06.12.1976
Neðri deild: 17. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 942 í B-deild Alþingistíðinda. (640)

Skúli Alexandersson útvegsm. taki sæti JónasÁ

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 6. des. 1976.

Þar sem ég vegna annarra starfa mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Vesturl., Skúli Alexandersson útvegsmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jónas Árnason,

5. þm. Vesturl.“

Skúli Alexandersson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa í deildinni.