07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (681)
46. mál, Styrktarsjóður vangefinna
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Mér finnst ástæða til að fagna efni ræðu hæstv. félmrh. um Styrktarsjóð vangefinna og fjármögnun þeirra verkefna sem á þessu sviði biða úrlausnar. Mér fór sem fleirum, sem hafa sérstakan áhuga á þessum málum, að það olli mér miklum vonbrigðum að ekki skyldi fást framlengt tappagjaldið svokallaða, sem fellt var niður 1. júlí s.l., þrátt fyrir mjög ákveðna umsókn samtaka þroskaheftra um að halda því áfram og hækka það í samræmi við hækkað verðlag. Ég ætla ekki að hafa mörg orð hér um, en ég vil eindregið vænta þess að framfylgt verði lokaorðum hæstv. félmrh. um að vænlegasta leiðin til leiðréttingar hér verði að flytja frv. um að þetta fasta vörugjald verði tekið upp aftur í stað þess að leggja það í vald Alþ. og fjvn. árlega hve þessi upphæð skuli vera mikil.
Hæstv. ráðh. færði rök að því að þau verkefni, sem nú þegar eru hafin að því er varðar byggingu ýmissa stofnana í þágu vangefinna, hljóta auðvitað ekki nándar nærri nógan styrk með þessum 40 milljónum sem ætlaðar eru nú samkvæmt fjárlögum. Það kom fram að 120 millj. hefðu það átt að vera ef farið hefði verið nokkurn veginn að till. samtaka vangefinna, þannig að sýnt er að bæði heimilinu á Akureyri, Sólborg, Egilsstaðaheimilinu, Tjaldanesi og þeim öðrum stofnunum, sem þegar hafa framkvæmdir á döfinni, verður engan veginn sinnt að neinu gagni með þessari upphæð sem er gert ráð fyrir í fjárlagafrv.
Ég vil taka undir það, að áhugafólk hefur unnið hér ómetanlegt starf, og ég held að enda þótt ríki og sveitarfélög komi til með að sinna þessum málum meira en hefur verið, þá munum við ekki gera ráð fyrir því að áhugafólkið láti deigan síga. Það hefur jafnan verið svo, að þess konar mál hafa átt hvað bests stuðnings að vænta úr þeirri átt og svo verður áfram. En það er sýnt að þetta fólk þarf fjárhagslegan stuðning frá hinu opinbera til þess að koma verkefnum sínum í framkvæmd. Ég vil benda á að í tveimur landshlutum, í Vesturlandskjördæmi og á Vestfjörðum, eru engar stofnanir og engin úrræði enn skipulögð til þess að mæta þessum vandamálum. Þar bíða ásamt þeim verkefnum, sem þegar ern á döfinni annars staðar, mikil verkefni sem krefjast óhjákvæmilega mikilla fjármuna á næstu árum, og ég vænti þess að áframhaldandi starf áhugafólks megi njóta meiri skilnings og meiri flárveitinga frá hinu opinbera en hingað til hefur verið.