30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 839 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
61. mál, tölvubanki rannsóknarlögreglunnar
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Í fyrsta lagi er spurt: „Hver voru tildrög þess, að ákveðið var að rannsóknarlögreglan í Reykjavík byggði upp tölvukerfi til notkunar við rannsóknarstörf sín?“
Svarið er: Tildrög þess, að rn. heimilaði yfirsakadómaranum í Reykjavík að afla tölvubúnaðar fyrir rannsóknarlögregluna í Reykjavik, eru í stuttu máli þau, að starfsmenn þeir, sem vinna að rannsókn svonefnds Geirfinnsmáls, töldu upplýsingasafn sitt í málinn vera orðið svo umfangsmikið að ekki fengist af því fullt gagn nema með því að koma upplýsingunum inn í tölvu. Jafnframt var ákveðið að gera könnun á því, hvort ekki væri hentugt að færa nokkra þætti í upplýsingasafni rannsóknarlögreglunnar inn í tölvukerfi, en upplýsingasafnið er í ófullkomnu kerfi sem þarfnast endurbóta, hvort sem það er með því að setja í tölvu eða á handunnar spjaldskrár.
Ákveðið var að gera tilraun með tölvunotkun við rannsókn Geirfinnsmálsins, og var gerður samningur við Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar um tölvunotkun til reynslu og gildir sá samningur þar til í febr. 1977, eða í 5 mánuði. Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhald tölvunotkunar. Niðurstaða sú, sem þá verður tekin, verður ugglaust byggð á fenginni reynslu af notkun tölvunnar. Mér þykir sennilegt að tölvuvinnslu verði haldið áfram, þó að ég geti ekki fullyrt um það á þessu stigi.
2. spurning: „Hvert hefur verið og mun verða hlutverk bandaríska fyrirtækisins IBM í þessum áformum?“
Svar: Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar hafa búnað frá IBM og er sá búnaður og annar viðbótarbúnaður fyrir sívinnslukerfi rannsóknarlögreglu leigður frá IBM. Skýrsluvélar eru samningsaðill við IBM, en sakadómaraembættið greiðir Skýrsluvélum endurgjald fyrir búnað og notkun. Til athugunar kemur vafalaust hvert fyrirkomulag verður haft á þessu í framtíðinni ef tölvunotkun verður haldið áfram, sbr. og það sem síðar mun sagt verða um væntanlega löggjöf.
3. spurning: „Hver er áætlaður stofn- og rekstrarkostnaður vegna þessarar tölvunotkunar?“
Svar: Áætlaður stofnkostnaður við þann búnað, sem nú hefur verið gerður samningur um, er 1 millj. 844 þús., en rekstrarkostnaður á mánuði er áætlaður 474 þús. kr.
4. spurning: „Hvaða einstaklingar verða skráðir í tölvubanka rannsóknarlögreglunnar?“ Svar: Þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða upplýsingar verða færðar í tölvuna, er ekki unnt að svara þessari spurningu að svo stöddu. En þetta er eitt þeirra meginatriða sem taka þarf ákvörðun um í sambandi við framtíðarnotkun tölvu fyrir rannsóknarlögregluna.
5. spurning: „Verða þar aðeins skráðir þeir, sem fremja meiri háttar afbrot, eða einnig þeir, sem t.d. eru staðnir að minni háttar yfirsjónum í umferðinni?“
Svar: Um þessa spurningu gildir það sama og þá fyrri, að ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvaða upplýsingar verða færðar í tölvuna, þó að eðli málsins samkvæmt megi sjálfsagt segja, að það sé ekki líklegt að smábrot verði þar færð til bókunar.
6. spurning: „Verða þar kannske skráðir allir eigendur bifreiða?“
Svar: Bifreiðaskrá er ein þeirra skráa sem mjög gagnlegt getur verið að hafa aðgang að í tölvu.
7. spurning: „Hver tekur ákvörðun um það, hvers konar hópar manna verða skráðir í tölvubankanum?“
Svar: Lokaákvörðun um hvað fært verður í tölvu verður tekin af ráðuneytinu að fengnum tillögum rannsóknarlögreglunnar og ríkissaksóknara. Þetta gildir sem sagt á meðan ekki hafa verið settar nánari reglur um þetta efni.
8. spurning: „Verður einstaklingum heimilt að krefjast þess að fá svar við því, hvort nöfn þeirra eru í tölvubanka lögreglunnar og hvað um þá stendur þar?“
Svar: Um þetta verða settar reglur.
9. spurning: „Verður þeim jafnframt gert kleift að koma fram leiðréttingu á röngum, úreltum eða villandi upplýsingum um þá sjálfa?“
Svar: Til þessa atriðis verður tekin afstaða þegar mótaðar verða reglur um notkun tölvubankans, en ég tel sjálfsagt að svo verði gert.
10. spurning: „Hvernig verður tryggt að óviðkomandi aðilar, starfsmenn Skýrsluvéla ríkisins, tæknimenn bandaríska fyrirtækisins IBM eða aðrir þeir, sem aðgang hafa að upplýsinga-minni tölvunnar, komist ekki að innihaldi tölvubanka rannsóknarlögreglunnar?“
Svar: Þetta verður tryggt bæði með gæslu búnaðarins í húsakynnum Skýrsluvéla og rannsóknarlögreglu svo og með sérstökum tæknilegum aðferðum og breytingum á merkjum í símalínum, sérstöku lyklakerfi til að geta kallað upp minni tölvunnar og öðrum tæknilegum búnaði sem of langt mál er að rekja, en hliðsjón verður höfð af erlendum reglum um varðveislu slíkra tölvubanka.
11. spurning: „Verða sérstakar ráðstafanir gerðar til að hafa eftirlit með því að upplýsingar tölvunnar verði ekki misnotaðar?“
Svar: Viðhafðar verða sömu varúðarráðstafanir gegn misnotkun þessara upplýsinga og viðhafðar eru um önnur gögn lögreglunnar og Skýrsluvéla.
12. spurning: „Telur ekki ráðh. að mál af þessu tagi sýni nauðsyn þess, að hér á landi eins og viða annars staðar verði sett löggjöf um tölvunotkun við söfnun upplýsinga um einstaklinga og persónulega hagi þeirra?“
Svar: Víðast hvar erlendis, þar sem tölvur hafa verið teknar í notkun á þann hátt sem hér um ræðir, hefur verið sett viðamikil löggjöf um vernd einstaklinga gagnvart misnotkun á slíkum tölvuupplýsingum. Nú hefur verið ákveðið að samin skuli löggjöf um þessi efni hér á landi, og hefur nýlega verið skipulögð þriggja manna nefnd til þess að vinna að undirbúningi löggjafar um meðferð efnis í tölvum er varðar einkahagi manna, þar með söfnun upplýsinga til varðveislu í tölvum, um varðveislu efnis í tölvum og um vernd gegn misnotkun slíks efnis svo og um skyldur þeirra manna er starfa við rekstur á tölvum. Í n. eiga sæti dr. Ármann Snævarr hæstaréttardómari, sem jafnframt er formaður n., Hjalti Zóphóníasson fulltrúi í dómsmrn. og Þorkell Helgason prófessor. Sækja tveir hinir síðarnefndu nú ráðstefnu sem haldin er einmitt þessa dagana í Strassbourg og fjallar um þetta efni: vernd einstaklinga gegn misnotkun í sambandi við tölvuvinnslu. En eins og hv. fyrirspyrjandi gerði grein fyrir, þá er þetta raunhæf spurning víða og hefur þótt ástæða til að efna til alveg sérstakrar ráðstefnu sem á að fjalla um ýmis atriði í sambandi við þessi mál, þó að ég geri ekki nánari grein fyrir því á þessu stigi. Ég undirstrika raunar aftur það, sem ég hef þegar sagt, að enn sem komið er hefur aðeins verið gerður samningur um þessa tölvuvinnslu um 5 mánaða skeið og má líta á það að nokkru leyti sem tilraun.