02.12.1976
Neðri deild: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

25. mál, almenn hegningarlög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum hefur gengið í gegnum hv. Ed. og verið samþ. þar með einni breytingu, þ.e.a.s. breytingu á 5. gr. frv., þar sem 4 millj. kr. er breytt í 5 millj.

Þetta frv. er samið af svokallaðri hegningarlaganefnd. Veigamestu breytingarnar, sem eru í þessu frv., varða sektaákvæði, sem fjallað er um í 4.–7. gr. frv., og enn fremur um rangan framburð, sem fjallað er um í 12.–15. gr. frv. Auk þess fjallar frv. um nokkrar minni háttar lagfæringar og breytingar sem ekki er ástæða til að fara mörgum orðum um, en ég vík aðeins að.

Í 50. gr. hegningarlaganna er kveðið á um hver skuli vera lágmarks- og hámarksupphæð sektar. Segir þar nú að ekki megi gera manni á hendur lægri sekt en 4 kr, og ekki hærri en 30 þús. kr. nema sérstök lagaheimild sé fyrir því að ákveða sekt hærri eða lægri. Þetta ákvæði hefur staðið óbreytt frá setningu hegningarlaganna 1940. En með lögum nr, 14 frá 1948 var mælt svo fyrir, að þar sem fésektir séu ákveðnar í lögum án tillits til núgildandi verðlags skuli lágmark þeirra og hámark breytast eftir vísitölu sem kaupgjald er greitt eftir á hverjum tíma. Þar sem ekki hefur verið um að ræða samfelldan útreikning á slíkri vísitölu kaupgjalds hefur dómstólum reynst örðugt að reikna út sektarfjárhæð í samræmi við þetta ákvæði. Er þess vegna lagt til að þessu hegningarlagaákvæði sé breytt og fellt niður það lágmark sem þar er ákveðið um sekt. Var í upphaflega frv. gert ráð fyrir því að hámarkið væri ákveðið 4 millj., en því hefur hv. Ed. breytt í 5 millj. og til þess liggja góðar og gildar ástæður, þar sem þetta 4 millj. kr. hámark var í raun og veru miðað við eldri útreikning og þess vegna eðlilegt að því væri breytt svo sem hv. Ed. hefur gert.

Þau sektarmörk, sem ákveðin eru í 50. gr. hegningarlaga, ákveða ekki einungis sektir, sem fjallað er um í hinum almennu hegningarlögum, heldur einnig sektir sem greindar eru í sérrefsilögum og ekki tilgreint hámark eða lágmark á í viðkomandi lögum. Þau sérrefsilög, sem kveða á um tiltekið sektarlágmark eða hámark, halda hins vegar gildi sínu, en það getur verið að sjálfsögðu að þörf sé á því að breyta sérstaklega slíkum álvæðum, einkanlega í eldri lögum.

Auk þessa höfuðatriðis í 5. gr. um breyt. á 50. gr. hegningarlaga eru nokkur ákvæði um aðrar breyt. á sektarákvæðum hegningarlaga, svo sem á 49. gr., þar sem lagt er til að heimilað verði að dæma fésekt jafnframt refsivist þegar ákærði hefur aflað sér eða öðrum fjárvinning með brotinu eða það hefur vakað fyrir honum. Þetta er nýmæli, og ég tel það til bóta.

Í 7. gr. þessa frv. er lagt til að staðfest verði sú dómvenja, sem myndast hefur, að sé maður sektaður fyrir háttsemi sem honum er ósaknæm, þá skuli vararefsing ekki ákveðin.

Í 12. gr. er svo annað meginatriðið í þessu frv., þar sem lagt er til að 142. gr. hegningarlaga verði breytt á þá lund að felld verði niður lágmarksrefsing, sem er 3 mánuðir, fyrir rangan framburð fyrir rétti eða stjórnvaldi sem heimild hefur til heitfestingar. Sömuleiðis er lagt til að felld verði niður 2. málsgr. sem fjallar um aukna refsingu við heitfestri skýrslu, en þar er kveðið á um allt að 8 ára fangelsi fyrir slíkt athæfi. Greinin er því aðeins um það að rangur framburður skuli varða refsingu og refsingin geti numið allt að 4 ára fangelsi.

Breytingar þær, sem lagt er til að gerðar verði á 143., 145. og 148. gr., sem allar fjalla um rangan framburð, eru einungis gerðar til samræmis við breytingu sem lagt er til að gerð verði á 142. gr. Þau rök, sem færð eru fram fyrir þessari breytingu, eru þau, að þau séu í samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið á hinum Norðurlöndunum á samsvarandi refsiákvæðum laga þeirra landa.

Aðrar þær breyt., sem felast í þessu frv., eru minni háttar og þær eru raunar studdar sömu rökum og ég drap á síðast, að þær séu gerðar til samræmis við þær breytingar sem gerðar hafa verið á refsilögum á Norðurlöndum. Ég sé ekki ástæðu til að rekja þær sérstaklega. Það er gerð grein fyrir þeim í aths., og vísa ég til þeirra.

Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.