07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (657)

248. mál, geðdeild Landsspítalans

Magnús Kjartansson:

Hæstv, forseti. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir hreyfir hér ákaflega mikilvægu máli. Það var ákveðið hér á Alþ. á sínum tíma að ráðast í byggingu geðdeildar og áætlanir um framkvæmdir voru við það miðaðar að geðdeildin yrði komin til starfa í ársbyrjun 1978. Nú hafa gerst þau alvarlegu umskipti á þessu ári, að til þessarar framkvæmdar hefur verið varið miklu minni fjármunum en nauðsynlegt var. Það var aðeins varið fjármunum til að gera húsið fokhelt, og aðgerðir til þess að fá lánsfé hjá Háskólanum hafa því miður strandað á eftirlitsstofnun fjmrn. sem hefur tafið allar framkvæmdir, þannig að það hefur ekki verið hægt að nota þetta lánsfé sem fékkst hjá Háskólanum,

Eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir tók mjög skýrt fram í ræðu sinni er hér um að ræða sjúkdóm sem er mjög alvarlegur. Auk þess, sem hún sagði um það mál og ég tek alveg undir um eðli þessa sjúkdóms, þá er þessi sjúkdómur einnig ákaflega algengur. Sérfræðingar telja að ótrúlega há prósenta af fólki verði fyrir einhverjum geðveilum á lífsleiðinni, mismunandi miklum. En sem betur fer hefur þróunin orðið sú, að það er hægt að lækna slíkar geðveilur ef hægt er að taka þær fyrir á skipulegan hátt og nægilega snemma, þannig að það er mikið þjóðfélagslegt atriði einnig að reyna að bæta úr á þessu sviði svo sem unnt er, auk þess sem að sjálfsögðu verður að koma til umhyggja gagnvart því fólki sem verður fyrir slíkum sjúkdómi.

Eins og ég sagði áðan, þá var fyrirhugað að geðdeildin yrði fullbúin 1978. Nú talar hæstv. ráðh. um að hún geti orðið fullbúin í árslok 1980. En ég er ansi hræddur um að eins og fjárveitingum hefur verið háttað hingað til, þá dragist það allmikið fram yfir þetta. Það er borið við efnahagslegum örðugleikum í þjóðfélaginu, En ég vil benda á það, að þegar efnahagslegir örðugleikar eru, þá er ekki farið eins illa með peninga með nokkru öðru móti en því að festa þá í steinsteypu sem ekki er tekin í notkun. Einmitt á slíkum tímum verður að hraða framkvæmdum og hraða þeim svo að þær komist í gagnið. Við skulum muna ástandið eins og það var hér fyrir nokkrum áratugum, þegar Borgarspítalinn í Reykjavík var í byggingu í meira en áratug og á sama tíma framkvæmdir við Landsspítalann sem einnig drógust von úr viti. Slík vinnubrögð eru algjör óhæfa og þau eru mest óhæfa einmitt þegar erfiðleikar eru í efnahagsmálum.

Ég skal ræða þetta mál frekar þegar hin almenna umr. fer fram sem ég hef óskað eftir og hæstv. ræðumaður minntist á, en ég legg áherslu á það, að ég vænti þess að við afgreiðslu fjárlaga næsta árs verði tekin inn nægileg fjárhæð, ekki aðeins til að fullgera göngudeild, heldur einnig til þess að þarna geti komið á næsta ári fyrsta legudeildin.