02.12.1976
Efri deild: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (624)
85. mál, eignarráð yfir landinu
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Fyrst og fremst vegna ræðu hv. 2. þm. Vestf, s.l. mánudag finn ég mig nú til knúinn að fjalla lítils háttar um mismuninn sem er á frv. alþfl.-manna hér í d. og frv. því sem við alþb.- menn höfum lagt hér fram um stjórnarskrárbreytingu varðandi eignarrétt á landinu.
Á ýmsa lund eru þessi frv. tvö samhljóða, en eigi að síður er á þeim í öðrum greinum grundvallarmunur. Fljótt á lítið grunnhyggnum augum hv. 2. þm. Vestf. virðist honum þessi tvö frv. nokkurn veginn samkynja. Þannig fer gjarnan þeim sem slíkum augum lítur tvo fleti úr fjarska og sér glampa á þá, að hann hyggur hvort tveggja vera stöðuvötn, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að annað er stöðuvatn, en hitt er sandbleyta. Hv. þm. þyrfti að temja sér að skyggnast miklu dýpra í málin. Meginmunurinn á þessum tveimur frv. er sá, að með frv.-flutningi um breyt. á stjórnarskrá varðandi eignarhald á landi fylgir einarður vilji til þess að stuðla að nauðsynlegum breytingum.
Frv. það til l., sem hér er nú til umr., er flutt af báðum hv. þm. Alþfl., er raunar með frumvarpssniði, en sá augljósi formgalli á, að það brýtur í bága við orðanna hljóðan í 67. gr. stjórnarskrárinnar. Því fer víðs fjarri að ég vilji halda því fram, að hv. flm. hagi málatilbúnaði sínum þannig með eins konar klókskap eða undirhyggju. En óneitanlega setur þessi annmarki nokkurn galla á mál þeirra sem eigi að síður er vissulega efnislega vert þinglegrar meðferðar.
Hv. þm. Helgi F. Seljan vakti athygli á því við umr. um frv. fyrr í vikunni að miklum breytingum hefði þetta þingmál Alþfl. tekið frá því að það sá fyrst dagsins ljós í mynd þáltill. fyrir fjórum þingum. Þetta er rétt. Hér hefur orðið veruleg breyting á. Tíminn er mikill græðari, svo sem menn vita, einkum ef sá, sem rispaðist, stillir sig um sinn að rífa ofan af sárinu. Ég hygg að frv. þeirra alþfl.-manna nú sé fyrir miskunn liðinna ára komið nokkurn veginn í það horf sem stefna flokks þeirra og viðhorf til íslenskra landnytja og landbúnaðarmála skipaði því strax í upphafi eða öllu heldur hefði skipað því strax í upphafi ef þetta mál hefði ekki á sínum tíma í sinni upprunalegu mynd dregist af tilviljun og óheppni í gegnum krapastíflur í ónefndri á norður í landi.
Í eðli sínu er frv. þetta þó, eins og ég sagði áður, í nokkrum grundvallaratriðum frábrugðið frv, okkar alþb.- manna um stjórnarskrárbreytingu, og sá mismunur ber náttúrlega keim af þeim mismun sem er á flokkunum tveimur og viðhorfi þeirra til ýmissa meginmála, og þá náttúrlega fyrst og fremst ber þessi mismunur keim af þeim mun sem er á viðhorfum þessara tveggja flokka til mála sem lúta að vernd landsgæða og hag bænda, sem að okkar áliti á að fara saman og hlýtur að fara saman.
Ég hygg að hv. þm. Steinþór Gestsson hafi haft rétt fyrir sér þegar hann sagði við umr. á mánudag um frv. þetta að í löggjöf landsins fyndist hingað og þangað lagaákvæði sem nægja mundu til þess hvað orðanna hljóðan áhrærir að reisa skorður sem þörf er á t.d. við jarðabraski og tryggja almannanot af landsgæðum, þegar þjóðarþörf krefur, og tryggja ábúðarrétt, stemma stigu við landníðslu, rányrkju og landsspjöllum og flest hvað annað það sem frv. Þetta miðar að á leið sinni til bóta. Í löggjöf okkar finnast einnig ákvæði um ýmiss konar almannanytjar á landi í einkaeign, bæði forn og ný. Enn þá eru í gildi ævaforn ákvæði í slíka átt, önnur hafa fyrir skemmstu verið úr lögum numin. Það er ekki ýkjalangt síðan í lögum var sá almannaréttur að taka fisk úr hvaða veiðivatni sem væri, væri hans neytt á bakkanum. Það er ekki ýkjalangt síðan það var í lögum að hver þegn landsins mátti leggja net eða nætur í landi annars manns, að því tilskildu að hann væri sannanlega ekki í vegi fyrir veiðarfærum landeiganda eða bónda og gyldi fjórðung í landsskuld. Enn eru ýmis ákvæði í lögum sem tryggja slíkan rétt hins almenna þegns, og í löggjöfinni getur að finna ýmis ákvæði sem vel má túlka á þann veg t.d., svo vikið sé að veiðiréttarmálunum, að sala stangarveiðileyfa í hendur útlendingum, þar sem innlendir menn eru sniðgegnir, sé lögbrot, og ýmis höft hafa verið sett við frjálsum ferðum þegnanna um lönd og lendur, hvort heldur þau eru í mynd hliðlausra gaddavírsgirðinga eða auglýsinga sem efalítið eru brot í sjálfu sér á ævafornum lýðréttindum íslendinga. En þar verða aftur á móti ekki sakfelldir þeir menn sem strengdu þennan gaddavír eða sömdu auglýsingarnar, heldur þeir sem hafa látið líða hjá af sinnuleysi eða dugleysi að endurskoða lagabókstaf þann er lýtur að eignarhaldi á landi, að endurskoða hann eftir því sem breyttir tímar krefjast.
Við skulum horfast í augu við þá staðreynd, að mikill meiri hluti landsmanna býr nú í kaupstöðum, bæjum eða þorpum við landleysi. Þar er nú komið saman það afl. það pólitíska afl, sem nægir langt umfram það sem til þarf að breyta allri íslenskri löggjöf. Þessi hópur þarfnast lands til annarra nytja en búskapar, lands til að ganga á, lands til að skoða og lands til að njóta með unaðssemdum þess. Hver einasti íslendingur á þess háttar hlut í gjörvöllu landinu sem hafinn er langt yfir eignarrétt einstaklings að þessu leyti. Það eru þau sérréttindi að vera íslendingur. Í staðinn er hann svo krafinn um ýmiss konar þegnskap við land sitt sem birtist í sköttum og skyldum sem menn inna af höndum með ákaflega misjafnlega glöðu geði, og fer þá nokkuð eftir því hvernig þeim hefur auðnast að njóta þessara hlunninda sem þeir eiga í landi sínu, hversu vel hefur verið að þeim búið til þess og hversu vel þeir læra að njóta þeirra.
Því má segja að með endurskoðun og umskrifun hinna ýmsu lagaákvæða, sem fjalla um eignarhald á landi og þegnrétt, til landsins, í líkingu við það sem kveðið er á um í þeim tveimur lagafrv, sem liggja nú fyrir þessari hv. d., einnig í frv. Alþfl. með þeim göllum sem á því eru, en fyrst og fremst í lagafrv. okkar alþb.- manna, sé aðeins stefnt að því að færa í skynsamlegt nútímahorf þá lagasetningu sem hæfði sennilega sæmilega því samfélagsformi sem nú er gengið fyrir ætternisstapa í tímans rás. Hér á ég ekki við neins konar fræðilega skilgreiningu á þjóðfélagi okkar, heldur aðeins þá staðreynd, að á þeim öldum, þegar þjóðin lifði nær öll á landbúnaði og hver maður átti beina eða óbeina eignaraðild að bújörð, þá voru réttindin til almenninga og öll lagaákvæði um gagnkvæm réttindi til lands og landsnytja raunar gagnkvæmur afnotaréttur nær allra landsmanna, þar sem einn hafði nokkuð að bjóða í staðinn fyrir það sem hann hlaut. Við þá breytingu, sem síðan hefur orðið á þessu samfélagi okkar, hvort sem mönnum er hún ljúf eða leið, að mikill meiri hluti fólks lifir nú af öðru en landbúnaði og hefur ekki þinglýst eignarhaldi á landi, hafa hin gagnkvæmu réttindi tekið á sig fullóhlutkennda mynd. Hin augljósa skynsemd fornra lagaákvæða hefur orðið að sögulegri skýringu — aðeins að sögulegri skýringu með litilli naglfestu í félagslegri reynd samtímans.
Ég efast ekki um að hv. þm. Steinþór Gestsson gerir sér ljósa grein fyrir þörfinni sem er á því að endursmíða löggjöfina sem varðar eignar- og yfirráðarétt á landi, ekki síst með tilliti til hagsmuna bændastéttarinnar sjálfrar. Sú hætta vofir nefnilega yfir vegna hinna gjörbreyttu pólitísku valdahlutfalla að þessi breyting kunni að verða gerð án verulegs tillits til hagsmuna bændastéttarinnar, en að dómi okkar alþb.- manna kann líf þjóðar okkar að liggja við, að þannig verði einmitt á málunum haldið að þessar lagabreytingar verði gerðar með þeim hætti að staða bændastéttarinnar verði efld með þeim hætti, en hún ekki veikt með þeim hætti. Af þeim sökum teljum við nauðsynlegt að koma mynd á óskepi sem sett er saman úr ýmsum ósamstæðum brotum nú og við notast þegar kveðið er á um yfirráðarétt og eignarhald á landi, — komið verði á þessa lagasetningu þess háttar mynd sem samsvarar kröfum tímans núna og yrði að sjálfsögðu jafnt og ekki síður miðuð við hag bændastéttarinnar heldur en annarra stétta.
Og er ég þá enn kominn þar í máli mínu sem er ræða hv. 2. þm. Vestf. s.l. mánudag sem varð, eins og ég sagði áðan, þess valdandi að ég tek nú til máls, í stað þess, sem ég hafði ætlað mér, að geyma mér ræðuhöldin um eignarhald á landi uns frv. okkar alþb.-manna um stjórnarskrárbreytinguna kæmi til umr. En þar til annað kemur í ljós, — annað verra kemur í ljós, sem ég vona að ekki verði, — þá ætla ég að hv. þm. hafi fyrst og fremst tekið til máls um þetta frv. á mánudaginn var af óstýrilátri tjáningarþörf eða fremur til þess að láta ljós sítt skína en af því að hann hafi hugleitt vandamálið, sem hér er til umr., eða aflað sér fróðleiks um það fyrir utan eigið hugskot. Þetta sakaði svo sem ekki. Hann kastaði sér drengilega út í umr., snöggt og fast, skaut svo sem eins og einar tvær kerlingar á yfirborðinu og liggur nú á hinum bakkanum, ekki votur til stórra lýta.
Það sem lýtur að einkaeignarrétti á Íslandi hefur verið til umfjöllunar hér á hv. Alþ. um áratugaskeið. Hér hafa verið samin frv. og þál.- till., að því er ég hef spurt og lesið mér til um, löngu áður en nokkur þeirra hv. þm., sem eiga sæti í þessari d., kom inn fyrir gráa veggi þessa virðulega húss. Og sá stjórnmálaflokkur, sem hefur næst komist því að vandlega undirbúnu máli og með töluverðu starfi að afnema gersamlega einkarétt á öllu Íslandi, er einmitt stjórnmálaflokkur hv. 2. þm. Vestf.
Á árunum 1938 og 1939 töldu ýmsir af fremstu bændaleiðtogum Framsfl. í þingliðinu að málefnum landbúnaðarins væri sú hætta búin orðið af jarðabraski og að vandamál kynslóðaskiptanna, sem hv. þm. Bragi Sigurjónsson kom ítarlega inn á í ræðu sinni á mánudaginn, — vandamál kynslóðaskiptanna hvað jarðnæði snertir væri orðið slíkt að þörf væri algerrar breytingar á þessu sviði.
Páll Zóphóníasson samdi árið 1939 lagafrv. þar sem kveðið var á um það, að allt Ísland milli fjalls og fjöru, hver einasti þverþumlungur lands með lóðum og lendum, í bæjum sem í sveit, skyldi vera þjóðareign, en réttur bænda til bújarða í staðinn tryggður með, ef svo má segja, járnbentum erfðafestulögum, þar sem bændur misstu einskis í við breytinguna nema réttarins til að selja land. Þetta frv. var að vísu aldrei lagt fram og komu þar til ýmsar ástæður, e.t.v. fyrst og fremst sú, að heimsstyrjöldin brast á með þeim djúpstæðu breytingum sem hildarleikurinn hafði á pólitískt líf á Íslandi, þó e.t.v. öllu fremur eða a.m.k. samtímis sú ástæða, að ónefnd pólitísk ætt á Íslandi með mikið fjárafl að baki hafði eignast margar hlunnindajarðir sem hún með ærnum tilkostnaði vildi gjarnan halda og hafði. þegar til kastanna kom, bolmagn til þess að vefjast nokkuð fyrir þessu máli. Og enn fleiri ástæður álíka lágu til þess að frv. þetta sá aldrei dagsins ljós. En til mun það vera enn þá í handriti í sinni upprunalegu mynd.
Ekki var það, eins og flokkurinn hét þá, Sameiningarflokkur alþýðu — sósíalistaflokkurinn, sem að þessu frv. stóð, og ekki heldur hinn gamli og veðurbarði Alþfl., það var Framsfl., og meginástæðurnar eru þær hinar sömu sem liggja að baki þessara tveggja frv. nú. Og þar sem ég kom nú að þröskuldinum sem varð í vegi fyrir þessu máli á sínum tíma, þar sem veiðiréttarmálin ern, þá er ég einnig kominn að þeim mismun á frv. tveimur, sem hér liggja frammi, sem mestu máli skiptir, því að í þessum mismun, viðhorfunum til veiðiréttarmálanna, speglast nefnilega sá grundvallarmunur, ef gjör er gáð, sem er á viðhorfum Alþfl. og Alþb. til íslensks landbúnaðar og bændastéttarinnar. Hv. 2. þm. Vestf. fann þá skýringu eina, að hér kæmi það fram á hvaða mið Alþfl. og Alþb. reru til atkvæðaveiða. Þetta er rangt og eins það sem veit að Alþfl. í þessu máli eins og Alþb. Í vitund hv. þm. er pólitíkin atkvæðaveiðar. Raunar þótt það komi ekki þessu máli við, heyri ég formann Framsóknarfélagsins í Mývatnssvelt lýsa yfir því opinberlega á framboðsfundi í síðustu kosningum að að hans áliti væri pólitík ekkert annað en atkvæðaveiðar. Hefði hv. 2. þm. Vestf. verið viðstaddur, þá hefði hann efalítið hrópað: heyr, heyr 1 Ég svaraði því þá til, sem ég mun svara til nú, að pólitísk barátta væri svolítið annað, siðlitlir spraðabassar stunda að vísu atkvæðaveiðar í pólitíkinni af álíka hvötum og línfrómir fjármálamenn stunda brask undir yfirskini almennrar fésýslu. Siðgæðið á bak við þessi viðhorf er svona álíka.
E.t.v. er auðveldast að útskýra þann mikla mun, sem endurspeglast í afstöðu okkar alþb.- manna og alþfl.-manna til veiðiréttarins, með því að leggja í það fyrirtæki að flytja nokkurra klukkutíma ræðu um mismunandi viðhorf til því nær samhljóða yfirlýsingar þessara tveggja flokka um sósíalísk markmið. En það viðfangsefni verður að bíða annarrar tíðar og annars staðar. En til grundvallar þeim mismun liggja miklu merkilegri ástæður heldur en þær sem hv. 2. þm. Vestf. getur sér til um þegar hann nefnir orðið atkvæðaveiðar — miklu merkilegri ástæður, og enn segi ég það: jafnt af hálfu Alþfl. sem Alþb. Þar er á ferðinni fullkomin alvara.
Í stuttu máli, ef við víkjum að þeim ágreiningi sem endurspeglast í mismunandi viðhorfi til veiðiréttarins í þessum tveimur frv., þá kemur hér fram í þessu frv. að Alþfl. vill leysa það óþolandi ástand, — og ég tek undir það, geri það að mínum orðum, — það er óþolandi ástand sem nú ríkir, að íslendingar skuli sviptir óvefengjanlegum forgangsrétti til unaðssemda landsins með gögnum, gæðum og hlunnindum, þ. á m. og í þessu tilfelli og fyrst og fremst veiðiréttarins í ánum okkar með þeim hætti að þessi gögn séu höfð á alþjóðlegu uppboði með þeim hætti að erlendir auðmenn geti bolað okkur burt af árbökkunum með peningavaldi sínu. Þetta vandamál vill Alþfl. leysa með þeim hætti, að ríkið taki þennan rétt algerlega í sínar hendur og verði þá sennilega veiðirétturinn og öll meðferð hans í höndum eins aðila í einhvern rn. eða einhverri sérstakri stofnun sem yrði þá sennilega staðsett í Reykjavík. og þó er það ekki ljóst af frv. Alþfl. Við alþb-menn viljum að veiðirétturinn fylgi jörðunum svo sem verið hefur eða öllu heldur svo sem á að vera samkv. íslenskum lögum, sem hafa þó verið sniðgengin í vaxandi mæli, en er eigi að síður bundið í lögum.
Grundvallaratriðið, sem fyrir okkur vakir, er að árnar verði best varðveittar með frjósemi sinni og fiskigengd af þeim sem við árbakkann búa vetur og sumar og æskilegt að verndun þessara verðmæta, sem er svo auðvelt að spilla, verði tengd hagsmunum þeirra sem við þau búa. Hér má tilgreina þau rök, að vaxandi veiðisæld í íslenskum ám hin síðari ár sé afleiðing að verulegu leyti ræktunarstarfs sem unnið er af bændum og félögum þeirra að meginþætti, en einnig í samstarfi við áhugamenn um stangarveiði. Hér liggur og til grundvallar sú alvara á bak við þetta viðhorf okkar alþb: manna, — sú alvara sem er í ákvæði því er greinir frá í okkar frv. um stjórnarskrárbreytinguna, að bændum, sem það vilja, verði frjálst að eiga bújarðir sínar með gögnum og gæðum. Við erum tortryggnir á það, að veiðiréttarmálum alþýðu í þessu landi, neytendanna, yrði betur borgið með því að yfirstjórn veiðivatnanna yrði undir einum hatti, hvort sem það yrði nú í rn. í Reykjavík eða annars staðar, Í slíku felst hvorki trygging fyrir því, að veiðiárnar verði ekki skemmdar af völdum orkufrekra pólitíkusa, né því, að þær verði ekki settar 'í erlent brask. Þó er hitt þyngst á metunum, að við teljum að þar með yrðu veiðiárnar og veiðivötnin svipt umhyggju og natni og vörslu þeirra manna sem næst þeim sitja, og yrði varsla ánna og veiðivatnanna ekki tengd eðlilegum hagsmunum mannanna sem sitja hið næsta þeím, þá yrði jafnvel kölluð yfir þessi vötn ákveðin hætta af völdum mannanna sem þarna sitja. Reynslan hefur orðið sú erlendis, að þar sem yfirráð veiðivatnanna og eignarhald er í höndum ríkisins, þar hafa veiðiárnar verið skemmdar. Það má vísa til ástandsins í Bandaríkjum Norður-Ameríku, sjálfu höfuðvígi einkaeignarréttarins. Þar er veiði í ám og vötnum ríkiseign. Þar hafa veiðiárnar verið eyðilagðar með þeim hætti að teknir hafa verið fram yfir af hálfu ríkisvaldsins hagsmunir þeirra aðila sem vildu nota árnar skefjalaust til raforkuframleiðslu eða sem skolpræsi. Þessi hefur reyndin orðið í velflestum þeim löndum þar sem eignarrétturinn og algjör yfirráðaréttur þessara gæða hefur verið í höndum fyrirhyggjulítils ríkisvalds sem hefur tekið fyrst og fremst mið af öðrum hagsmunum en hagsmunum þess fólks sem yndi gat haft af þessum gæðum.
Af hálfu okkar er til þess ætlast að veiðiréttur fylgi erfðafestuábúð ekki síður en ábúð eignarjarða. En þá er enn vissulega óleyst vandamálið sem ég drap á áðan, vandamálið á hinni síðustu tíð hinnar gróskumiklu brasknáttúru Íslandssögunnar, það vandamál sem leitt hefur til þess að erlendum auðmönnum hefur verið leyft að bola íslendingum burt frá þessum gæðum landsins, hvernig þeim hefur verið látið haldast uppi að gera við á íslendinga sem enn hafa þann dug í sér sem til þess þarf að vera utanhúss og reyna að njóta gæða þessa lands í blíðu og stríðu. Og að minni hyggju þarf að koma til löggjöf sem taki af allan vafa um það að íslendingar eigi að sitja fyrir veiðileyfum í íslenskum ám. að verð veiðileyfanna eigi að miðast við almenna kaupgetu í landinu og að tryggt verði, svo að eigi verði hjá því smogið, að íslendingar þurfi ekki að keppa við útlendinga með fárframlögum um þau útivistargæði landsins sem hver og einn þeirra er í raun og veru til horinn. Ég hef verið að vænta þess að íslenskir bændur ættu sjálfir að því frumkvæðið að skipa veiðiréttarmálunum í slíkt horf. En dragist það úr hömlu, þá mun ég vissulega eiga hlut að því eftir getu að sett verði nauðsynleg löggjöf til þess að tryggja almennan þegnrétt okkar á þessu sviði. En ég er frómt frá sagt meira en uggandi um það hvernig þessi mál kynnu að skipast undir handleiðslu eins embættismanns. Ég er uggandi um það að hlutdeild hins einstaka þegns á þessu landi kynni að verða verr komin undir slíkum skrifstofuhatti jafnvel heldur en hún er nú í þessum tvístraða hópi bændanna. Ég hef fullkomna ástæðu til þess að ætla að veiðiréttareigendur og þó kannske fyrst og fremst bændur, því að ég vil gera dálítinn greinarmun á þessum tveimur hugtökum, — að bændur geri sér nú orðið ljósa grein fyrir því, að bæjarbúar, hinir landlausu bæjarbúar, muni ekki una þessu ástandi lengur. Ég hygg að þeir vinni nú að því, svo að við notum orðtak úr erlendri bók sem nokkuð hefur verið vitnað í á liðnum árum, — að þeir vinni nú að því að gera íslenskum veiðimönnum eða íslenskum almenningi þess háttar tilboð sem hægt er að ætlast til að hann sjái hag sinn í að þiggja varðandi þetta atriði, sem sagt að íslendingum verði tryggt það, að þeir þurfi ekki framvegis að keppa um þessi gæði við erlenda auðmenn, og þeim verði tryggt það, að þessi gæði verði föl íslendingum á verði sem markast af innlendum aðstæðum.
En hvað um það, ég hefði e.t.v. átt í þessu sambandi að fjalla um almennar búskaparnytjar lands á Íslandi og þá stöðu landbúnaðarins jafnframt og markmið hans og hagsmunamál bændastéttarinnar. Þegar við færum að fjalla um þau atriði út frá þessum grundvallarsjónarmiðum sem ég hef drepið á, þá kynnu efalítið að koma í ljós fleiri ágreiningsatriði sem skilja á milli okkar alþb.- manna og alþfl.- manna. Ég hygg að við alþb.- menn munum flestir vera þeirrar skoðunar að stuðla beri að því að bújörðum fjölgi, ekki að því að búin stækki og bændum fækki. Fjárhagslegur gróði einstakra bænda er ekki markmið að okkar mati í landbúnaði, heldur hitt, að þeir verði sem flestir, íslendingarnir sem búi framfærslubúi. Í vitund okkar er landbúnaður ekki fremur en önnur störf „bisness“ heldur bjargræðisvegur sem getur ekki aðeins og á ekki aðeins að veita þeim, sem við hann vinna, sæmilega framfærslu, heldur einnig þessi undarlegu gæði sem eru kölluð lífsfylling. Ég veit ekki í raun og veru hvort mig stoðar mikið að fara að reyna að útskýra fyrir hv. 2. þm. Vestf. þann mismun sem að minni hyggju er á þessu tvennu: „bisness“ og lífsfyllingu. Það má vel vera að hann geri sér eins ljósa grein fyrir þeim mismun og ég eða jafnvel enn þá greinilegri. Þó vil ég vekja athygli hans á því, að flokkur hans hefur öðrum fremur eignað sér forustuna fyrir því sem nefnt hefur verið stundum þróun landbúnaðarins á Íslandi síðustu áratugina. en stundum líka verið nefnt hnignunarskeið landbúnaðarins á Íslandi síðustu áratugina með versnandi félagslegri stöðu bóndans.
Og svo aðeins lítils háttar í lokin: Íslensk pólitík er e.t.v. á því plani sem raun ber vitni í dag vegna þess. að ónefndur stjórnmálaflokkur, sem hv. 2. þm. Vestf. styður, misskilur eðli hennar og telur að pólitísku hlutverki þess flokks verði best gegnt með einhvers konar spilamennsku. — einhvers konar spilamennsku sem hirtist í ómerkilegu atkvæðasýsli, — að þessi flokkur hefur tekið afstöðu til meginmála, ekki vegna þjóðfélagslegs, pólitísks eða siðgæðislegs mats á gildi þeirra mála, heldur með tilliti til þess hvers konar völd afstaða til hinna einstöku mála, svo sem hersetumálsins, landhelgismálsins, ásælni erlendrar stóriðju í íslenska orku, — hvers konar völd sú afstaða, sem flokkurinn tekur hverju sinni, getur fært mönnum hans. Ég held að þessi afstaða eigi sinn þátt í því að sívaxandi fjöldi fólks í þessu landi er farinn að líta á flokk þennan, að ég segi ekki eins og líknarbelg látinna hugsjóna, heldur kannske öllu fremur eins og belg mjög gljúprar pólitískrar sannfæringar.