07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
76. mál, greiðslufyrirkomulag úr Fiskveiðasjóði vegna smíða fiskiskipa
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég tek hér til máls til að leggja þunga áherslu á að þetta mál verði leyst. Ég vil kveða enn þá ákveðnar að orði heldur en hv. síðasti ræðumaður. Ég held að þetta sé grundvöllurinn í sjálfu sér undir þessari löggjöf, og ef þetta verður brotið niður, þá getum við varla vænst þess að þessi lög komist til framkvæmda á þann hátt sem stefnt var að. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta. Ég get tekið undir allt það sem hæstv. menntmrh. sagði áðan um þetta efni, og ég vonast til þess að það skipti ekki máli hvar í flokki menn standa. Þetta er löggjöf sem við erum búnir að samþykkja. Ef þetta verður brotið niður, þá er að mínu mati grundvöllurinn brostinn.