30.11.1976
Sameinað þing: 26. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (603)
251. mál, vandi landshlutasamtakanna við að fjármagna rekstur fræðsluskrifstofa
Fyrirspyrjandi (Axel Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja fyrirspurn til hæstv. menntmrh. á þskj. 84, svo hljóðandi:
„Hvað hyggst ríkisstj. gera til að landshlutasamtökin geti að sínu leyti staðið undir rekstrarkostnaði fræðsluskrifstofa fræðsluumdæmanna samkv. grunnskólalögunum — eða eru uppi hugmyndir um aðra lausn þessa máls en grunnskólalögin kveða á um?“
Óhætt mun að fullyrða, að fá lagafrv. hafa verið jafnoft og ítarlega kynnt víðs vegar um land allt eins og frv. til l. um grunnskóla. Það var fyrst lagt fram í Nd. 27. jan. 1971, hafði þá verið samið af n. sem þáv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, skipaði. Nál. kom ekki fram. Eftir stjórnarskiptin 1971 skipaði þáv. menntmrh., Magnús T. Ólafsson, n. til að endurskoða frv. og eins og áður sagði var það ítarlega kynnt um allt land.
Í Samtökum sveitarfélaga á Reykjanesi var málið ítarlega rætt og gerð till. um að heimild yrði sett inn í frv. þess efnis, að dreifa mætti starfskröftum fræðsluskrifstofanna, þegar starfsliði þeirra fjölgaði, fremur en að hafa það allt á einum stað, ef aðilum þætti það hentugra og samkomulag yrði þar um við menntmrn. Þessi ábending var tekin til greina og vísað þar til 15. gr. frv. og athugasemda við hana, en þar er Reykjanessvæðisins sérstaklega getið í sambandi við breyt. sem þar voru lagðar til.
Landshlutasamtökum sveitarfélaga er fengið veigamikið hlutverk í þessum lögum, og þá mun vissulega hafa verið gengið út frá því, þegar þau lög voru sett, að landshlutasamtökin fengju lögfestingu og fengju sérstakan tekjustofn. Af því hefur ekki orðið og er það mitt mat að þau þurfi að þróast enn til þess að svo geti orðið og margs að gæta í því sambandi.
Staðreyndin er að áhugasamtökum hefur því með lögunum verið falin framkvæmd þýðingarmikils máls, þar sem er kjör fræðsluráðs og rekstur fræðsluskrifstofanna. Hvers vegna var þetta gert? Á bls. 30 í frv. að grunnskólalögum eru taldir upp 14 töluliðir varðandi þær breyt. og nýmæli sem frv. felur í sér, og 1. liðurinn er svona, með leyfi hæstv. forseta:
„Nokkur hluti af valdi menntmrn. verði fluttur út í 8 fræðsluumdæmi þar sem fræðslustjórar starfi. Er og gert ráð fyrir því, að hin nýju landshlutasamtök sveitarfélaga gegni talsverðu hlutverki í ytra stjórnkerfi grunnskóla, m.a. með því að kjósa fræðsluráð.“
Ég fullyrði að í Reykjaneskjördæmi, þar sem ég er kunnugastur, hefur þessi nýbreytni þegar mælst mjög vel fyrir, að vísu utan eins staðar, Hafnarfjarðar, og hafa margar sveitarstjórnir gert samþykktir að því lútandi að tryggt verði að fræðsluskrifstofan geti starfað og það með auknum krafti. Einnig ríkir ánægja með þessa skipan meðal skólastjóra og kennarasamtaka í kjördæminu, eftir því sem ég best veit. Hvað þá um landshluta sem fjær liggja höfuðborginni, þegar svo er ástatt um þá sem styst og hægast eiga að sækja til höfuðstöðvanna, menntmrn.? Ég tel að sú skamma reynsla, sem fengin er af starfi fræðslustjóranna, lofi góðu og hér hafi verið rétt spor stigið til að færa áhrif á þróun skólamála út á landsbyggðina. Skrifstofurnar og sú starfsemi, sem þar er ætluð, þurfa að þróast, og það tekur sinn tíma.
Ákvæði um fræðslu barna voru fyrst sett í lög á landi hér árið 1880. Áríð 1907 voru sett fyrstu fræðslulögin og skólaskyldu komið á. Fræðslulögunum hefur síðan verið breytt og þau endurskoðuð 1926, 1936, 1946 og svo núgildandi lög.
Í 88. gr. núgildandi laga er ákvæði um hvernig kostnaður við fræðsluskrifstofurnar á að greiðast. Eins og nú er háttað skipan landshlutasamtakanna er þeim ofvaxið að standa undir þeim hlut sem þeim er þar ætlaður. Í fyrsta lagi hafa þau engan tekjustofn til þess. Í öðru lagi eru þau ekki lögfest, eins og áður hefur verið vikið að. Hér verður því að finna bót á. Í umr. um frv. til l. um tilfærslu og verkefnaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga, sem samþ. var á síðasta Alþ., lýsti hæstv. menntmrh. því yfir að þetta yrði tekið til athugunar síðar á þinginu. Ég ber því þessa fyrirspurn fram til þess að það komi skýrt fram hver sé fyrirætlun ríkisstj. til að leysa þann vanda sem hér er við að glíma.