir sér.
Helstu rök mín í því efni, auk þess sem hér hefur komið fram, eru að setja þyrfti á fót mjög kostnaðarsamt eftirlits- og endurskoðunarkerfi innan stofnunarinnar, — kerfi sem þegar er fyrir hendi við greiðslu almenns örorku- og ellilífeyris, og þykir því flestum nóg komið af slíku. Einnig skal á það bent, að með hliðsjón af eðli styrks þess, sem hér um ræðir, hníga öll rök í þá átt að hinn almenni þjóðfélagsþegn greiði jafnt þá skuld sem við eigum þessu fólki að gjalda, en ekki einungis símnotendur, því að útilokað er annað en að Póstur og sími verði við gjaldskrárgerð að taka tillit til þeirra tekna er þannig féllu brott.
Ég hef nú í nokkrum orðum gert grein fyrir þeirri ákvörðun minni að nýta ekki a.m.k. að sinni heimildarákvæði 12. gr. fjarskiptalaganna. Þeirri ákvörðun er ekki beitt gegn þeim þjóðfélagsþegnum sem síst mega sín, heldur þvert á móti, því málum þeirra yrði best borgið með rýmilegum lífeyri sem hver og einn gæti ráðstafað að vild, auk þess sem sú leið yrði þjóðfélagslega réttlát. Að því er stefnt að svo megi verða. — Hér mun ég láta svari mínu lokið.