07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (698)

76. mál, greiðslufyrirkomulag úr Fiskveiðasjóði vegna smíða fiskiskipa

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Þessi fsp. gefur vissulega tilefni til umr, um fræðsluskrifstofurnar almennt, en á því er að sjálfsögðu ekki færi í fsp.-tíma á hv. Alþ. Ég vildi aðeins með örfáum orðum leggja áherslu á það, að fjárhagsvandi fræðsluskrifstofanna verði leystur, eins og aðrir hv, ræðumenn hafa lagt áherslu á. Það eru sjálfsagt ýmsar leiðir til, en mér sýnist þó einsýnt að fjárhagsvandi fræðsluskrifstofanna verði leystur með því að sveitarfélögunum eða landshlutasamtökunum verði fenginn tekjustofn, eins og reyndar gert var ráð fyrir þegar grunnskólalögin voru sett hér á hv. Alþ. á sínum tíma. Þá var að vísu gert ráð fyrir því að landshlutasamtökin yrðu lögfest sem ákveðnar stjórnsýslueiningar í okkar stjórnsýslukerfi, en svo varð ekki og verður sjálfsagt ekki, a.m.k. ekki í því formi sem þá var ætlað. En það breytir ekki þeirri staðreynd, að fræðsluskrifstofurnar eru teknar til starfa, skipað hefur verið í embætti allra fræðslustjóranna og það hefur örugglega sannast, að þessar fræðsluskrifstofur hafa gert sitt gagn og þær hafa sannað tilverurétt sinn svo að menn vilja ekki missa af þeim.

Ég hygg að einfaldast sé að breyta lögum um söluskatt og um leið lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Það hefur stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga lagt til og einnig undirnefnd sú sem starfar á vegum samvinnunefndar um verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar er lagt til að Jöfnunarsjóður fái af söluskatti 81/4% í stað 8% eins og nú er. Ef sú lagabreyting fengist fram, þá held ég að fullyrða megi að þessi vandi væri leystur. Sjálfsagt mætti nefna fleiri leiðir, en ég sé ekki ástæðu til þess að gera það við þetta tækifæri. Ég legg aðeins áherslu á það, að sveitarfélögin geta ekki unað því að á þau séu lagðar byrðar og þeim lofað tekjustofni til þess að standa undir þeim, en svo sé ekki staðið við það. Og ég held að hæstv. ríkisstj. megi vita af þeim umr., sem hér hafa þegar farið fram, hver áhugi er á lausn þessa máls. Ég treysti því að hæstv, ríkisstj, finni lausn á þessu máli.

Ég bendi svo á í lokin að fjölmargar sveitarstjórnir hafa gert ályktanir um þetta mál nú á síðustu víkum og skorað á stjórnvöld að bregðast nú skjótt við og leysa þennan vanda. Það sama hafa aðalfundir landshlutasamtakanna gert.