07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (661)

248. mál, geðdeild Landsspítalans

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það kemur mér ekki alveg spánskt fyrir sjónir þó að hæstv. heilbrrh. verði fyrir einhverjum ádeilum úr hópi þm. Ég var því mjög kunnugur fyrr á árum að það vantaði fé og deilt var um að eitt og annað var ekki byggt. Ég ætla ekki að fara út í þetta. Hæstv. heilbrrh. hefur gert ráð fyrir nánari skýrslugerð um þetta mál og ekkert nema gott um það að segja, En í því sambandi vék hann aðeins að lóð Landsspítalans, og ég vildi að menn vissu það, að það var eitt af mínum síðustu verkum sem heilbrrh. að gera makaskiptasamning við Reykjavíkurborg, þáv. borgarstjóra, Geir Hallgrímsson, núv. forsrh., um stórkostlega stækkun á landsspítalalóðinni. Og við skulum ekki alveg láta það gleymast, að það gerir mögulegar margvíslegar byggingarframkvæmdir fram yfir það sem ella hefði verið. Ég tel það eitt af þýðingarmestu atriðum fyrir Landsspítalann um alla framtíð að þessi samningur var gerður. — Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta. En ég vildi að inn í þetta kæmi að menn minntust þess að þessi samningur var gerður við Reykjavíkurborg og Landsspítalinn fékk þessa stóru lóð sem hann ekki átti áður.