30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

239. mál, rafmagn á sveitabýli

Fyrirspyrjandi (Magnús Kjartansson):

Hæstv. forseti. Mér þótti dálítið furðulegt að hlusta á þetta svar hæstv. ráðh. Hann var að tala um hver vandkvæði fylgdu því ef aldrað fólk og öryrkjar fengju ókeypis síma, og fór um það mörgum orðum hvað þetta yrði flókið og þyrfti að hafa vandað eftirlit. En hæstv. ráðh., sem var að flytja þessi orð hér úr ræðustól, hefur sjálfur ókeypis síma. Hann þarf ekki að borga einn einasta eyri fyrir símaafnot sín, hvort sem hann er að nota símann til þess að gegna störfum sínum sem þm. eða ráðh. eða hann er að nota hann af einhverjum persónulegum hagsmunum eða til þess að reyna að safna fylgi sínu, hvort sem hann hringir upp í Borgarnes eða til Timbúktú. Þetta á ekki aðeins við um þennan hæstv. ráðh., þetta á við um okkur alla sem sitjum hér sem kjörnir fulltrúar á hinu háa Alþ. Við þurfum enginn okkar að borga eyri fyrir símaafnot, og gildir einu til hvers við notum símann. Hér á Alþ. sitja allmargir menn, sem stunda allvíðtæka fésýslustarfsemi, þeir nota símann að sjálfsögðu til þess og þessi sími er borgaður af hinu háa Alþ. Ég er alveg sannfærður um að misnotkun yrði miklu minni hjá öldruðu fólki og öryrkjum heldur en okkur sem sitjum hér á hinu háa Alþ., enda er ákaflega auðvelt að setja um það reglur sem tryggi að þetta verði ekki misnotað nema að ákaflega takmörkuðu leyti.

Ég vil bæta því við það sem ég sagði áðan, að þessar till. mínar, sem ég hef flutt í sambandi við hljóðvarp og síma, eru ekki sprottnar upp úr hugskoti mínu. Ég hef sótt þær til þeirra landa þar sem almannatryggingar eru hvað myndarlegastar, þ.e. til frændþjóða okkar á Norðurlöndum. Í Danmörku t.a.m., þar sem ég þekki vel til, er kaupmáttur ellilífeyris og örorkubóta núna um það bil tvöfalt hærri en hér á Íslandi, og auk þess hafa ellilífeyrisþegar og öryrkjar ýmiss konar hagsbætur aðrar, þ. á m. hvað varðar afnotagjöld af útvarpi, sjónvarpi og síma. Þeir fá einnig uppbætur vegna húsnæðiskostnaðar ef þeir þurfa að greiða vegna húsnæðis síns hærri upphæð en visst hámark, þá koma bætur til þess einnig frá tryggingastofnun. Sama máli gegnir um ferðalög með farartækjum sem eru í opinberri eigu, en það eru í Danmörku m.a. járnbrautir og ýmis skip, en ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá að ferðast með þessum farartækjum fyrir lágmarksverð. Þetta bætist ofan á tekjur sem eru, eins og ég sagði áðan, að raungildi tvöfalt hærri en hér á Íslandi.

Hæstv. ráðh. viðhafði býsna einkennileg orð í ræðu sinni. Hann sagðist ekki sjá sér fært að nota heimild þá sem Alþ. gaf. Þetta er ákaflega alvarlegt mál sem ég vil heina til hæstv. forseta Sþ. Það er skoðun mín að ráðh. séu starfsmenn okkar alþm. og þeim beri að framkvæma vilja Alþ. í einu og öllu, og skiptir þá engu máli hverjar einkaskoðanir þeirra kunna að vera. Þetta á ekki aðeins við um lög, þetta á við um þáltill. og um heimildir. Ég bar þetta mál nýlega undir einn af kunnustu lögfræðingum þjóðarinnar, einn af dómurum Hæstaréttar, og hann staðfesti að þessi skilningur minn væri réttur. Vilji hæstv. ráðh. ekki taka mark á því sem ég segi hér, þá eiga að vera hæg heimatökin fyrir hann að ræða við félaga sína í hæstv. ríkisstj. því þar sitja fimm lögvitringar, þar af tveir fyrrv. prófessorar í lögum. Formaður Framsfl. er sjálfur einn reyndasti og kunnasti og færasti lögfræðingur þjóðarinnar og hæstv. símamálaráðh. getur auðveldlega snúið sér til hans til þess að fá vitneskju um þessi atriði.

Ég mælist sem sé til þess við forseta Sþ., ef hann vildi gjöra svo vel að hlýða á mál mitt, — ég mælist til þess við forseta Sþ. að hann taki þetta mál upp við símamálaráðh. og geri honum grein fyrir því, að það er skylda hans sem ráðh. að framkvæma vilja Alþ. Og ég óska þess að forseti Sþ. láti Alþ. vita hver verða viðbrögð hæstv. ráðh. í því viðtali. Ef það kemur í ljós að hæstv. ráðh. ætlar ekki að framkvæma vilja Alþ., þá er hann að brjóta eiðstaf sem ég horfði á hann sjálfan undirrita haustið 1971, og þá er þetta mál komið á nýtt stig, ef hæstv. ráðh. vill ekki fara að stjórnarskrá og lögum. Þá hlýtur að koma upp sú spurning hvort það verði ekki að bera fram vantraust á hann ef hann neitar að hlíta settum leikreglum Alþ. og vilja Alþ. í þessu stóra máli.