07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

72. mál, stofnlánasjóður vegna stórra atvinnubifreiða og stórvirkra vinnuvéla

Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Á undanförnum áratugum hafa vöruflutningar á landi eflst mjög vegna bættra samgangna, stórvirkari tækja og síaukinnar flutningaþarfar. Vöruflutningar á landi eru nú orðin þjónustugrein, sem vex hröðum skrefum, Nú eru reknir skipulagsbundnir vöruflutningar á milli Reykjavíkur og flestra staða á landinu og hafa flutningsaðilarnir reist vöruafgreiðslur hér í Reykjavík og á ýmsum stöðum úti um land. Flutningastarfsemin er nú í allföstum skorðum og þótt ekki sé um sérleyfi að ræða á flutningaleiðunum, þá hafa sumir aðilarnir og fyrirtækin um árabil annast sömu flutningaleiðirnar, svo að þekking og reynsla flutningsaðilanna hefur varðveist í atvinnugreininni.

Þeir aðilar, sem annast skipulagsbundna vöruflutninga, hafa myndað með sér landssamtök, er nefnist Landvari, landsfélag vörubifreiðaeigenda á flutningaleiðum. Innan félagsins eru flestir þeir aðilar, sem annast vöruflutninga á milli Reykjavíkur og heimabyggða sinna og innan þeirra. Þá eru í félaginu aðilar, sem annast reglubundna mjólkurflutninga í sveitum, þótt þeim fari töluvert fækkandi vegna breytinga á flutningsfyrirkomulaginu, þ.e.a.s. síðan var byrjað á tankvæðingunni.

Atvinnutæki aðila í Landvara eru vörubifreiðar, flutningabifreiðar, yfirleitt þriggja öxla, og er undirvagn bifreiðarinnar fluttur inn frá hinum ýmsu viðskiptalöndum, en síðan er byggt yfir bifreiðarnar hérlendis. Heildarverð hverrar bifreiðar tilbúnar til notkunar er nú um 15 millj. kr. Hafa bifreiðarnar á síðustu þremur árum nær fjórfaldast í verði samfara almennum lánsfjárskorti, og er því svo komið nú að aðilum í Landvara er ofviða að endurnýja bifreiðar sínar nema til komi veruleg lánafyrirgreiðsla. Þörf á stofnlánum til kaupa á vöruflutningabifreiðum hefur raunar alltaf verið brýn, því engin lánastofnun hefur veitt lán beinlínis til kaupa á bifreiðum og með veði í þeim, heldur hafa kaupendur þurft að taka víxillán til skamms tíma og gegn veði í fasteignum sínum, en slík lán liggja ekki á lausu nú, eins og hv. þm. vita.

Vöruflutningar á landi eru svo snar þáttur í samgöngum landsmanna og veigamikil forsenda búsetu viða um land, að nauðsynlegt er að nú komi til lánsfyrirgreiðsla svo að þessi þjónustugrein stöðvist ekki.

Síðla árs 1973 gekk stjórn Landvara á fund a.m.k. tveggja ráðh. og bar fram ósk um að myndaður yrði sjóður til þess að leysa þetta verkefni af hendi. Buðust þeir til að bifreiðastjórarnir legðu í þennan sjóð 1% af brúttótekjum hvers félagsmanns. Hæstv. ráðh, tóku komumönnum vel, en ekkert gerðist í málum þeirra.

Síðan þetta gerðist hefur stjórn Landvara gengið oft á fund hinna ýmsu ráðh., alltaf verið vel tekið, en ekkert verið gert í málum þeirra þar til haustið 1975, að Framkvæmdastofnun ríkisins gekk í málið og útvegaði 40 millj. kr. til að greiða erlenda víxla sem bifreiðastjórarnir höfðu tekið í sambandi við bifreiðakaup, en höfðu enga möguleika til að greiða þá af eigin rammleik, enda voru upphæðir orðnar allt aðrar en þegar lánin voru tekin vegna gengisbreytinga. Þessi fyrirgreiðsla var gerð með a.m.k. vitund hæstv. ríkisstj., ef ekki með samþykki hennar.

S.l. vetur flutti samgn. hv. Ed. frv. að beiðni hæstv samgrh. um myndun Stofnlánasjóðs vörubifreiðastjóra á flutningaleiðum. Frv. þetta rann í gegnum hv. Ed., en þegar málið kom til umfjöllunar í hv. samgn. Nd. kom í ljós að formaður n. ásamt öðrum nm. var ófáanlegur til að mæla með samþykkt frv., og þegar á þá var gengið kom í ljós að það var hæstv. fjmrh. sem hafði tekið í spottann og vildi hindra framgang málsins. En þrátt fyrir þetta skiluðu fimm nm. nál. og mæltu með samþykkt frv. Hæstv. forseti d. tók málið ekki á dagskrá og dagaði frv. uppi. En 18. mars var samþ. þáltill. um svipað efni Að vísu náði hún yfir stærra svið: atvinnubifreiðar og stórvirkar vinnuvélar. En þar sem mál þetta þolir ekki lengri bið og þar sem ég tel að Landvaramenn hafi a.m.k. fengið vilyrði fyrir þessari sjóðsstofnun hef ég leyft mér að bera fram fsp. á þskj. 78 til hæstv. fjmrh. þar sem hann hindraði málið í fyrra og er fsp. þannig, með leyfi forseta:

„Hvað hefur ríkisstj. gert til þess að framfylgja þál. er samþ. var 18. mars s.l. um að komið verði á fót stofnlánasjóði vegna stórvirkra atvinnubifreiða og stórvirkra vinnuvéla?“