07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (670)

249. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti, Ég hélt nú satt að segja að það' hefði verið prentvilla bara, að fyrirspurninni var beint til dómsmrh. Skýringin á því, að þetta heyrir undir samgrh., er einfaldlega sú, að Siglingamálastofnunin heyrir undir hann og þetta mun vera verkefni hennar. En að sjálfsögðu hefur það verið svo, að það hafa einhverjar tilraunir farið fram með þessa báta af landhelgisgæsluskipum — eða ég veit ekki betur — og ég geri ekki ráð fyrir að það standi á samvinnu í því efni. — Þetta vildi ég aðeins taka fram, en þetta heyrir ekki undir dómsmrh. sem slíkt.