07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

248. mál, geðdeild Landsspítalans

Fyrirspyrjandi (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 71 svo hljóðandi fyrirspurn til heilbrrh. um geðdeild Landsspítalans. Fyrirspurnin er í þremur líðum og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„1. Hvað líður byggingu geðdeildar Landsspítalans?

2. Hve mörg sjúkrarúm fyrir geðsjúka skortir og hvenær verður hægt að taka sjúkrarúm væntanlegrar geðdeildar í notkun?

3. Hvenær áætlar ríkisstj. að geðdeildarbyggingunni verði lokið?“

Ástæðan til þess, að ég flyt þessa fyrirspurn, er sú, að mér finnst ekki alveg ljóst af fjárlagafrv. hver ætlunin er í þessu efni nú, hvort fram er haldið á sömu braut og áður hafði verið mörkuð. Sú er þó raunar von mín, svo tryggilega sem ég taldi að brautin hefði verið mörkuð.

Ég hlýt að flytja skýringu fyrir þessu máli mínu, því að kannske virðist allóvenjulegt að stjórnarþm. sé að flytja þinglega fyrirspurn til ráðh. um áhugamál sín. En sannleikurinn er sá, að hér er um vandamál að ræða sem ég hef haft fyrir augum frá því að ég man eftir mér, ef svo má segja. Og alla tíð frá því að ég man eftir því fyrst í minni bernsku að hafa komið út fyrir heimili foreldra minna hef ég orðið þess vör, bæði meðal barna og fullorðinna, að það skortir mikið á skilning fólks gagnvart þeim erfiðleikum sem geðsjúkt fólk á við að etja. Í stuttu máli er hægt að segja, að þessi hópur fólks er í stanslausri vörn. Til viðbótar þeim erfiðleikum sem það á í vegna síns sjúkdóms, kvíða fyrir því að ná e.t.v. ekki fullum bata, — til viðbótar þessu kemur það, að stöðugur kvíði nagar vegna þess að viðkomandi verði e.t.v. ekki meðtekinn í samfélag venjulegs fólks, jafnvel þó hann nái fullum bata. Þessi hefur því miður oft orðið raunin á. Ég held þó, að mikið hafi lagast á þessu sviði, og hafði raunar fengið trú á því og treyst því, að stjórnmálamenn hefðu raunverulega opnað augun fyrir þessum vanda. Þeir strengdu þess heit að taka þessi málefni upp á arma sína. Það gera ekki aðrir, því að þetta fólk getur ekki myndað eigin þrýstihóp og nánustu vandamenn þess eiga í of miklum erfiðleikum til að þeir myndi þrýstihóp. Þess vegna á þessi hópur sjúklinga hvergi skjóls að vænta nema hjá stjórnmálamönnum, og skilningur stjórnmálamanna verður að byggjast á því að þeir átti sig á við hver vandamál er hér raunverulega að etja. Það þýðir ekkert að velta því fyrir sér hversu mörg atkvæði fylgi lausn þessara vandamála. Það er ekki víst að þau séu nein. Hins vegar er hér um mál að ræða sem stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á hvort leyst verða eða ekki.

Fyrsti heilbrrh., sem raunverulega tók skarið af um að eitthvað verulegt skyldi gert á þessu sviði heilbrigðismála, var Jóhann Hafstein sem hér situr nú sem þm. Í yfirliti um sjúkrahúsbyggingar ríkisins 1965–1966 sagði, að ákveðið væri að koma fyrir sérstakri byggingu fyrir geðsjúkradeild á landsspítalalóðinni sem þá var verið að skipuleggja. Með þessari ákvörðun var í sjálfu sér brotið blað í sögu geðsjúkramála á Íslandi. Þessi ákvörðun sýndi að það átti að láta þessa tegund lækninga njóta jafnréttis á við aðrar lækningar. Hún sýndi að það var kominn skilningur fyrir því að hér var um verulegt og alvarlegt vandamál að ræða, hér var um grein læknisfræði að ræða sem læknar almennt urðu að fá góða fræðslu í til þess að geta sinnt sínum vandasömu störfum úti um allt land.

Í fréttatilkynningu um heilbrigðismál frá því í des. 1969 sagði að geðdeild við Landsspítalann væri fyrirhuguð næsta byggingarframkvæmd heilbrigðisstofnana á landsspítalalóðinni. Um þetta leyti komu, að ég held, öll stjórnmálasamtök í kjölfarið með ályktanir og yfirlýsingar um það, að málefni geðsjúkra væru stærsti vandi sem við blasti á sviði heilbrigðismála og yrði að vinda bráðan bug að lausn þess vanda. Í ályktun landsfundar Sjálfstfl., sem ég man best eftir, var skýr og skorinorð yfirlýsing um það, að næsta stórframkvæmd á vegum ríkisspítalanna væri geðdeild Landsspítalans. Þá var í byggingu fæðingardeild Landsspítalans, og þá voru allir sammála um það, að að henni lokinni skyldi geðdeild Landsspítalans taka við. Vinstri stjórnin, sem ég hef nú yfirleitt ekki tilhneigingu til að tala hlýlega um, hafði vit á því að taka þetta málefni upp í sinn fræga stjórnarsáttmála, og þá var gerð áætlun um það og þessi bygging fullhönnuð. Áætlun var gerð um það, að hún skyldi reist í einu stóru átaki á þremur árum.

Ég verð að segja það hæstv. núv. landbrh. og hv. 3. þm. Reykv. til hróss, sem þá voru fjmrh, og heilbrrh., að þeir sýndu þessu máli einlægan stuðning og fjárveitingar fengust þannig að framkvæmdin gat hafist með þeim hraða sem ætlað var. Nú vitum við að miklir erfiðleikar steðjuðu að í fjármálum í fyrra. Þeir eru að vísu enn fyrir hendi, en ástæða er til að spyrja um það sem segir í þessu þskj. Ég mun ekki misnota þann tíma, sem ég hef hér, til að ræða þetta mál frekar, hygg raunar að þess sé ekki þörf á þessu stigi.