07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (684)
46. mál, Styrktarsjóður vangefinna
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er kunnugt að ýmsir eru andvígir þessum svokölluðu mörkuðu tekjustofnum, einsog þeim sem við ræðum um hér. Ég vil taka það alveg skýrt fram að ég er á gagnstæðri skoðun. Náttúrlega má færa mörg rök fyrir því frá sjónarmiði ríkissjóðs og opinberrar sýslu að æskilegra sé að hafa þá fáa eða enga, þessa mörkuðu tekjustofna. En ég þekki það ákaflega vel af reynslunni, að því er þannig farið um fjölmörg mannúðarmál, líknarmál og framfaramál, að það hefur ekki tekist að fá það fjármagn, sem væri viðunandi, til slíkra mála með fjárveitingum í fjárl., en hvað eftir annað hafa markaðir tekjustofnar bjargað málunum við. Einn þeirra er þessi. Ég verð að viðurkenna að mér er málið kannske nokkuð skylt, vegna þess að ég var einn flm. að frv. á Alþ. 1956 þegar þetta gjald, þessi markaði tekjustofn til Styrktarsjóðs vangefinna var ákveðinn. Við vorum 4 þm., einn úr hverjum flokki, sem fluttum þetta frv., sameinuðumst um það, og sá maður, sem lagði stærsta skerfinn til þess, var þá utan þings, hv. núv. 2. þm. Reykn., Oddur Ólafsson.
Ég vil líka ítreka það sem ég sagði áðan, að af þeim tveimur leiðum sem fyrir hendi eru, annars vegar að stórhækka framlagið í fjárl, hitt að lögfesta framlengingu þessa gjalds og hækkun, þá er ég fyrir mitt leyti hlynntari því að síðari leiðin verði farin.