02.12.1976
Efri deild: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 911 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

85. mál, eignarráð yfir landinu

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Aðeins örfá orð í tilefni af ummælum hv. 4. landsk. þm., Braga Sigurjónssonar, í ræðu hans áðan, þar sem hann tilgreindi þær ástæður sem honum fannst koma fram í máli mínu sem andstöðugrundvöllur við þetta frv. Ég minntist aldrei á ákveðna grein í stjórnarskránni, og ég þakka hv. þm. fyrir þá fræðslu sem fólst í ræðu hans þar sem hann miðlaði mér af sínum fróðleik. Hins vegar vakti ég athygli á því, að í tveimur greinum frv. eru ákvæði um tilhögun á endurgreiðslu fyrir þau verðmæti sem á að taka af þegnunum, frábrugðin þeirri venju og þeim skilningi sem ríkir og hefur ríkt meðal almennings um meðferð slíkra mála. Ég hefði nú álítið í sambandi við þessi mál, án þess að ég ætli að fara fram á það, að það hefði ekki verið úr vegi fyrir hv. þm., til þess að fá algerlega úr þessu skorið, að hann hefði óskað skýlauss úrskurðar forseta d. um það, hvert væri álit forseta um ákvæði frv. sem ég hef gert hér að umræðuefni.

Annað var það sem hv. þm. tiltók að hefði átt að vera grundvöllur að andstöðu minni við frv., að ég teldi að frv. sem slíkt stæði á móti sköpun einstaklinga á verðmætum. Ég kannast ekki við það að ég hafi viðhaft þau orð í máli mínu í sambandi við þetta frv. Það, sem ég gerði að umræðuefni, var að mínu mati sú hvimleiða venja svokallaðra vinstri manna hér á hinu háa Alþ. og í þessari d. að nota sem lítilsvirðingartákn um starfsemi þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem hafa að atvinnugrein að fást við fésýslu eða öflun fjármuna, — þá er það alltaf í máli þessara manna, sem ég var að lýsa hér, að velja slíkum starfsmönnum heitin braskarar, prangarar, mangarar, kaupahéðnar, sem allt er samkvæmt venjulegri málvenju lítillækkandi. Það var þetta sem ég var að átelja í máli mínu á mánudaginn var, því að ég taldi og það er mín skoðun að starfsemi þeirra manna, sem fást við verðmætasköpun og fjármunamyndun í þessu þjóðfélagi, sé engu síðri fyrir þjóðfélagsheildina heldur en ræktun, það megi líkja slíkri starfsemi við ræktun, og ég gerði nánari grein fyrir því.

Hins vegar eyddi ég nokkrum orðum um ákvæði 3. gr. þessa frv. sem sneri að ákvæðum um meðferð bújarða bænda. Hv. þm. talaði um að andstæðingar frv. hefðu áhyggjur af því að frv. mundi valda bændum óhagræði. Það er miklu meira en það að frv. valdi bændum óhagræði, það gengur alveg þvert á vilja og lífsskoðun meginhluta íslensku bændastéttarinnar, þá skoðun sem er almennt ríkjandi innan bændastéttarinnar í dag og hefur verið kynslóð fram af kynslóð. Það hefur alltaf verið draumur bóndans að vera eigandi sinnar bújarðar, að vera sjálfseignarbóndi. Það hefur verið hans takmark. Þetta er svo náið og skylt þjóðareðli íslenska bóndans og hans lífsskoðun, að ég held að það megi telja að það sé undantekning, tilheyri algerri undantekningu, að bændur vilji vera leiguliðar, hvort heldur það er hjá einstaklingum, stofnunum eða jafnvel ríkinu sjálfu. Og í máli mínu hér á mánudaginn var rifjaði ég upp einmitt til stuðnings þessari skoðun minni þær miklu deilur og þau miklu átök sem áttu sér stað á árunum þegar í gildi voru vissar hömlur í sambandi við greiðslu jarðræktarstyrks.

Hv. þm. gerði nokkra bragarbót núna í síðustu ræðu sinni, því að þá kom hann beint fram og gaf okkur alveg fulla yfirlýsingu hvað fælist í þessu frv., eða a.m.k. lagði ég þann skilning í það, þegar hann fór að vitna til ræðu hv. 2. þm. Reykn. þar sem hann hafði viðhaft þau orð að samþykkt þessa frv. mætti skoða sem mesta sigur í átt til sósíalisma á Íslandi. Þá vitum við það. Hv. þm. sagðist vera ákaflega stoltur yfir þessum ummælum. Þá vitum við það, hver er tilgangur með þessu frv. Þarna er talað beru máli. Þetta er leiðin til sósíalisma í okkar þjóðfélagi. Og þegar sósíalisminn er kominn, hvað er þá orðið af eignarréttinum og hvað er þá orðið af heimild einstaklingsins til eins eða annars? Ég hélt, að það lægi nokkuð ljóst fyrir hvert endanlegt stefnumark sósíalismans væri, og ég segi fyrir mitt leyti, að ég hefði gjarnan kosið að hv. flm. hefði verið það hreinskilinn að hann hefði sett þessi orð í grg. þessa frv. að það væri álit hans að með samþykkt þess væri unninn einhver mesti sigur í átt til sósíalisma á Íslandi. Ég hefði gjarnan viljað láta það koma fram í þingfréttum útvarpsins, þannig að landslýður allur hefði getað fengið að heyra það á öldum ljósvakans hvað væri stefnumarkmið þessa frv. Ég vil aðeins láta það koma hér fram, að orð hv. þm. í þeirri ræðu, sem hann flutti hér áðan, voru ákaflega þörf áminning til mín og ég vona annarra þeirra hv. þm., sem eru á móti sósíalisma, að vera vel á verði. Ég ætla a.m.k. að vera það vel vakandi á verðinum, að ég ætla að greiða atkv. á móti því að þetta frv. komist til 2. umr. Ég mun greiða atkv. á móti því nú þegar við I. umr.