07.12.1976
Sameinað þing: 30. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

48. mál, litasjónvarp

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Ég gat því miður ekki verið viðstaddur fyrsta hluta þessarar umr., en ég hef kynnt mér nokkuð það sem fram fór og vil fara um þetta mál nokkrum orðum og jafnframt vil ég leyfa mér að nota tilefnið til þess að víkja að útvarpsrekstrinum almennt. Hugmyndir um árlegar skýrslur ráðh. eru nú kannske of umfangsmikið fyrirtæki, en öðru hvoru a.m.k. held ég sé þörf á því að ræða opinskátt og ítarlega einstök atriði í framkvæmd mála sem ríkisstj. fer með í umboði Alþingis.

Ég vil fyrst rifja það upp, að þegar ég kom til starfa í menntmrn. var í fárhagur Ríkisútvarpsins vægast sagt ekki góður. Bæði afnotagjöldum og auglýsingatöxtum hafði verið haldið mjög niðri, þannig að þessi gjöld höfðu dregist langt aftur úr t.d. þeim töxtum sem giltu fyrir auglýsingar í blöðum, og afnotagjöld útvarps og sjónvarps höfðu lækkað mjög mikið hlutfallslega í samanburði við áskriftargjöld dagblaðanna. Sett hafði verið n. til að gera úttekt á rekstri stofnunarinnar og till. um hagræðingu einstakra atriða. Sú n. skilaði ekki skýrslu fyrr en nokkru síðar, eða í maí 1975. Haustið 1974 og um áramótin 1974–1975 og fram eftir vetri skuldaði Ríkisútvarpið Landsbankanum mjög verulegar fjárhæðir óumsamið og svo ríkissjóði. Húsbyggingarsjóður fyrirtækisins lögákveðinn var um þessar mundir lánaður til rekstrarins og fyrirsjáanlegur var áframhaldandi hallarekstur ef ekki yrði að gert. Um fjárhagslega stöðu Ríkisútvarpsins og aðstöðu þess yfir höfuð að tala um þessar mundir er annars þetta að segja til viðbótar:

Ríkisútvarpið, hljóðvarp býr enn í leiguhúsnæði og möguleikar til bygginga, sem eitt sinn voru fyrir hendi, voru þá látnir fjúka út í veður og vind. Aðalsendistöð útvarpsins á Vatnsendahæð er orðin það gömul, að senn hlýtur að draga að því að endurnýja þurfi, svo að ekki sé kveðið fastar að orði — sem þó væri e.t.v. ástæða til — um ásigkomulag þessarar gömlu og góðu stöðvar. Fjölmargar tækninýjungar koma til sögu ár hvert, sem nauðsynlegt er, ef vel á að vera, að tileinka sér jafnharðan. Dreifikerfi útvarpsins hefur hvergi nærri verið komið í viðunandi horf. Á vissum svæðum á landinu eru útvarpsnot ófullnægjandi af þessum sökum, og dreifikerfi sjónvarpsins var byggt í skyndi og oft stuðst við ódýrar lausnir. Sums staðar settu heimamenn upp bráðabirgðastöðvar sem ekki hafa enn verið endurnýjaðar og sumar eru orðnar æði-hrörlegar nú, og á allmörgum stöðum á landinu sjá menn alls ekki sjónvarp, eins og kunnugt er og margsinnis hefur verið um rætt. Þá er enn þess að geta, sem einnig hefur verið hér til umr., að sjónvarps nýtur yfirleitt illa og mjög viða alls ekki á fiskimiðum umhverfis landið.

Eins og þessum málum var komið 1974, þá áleit ég að óhjákvæmilegt væri að ganga fyrst af öllu í það að rétta við fjárhag stofnunarinnar. Mér var ljóst að framkvæmdir af ýmsu tagi, þ. á m. viðhaldsframkvæmdir, voru í raun allt of litlar ár hvert miðað við þarfir. En ég áleit fyrsta skilyrðið til að unnt væri að standa sig með viðhald og endurbætur og nýbyggingar, það væri að rétta fjárhag stofnunarinnar við, án þess væri ekki að vænta að fjármagn fengist til nauðsynlegra framkvæmda.

Nú er kannske ekkert sem virðist sjálfsagðara fljótt á lítið heldur en það, að þessi stofnun, sem tvímælalaust nær til allra landsmanna, búi við nægilegar tekjur, sæmilega afkomu. En þetta var nú ekki í raun og veru svona einfalt. Hækkun auglýsinga hlýtur auðvitað að takmarkast af því sem markaðurinn þolir. Og ég verð að segja það, að skilningur á nauðsyn þess að hækka auglýsingar útvarps og sjónvarps, já, ekki síður sjónvarpsins, var í fyrstu nokkuð takmarkaður hjá stofnuninni sjálfri. Menn óttuðust að allar verulegar hækkanir mundu bitna á markaðnum. En þetta hefur ekki reynst svo. Hækkun afnotagjaldanna sjálfra er einnig og ekki siður töluvert viðkvæmt mál því fólki, sem á að greiða gjöldin. Það kveinkar sér að sjálfsögðu nokkuð við hækkunum. Fljótt á litið er það e.t.v. vorkunnarmál. En séu afnotagjöld útvarps og sjónvarps aftur á móti borin saman við annað verðlag í landinu, t.d. áskriftargjöld blaða, þá er sannarlega ekki yfir neinu að kvarta. En einnig er svo hitt, sem veldur tregðu að hækka mjög þessi gjöld, að þau hafa áhrif á vísitöluna og það hefur á öllum tímum verið erfiður biti fyrir ríkisstj. að standa að hækkunum þessara gjalda af þeim orsökum.

Í þessar hækkanir varð samt sem áður að ganga, eins og ástandið var orðið, og það hefur verið gert. Einstök atriði hafa hins vegar gripið hér inn í og í þá veru að rýra þessa tekjustofna útvarpsins og þá einkum sjónvarpsins. Þar sem sjónvarpsnot eru mjög takmörkuð vegna lélegrar myndar eða vegna truflana og stundum vegna bilana í sendistöðvum eða dreifikerfi var og er innheimtan erfið. Menn vilja ógjarnan borga fullt gjald fyrir lélega þjónustu. En það er hins vegar mjög miklum erfiðleikum bundið, eins og áður hefur verið minnst á hér, að gefa afslætti eða undanþágur undir þessum kringumstæðum. En ágreiningur um þetta hefur þó vissulega dregið nokkuð úr innheimtu og sums staðar valdið sárindum sem svo hefur verið reynt að auka á með blaðaskrifum og á annan hatt. Í annan stað hefur svo verið tekin upp undanþága afnotagjalds fyrir elli- og örorkulífeyrisþega undir tilteknum kringumstæðum. Þessi undanþága þýðir tekjuskerðingu hjá útvarpinu upp á tugi millj., eins og nú er orðið, ég ætla á þessu ári upp undir 30 millj. kr. tekjuskerðingu. Framkvæmd þessarar undanþágu er ákaflega miklum erfiðleikum bundin. Mér sýnist satt að segja og hef sagt það áður að nú þegar á þetta hefur reynt, þegar nokkur reynsla er komin á notkun þessarar heimildar, að hana eigi að afnema og það verði þá að rétta hlut aldraðra og öryrkja með öðrum hætti. Það er að lögum ekkert athugavert við það að sá aldraði á heimilinu eigi sjónvarpstæki — ekki neitt. En það er náttúrlega ekki til þess ætlast. Ríkisútvarpið sjálft getur ekki haft neitt eftirlit með framkvæmd þessarar undanþágu eins og hún er framkvæmd, og ég álít að Ríkisútvarpið og aðrar hliðstæðar stofnanir ríkisins eigi ekki að vera framfærsluaðili, það sé eðlilegra að leysa framfærsluhliðina á annan hátt.

En ég árétta að það var ekki eins auðvelt og menn kynnu að halda í fljótu bragði að rétta fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins eins og hún var orðin. En þetta hefur nú tekist að því marki, að í dag hefur skuldin við Landsbankann verið þurrkuð út. Hún var sett á samning og hefur nú verið þurrkuð út og einnig skuld við ríkissjóð, og húsbyggingarsjóðurinn hefur verið réttur af að vissu marki.

Þegar ég sá fram á að þetta takmark var í nánd, þá skipaði ég þriggja manna n. til þess að gera tímasetta áætlun um dreifingu sjónvarpsins og till. um tekjuöflun til þeirrar framkvæmdar. Hér má einnig minna á — og ég vil sérstaklega þakka till., hv. alþm. á síðasta þingi varðandi dreifingu sjónvarpsins. Sá tillöguflutningur var vissulega til uppörvunar. Mþn. hefur íhugað þessa og aðra þætti sjónvarpsmálsins, svo sem örbylgjusambandið, litasjónvarpið o.fl. Þessi n. hefur nú skilað fullfrágengnum tillögum sem ég hef nú í dag látið senda alþm. til upplýsingar um störf n. og um málið yfirleitt. Óháð þessari nefndarskipan hefur Ríkisútvarpið, stjórnendur þess og tæknimenn, svo og tæknideild Landssímans bæði fyrr og síðar leitast við að fylgjast með tækninýjungum sem allra best. Og að sjálfsögðu hafa þessir aðilar fylgst nákvæmlega með því sem fram fór í stöðva- og dreifikerfinu hér heima, hversu ásigkomulag þess hefur verið á hverjum tíma og hver nauðsyn er þar til endurnýjunar. Það gildir auðvitað bæði um útvarp og sjónvarp, um viðhald og einstaka þætti nýjunga eins og litasjónvarps, not gervihnatta o. s. frv. Á öllum þessum stigum hafa tæknimenn stofnana, sem um þessi mál fjalla, reynt að fylgjast sem best með. Og þessir tæknimenn hafa tvímælalaust unnið mikilsvert starf á þessu sviði sem vert er að þakka. Auk þess sem það er þýðingarmikið fyrir dagleg störf, þá verður það að sjálfsögðu mjög þýðingarmikið til undirbúnings þegar taka þarf pólitískar ákvarðanir um framkvæmdir og fjáröflun til þeirra í framkvæmda.

Eins og að líkum lætur, hafa sérfræðingar Ríkisútvarpsins og stjórnendur þess oftlega farið utan á fundi og ráðstefnur til þess að kynna sér þróun mála og fylgjast sem best með hver á sínu sviði. Litasjónvarpsskýrsla sú, sem nokkuð hefur verið umrædd í blöðum og ekki var dreift til fjölmiðla né alþm. á sínum tíma, var m.a. byggð á upplýsingum sem fengist hafa á slíkum ferðalögum. Þessi skýrsla var fyrir nokkru afhent útvarpsráðsmönnum og alþm. geta og eins aðrir, sem áhuga hafa, fljótlega fengið hana til skoðunar. En skýrslan er unnin af starfsmönnum Ríkisútvarpsins, þeim Pétri Guðfinnssyni framkvæmdastjóra sjónvarps og Herði Frímannssyni verkfræðingi.

Með tilliti til þess, sem ég áðan greindi frá, hef ég flýtt mér hægt í þessu litasjónvarpsmáli að öðru leyti en því, að unnið hefur verið að öflun tæknilegra upplýsinga og frumáætlanir gerðar. Ég vildi fyrst sjá stofnunina rétta sæmilega við hvað reksturinn áhrærir og svo annað hitt, að verkefnin, sem bíða úrlausnar, eru svo brýn og svo umfangsmikil að óhjákvæmilegt er að velja og hafna og leggja verulega vinnu í undirbúning að ákvörðun hvað þetta snertir. Og það er auðvitað óhjákvæmilegt að tryggja tekjur til framkvæmda fyrir fram, þannig að unnt sé að vinna að þeim nokkuð skipulega og í samræmi við fyrir fram gerðar áætlanir. Í annan stað var það svo, að skyndileg tilkoma litasjónvarps hefði verið og er töluvert alvarlegt atriði fyrir gjaldeyrisstöðuna. Litasjónvarpstækin eru þrisvar sinnum dýrari en svarthvít tæki. Gjaldeyrisviðskiptin hafa ekki verið hagstæð, staðan hefur ekki verið góð og er það ekki enn, þó að ögn hafi nú rofað til.

Þessi till., sem hér liggur fyrir til umr., er um það að Alþ. skori á ríkisstj. að stuðla að því, að íslenska sjónvarpið geti hafið reglulega litaútsendingu, með því að samþykkja áætlun sjónvarpsins sem er í raun og veru aðeins skýrsla þessara tveggja manna, en eins og þar segir, — að samþykkja áætlun sjónvarpsins sem kveður á um hvernig að því skuli staðið í áföngum, gefa frjálsan innflutning á litasjónvarpstækjum og að ákveða að tolltekjum af innflutningi slíkra tækja skuli varið til endurbóta á tækjum og dreifikerfi sjónvarpsins.

Ég held nú satt að segja að Alþ. þurfi margs að gæta áður en það afgreiðir þessa till. Ég bendi t.d. á það, að sú áætlun sjónvarpsins, sem hér er talað um, er aðeins skýrsla tveggja starfsmanna þessarar stofnunar, eins og ég áðan sagði, — ég árétta það að sú áætlun er aðeins um víss áfangaskipti sem alls ekki eru tímasett í skýrslunni á nokkurn hátt, og svo áætlun um kostnað, en sú áætlun er mjög lausleg af eðlilegum ástæðum. Það gefur því heldur óljósa mynd af vilja Alþingis í þessu máli ef samþykkja ætti fyrsta lið þessarar till. eins og hann er orðaður.

Eins og ég sagði áðan, þá getur þessi skýrsla verið til afnota fyrir alþm. innan tíðar, þá sem áhuga hafa á því að sjá hana. En ég vil þó núna upplýsa það, að í skýrslunni er gengið út frá sjö áföngum.

Í 1. áfanga er lagt til að nokkur tæki verði keypt nú þegar til þess að fylgjast með og tryggja gæði útsendinga á myndsegulböndum í lit og til þess að geta sent út stillimynd í lit vegna viðgerðarþjónustu við sjónvarpstækjaeigendur. Þessi tæki eru síðan skilgreind nánar, og er talið í vetur, en þessi skýrsla var dags. 6. febr. 1976, þá var talið að þau mundu kosta 17.5 mills. kr. Hér er að því vikið að útsending í lítum hafi verið liðlega 20% af heildardagskrá sjónvarpsins í jan. 1976. En mér er hins vegar sagt að núna sé litaútsendingin eitthvað örlítið meiri en þetta að öllum jafnaði, en ég hygg þó ekki yfir 25%.

Í 2. áfanga sjónvarpsskýrslunnar er svo lagt til að fengin verði tæki sem geri sjónvarpínu kleift að hefja litaútsendingar á fréttalestri, kynningarþulum, veðurfréttum, viðtölum, umræðuþáttum og öðrum einföldum upptökum í núverandi sjónvarpssal, og er áætlað, að þessi tæki kosti 321/2 millj. kr, en þá væri hægt að hefja útsendingu á íslensku efni í lit. einsog ég áðan sagði eru þessar hugmyndir ekki tímasettar nema aðeins 1. áfanginn, sem gert er ráð fyrir að ráðast í á næsta ári.

Í 3. áfanga er lagt til að keypt verði tæki sem geri mögulegt að taka upp stutta atburði utan sjónvarpshússins, þ.e. beranleg sjónvarpstökuvél og myndsegulbandstæki o. s. frv., og er það áætlað á 10 millj. kr.

Í 4. áfanga er svo lagt til að kaupa sjónvarpsupptökubifreið ásamt upptökuvélum. Kostnaðaráætlun um það er mjög lausleg, en 60–120 millj. kr. er skotið á, og það fer væntanlega nokkuð eftir því hversu dýr og vönduð tæki yrðu þá keypt.

Í 5. áfanga er lagt til að komið verði upp nýjum upptökusal fyrir sjónvarpið, sem eins og þar segir leysti af hólmi núverandi upptökusal sjónvarps og yrði hann þá tekinn til annarra nota. Segir þarna að eðlilegt væri að þessi salur yrði tilbúinn fljótlega eftir komu upptökubifreiðarinnar. Höfundar skýrslunnar segja að mjög erfitt sé að áætla kostnað við þessa byggingu, en sé miðað við að salnum fylgi ýmislegt annað húsnæði sem fylgja þyrfti í raun og veru, þá mætti ætla kostnað við þennan áfanga um 200 millj. kr.

Í 6. áfanga er svo hugmyndin að kaupa litaframköllunarvél o.fl. og kostnaður þá um 45 millj. kr., en þess þó jafnframt getið, að vel sé hugsanlegt að komast af með einfaldari og ódýrari tæki.

Og þá er loks 7. og síðasti áfanginn, en þar er um að ræða fleiri upptökuvélar og áætlað verð er 120 millj. kr. Höfundar skýrsíunnar benda á visst hagræði í því að draga kaup á þessum dýru vélum með tilliti til þess, að nú er að þeirra dómi mjög ör þróun í gerð þessara véla og kynnu að koma til tækninýjungar sem gerðu þessa hluti viðráðanlega á þeim tíma sem verið væri að vinna að framkvæmd fyrri áfanga.

Þá er í skýrslunni rætt um þjálfun starfsmanna. Höfundar gera nokkra grein fyrir hvernig henni yrði haganlegast fyrir komið, en setja ekki upp sérstaka kostnaðaráætlun þar að lútandi. Þá rifja höfundar skýrslunnar það upp, að samkv. eldri áætlun frá Pósti og síma, þ.e. áætlun frá 1974, hafi þurft í árslok þá 660 millj. kr. til þess að gera skilyrði til sjónvarpsmóttöku viðunandi hjá nær öllum landsmönnum. Það er álit höfunda skýrslunnar að ekki muni miklu hvort allt dreifikerfið verði lithæft eða ekki þegar þurfi að gera það upp hvort sem er. Meginhluti endurbótanna á því sé nauðsynlegur hvort sem um er að ræða lithæft kerfi eða ekki.

Eins og sjá má af þessari mjög svo lauslegu kostnaðaráætlun sem ég hef nú rifjað hér upp, þá er um að ræða kostnað upp á mörg hundruð millj. kr., 500 millj, a.m.k., eins og þessu er stillt upp hér. En vitanlega hækka þessar tölur jafnt og þétt eins og aðrar kostnaðartölur.

Í grg. till. þeirrar, sem hér liggur fyrir til umr., er talað um að ríkisstj. hafi lagt bann við innflutningi litasjónvarpstækja. Þetta er nú ekki alls kostar rétt að orði komist. Litasjónvarpstækin voru á sínum tíma tekin út af frílista og síðan hefur þurft sérstakt leyfi og slík leyfi hafa verið veitt nokkrum sinnum. Ég held að það hafi verið flutt inn um upp undir 1000 tæki síðan þetta kom til, síðan litnum var sleppt lausum, þannig að það hefur ekki verið um beint bann að ræða á innflutningi þessara tækja. Hindranir þessar á frjálsum innflutningi litasjónvarpstækja eru auðvitað til komnar út af þeim gífurlegu gjaldeyrisörðugleikum sem verið hafa og ekki er enn séð fyrir endann á og voru hvað hrikalegastir þegar takmarkanirnar voru upp teknar. Hins vegar er þetta mál að sjálfsögðu til skoðunar og ég skal ekkert fullyrða um hvenær breyting verður á því gerð. Það er ekkert um það að villast að litasjónvarpstækin eru miklu dýrari í innflutningi heldur en svarthvít, þrisvar sinnum dýrari, eins og ég sagði áðan. Og það er sem sagt sá mismunur sem um er að tefla þegar rætt er um hindraðan eða óhindraðan innflutning á litasjónvarpstækjum. En þó er þess vitanlega að gæta, að það er enginn kominn til með að segja það, að sá gjaldeyrir, sem ekki færi í kaup á litasjónvarpstækjum vegna skömmtunar, færi þá ekki í einhver önnur gjaldeyriskaup, að hann sparaðist hreinlega. Hitt er sjálfsagt eins víst, að honum mundi að miklum hluta verða varið til kaupa á öðrum tækjum og öðrum hlutum áþekkum kannske. Þannig er margt afstætt í þessu máli, og þar á meðal held ég að endurnýjunarþörfin á sjónvarpstækjunum almennt sé kannske ekki alveg eins mikil og látið er í veðri vaka á stundum. Það er hins vegar mannlegt og skiljanlegt þó að ýmsir aðilar vilji gera úr henni heldur meira en minna.

Í 3. lið þáltill. er skorað á ríkisstj. að láta tolltekjur af innflutningi litasjónvarpstækja ganga til endurbóta á tækjum og dreifikerfi sjónvarpsins. Ég held að það þurfi nú kannske enga sérstaka þál. um þetta út af fyrir sig. Ég hygg, að þetta sé lík framkvæmd og nú á sér stað. Ég tel að það væri ekki ráðlegt að afgreiða þessa till. t.d. óbreytta og afgreiða hana þannig án tengsla við aðra þá þætti sem hljóta að koma til skoðunar þegar gera skal framkvæmdaáætlun fyrir Ríkisútvarpið. Ég held að það verði að vega og meta þarfirnar á breiðum grundvelli og taka síðan ákvarðanir að slíku mati loknu.

Í áliti mþn. segir á bls. 14, — ég vil leyfa mér að vitna í það þó að ég að öðru leyti fari ekki langt út í að ræða þetta nál. sem þm. hafa fengið á borð til sín, — en þar eru dregnar saman niðurstöður og um leið till. mþn. í 7 tölul., sem ég ætla — með leyfi hæstv. forseta — að lesa:

„1. Lokið verði við að koma sjónvarpi til allra notenda á landi á næstu 4 árum, 1977–1980, og hafin bygging endurvarpsstöðvar fyrir fiskimiðin árið 1979.

2. Ákveðin verði 5 ára framkvæmdaáætlun 1977–1981, sem auk þess að ná til ofangreindra atriða nái til annarra nauðsynlegra framkvæmda á sviði sjónvarps á tímabilinu.“ Hér undir fellur t.d. örbylgjusambandið og fyrstu framkvæmdir við litasjónvarp samkv. skýrslunni sem ég áðan rakti.

„3. Innflutningur litasjónvarps verði gefinn frjáls, afnotagjöld af litasjónvarpstækjum verði hærri en af svarthvítum tækjum.

4. Tolltekjur renni óskiptar til framkvæmda samkv. framkvæmdaáætlun.

5. Í afnotagjöldum verði gert ráð fyrir fjármagni til endurnýjunar dreifi- og útsendingarkerfisins meira en nú er gert.

6. Fjárvöntun verði mætt með lántökum sem endurgreiðist fyrir 1989. Á 5 árum framkvæmdaáætlunar er fjárvöntun áætluð 49f millj., tekjur til ársins 1989 eru hins vegar áætlaðar 875.3 millj. kr. hærri en þekkt framkvæmdaþörf á sama tímabili.

7. Allar tölur og áætlanir eru miðaðar við verðlag í nóv. 1976. Áætlanir verði endurskoðaðar í lok ársins 1977.“

Þetta eru niðurstöður mþn. Í till. hennar er sem sagt gert ráð fyrir því, að næstu 5 árin sé megináhersla lögð á sjálfa dreifingu sjónvarpsins, á atriði eins og endurnýjun bráðabirgðastöðvanna og skyld verkefni, örbylgjusamböndin í framhaldi af því sem nú er verið að gera, á nýjar sjónvarpsdreifistöðvar fyrir smærri hverfín sem enn eru sjónvarpslaus. Það er sem sagt gert ráð fyrir í þessum till. að láta þessi atriði hafa forgang, áður en fyrir alvöru er snúist við litasjónvarpinu. En þó er, eins og ég áðan sagði, einnig gert ráð fyrir því að sinna fyrstu og ódýrari áföngunum, þeim sem nefndir eru í litasjónvarpsskýrslunni, en hinar dýrari framkvæmdir allar við litasjónvarp kæmu ekki til fyrr en síðar. Þannig er í þessum till. mþn. reynt að fara bil beggja, flýta dreifingunni, en greiða einnig nokkuð fyrir tilkomu litanna.

Mér er alveg ljóst að það hlýtur að verða mjög mikill þrýstingur á um hröðun upptöku litasjónvarps, og ég tel alveg nauðsynlegt að marka nokkuð ákveðna stefnu að þessu leyti sem hægt væri síðan að framfylgja án þess að hnika þar miklu til — að marka slíka ákveðna stefnu fyrir fram. Mþn. gerir ráð fyrir því, að framkvæmdir berist uppi að verulegu leyti af tolltekjum. og gengur þá út frá því að innflutningur litasjónvarpstækja verði leyfður. Ég tel einnig, eins og fram hefur komið áður í máli mínu núna, að það muni verða gert í vaxandi mæli, enda er nú innflutningur almennt frjáls. En það breytir ekki þeirri skoðun minni, að ég álít, að takmörkunin til þessa hafi verið algerlega eðlileg og alveg sjálfsögð þegar hún var tekin upp, eins og allt var þá í pottinn búið.

Ég vil í þessu sambandi benda á það, að hvort sem innflutningur litasjónvarpstækja verður eitthvað heftur eða ekki, þá verður óhjákvæmilegur innflutningur á næstu árum á sjónvarpstækjum yfir höfuð að tala til þess að endurnýja eldri tæki. Það gerist hvort sem mönnum er það ljúft eða leitt, en í hvað ríkum mæli skal ég engu spá um og læt mér nægja að vísa til nál. hvað það snertir. Mér sýnast nú spár þeirra vera nokkuð varlegar. Ég held að þeir geri t.d. ráð fyrir innflutningi á 1800 litasjónvarpstækjum á fyrsta ári eftir að gefið væri frjálst, einsog þeir gera ráð fyrir, en síðan mundi nokkuð draga úr honum. En ég skal sem sagt ekkert um þá spádóma segja. En í þessu sambandi og í sambandi við þetta spjall um litasjónvarp eður ei, þá vil ég láta það koma fram hér, að í litasjónvarpsskýrslunni leggja þeir tæknimenn, sem hana unnu, áherslu á það, að litasjónvarp ryður sér til rúms með vaxandi hraða hvarvetna í veröldinni og fer að verða erfitt senn hvað líður að fá varahluti í svarthvítt sjónvarp og af þeim ástæðum telja þeir nauðsynlegt að þeir, sem nú endurnýja sjónvarpstæki sín, geti átt þess kost a.m.k. að kaupa litatæki með tilliti til framtíðarinnar. Þannig sem sagt mæla sumir með upptöku þessa blessaða litasjónvarps af tæknilegum ástæðum, aðrir gera það af öðrum ástæðum, löngun eftir litunum, áhuga á auknum gróða af dýrum innflutningi o.s.frv., o.s.frv. En alveg á sama hátt og ég held að hvað sem hver segir, þá verði innflutningur á einhvers konar sjónvarpstækjum mjög vaxandi á næstu árum vegna endurnýjunarþarfarinnar, þannig held ég að það verði ekki hjá því komist að horfast í augu við miklar og dýrar framkvæmdir til viðhalds og endurnýjunar og útfærslu á tækjabúnaði og dreifikerfi Ríkisútvarpsins sjálfs, bæði sjónvarps og útvarps. Þetta kemur líka fram í áliti mþn. sem gerir ákveðnar till. um tekjuöflun af innflutningstollum og hluta afnotagjalda.

En ég skal ekki fara nánar út í till. þessarar mþn. Ég vil bara við þetta tækifæri þakka n. fyrir röggsamlega afgreiðslu málsins. Hún var skipuð, að mig minnir, í júlí í sumar og hefur sem sagt skilað áliti nú. Þetta mál verður auðvitað allt skoðað nokkru nánar og sjálfsagt miklu nánar. Rg get hins vegar sagt það, að ég er í grundvallaratriðum alveg samþykkur þeim hugmyndum sem fram eru settar í þessu nál. Mun ég beita mér fyrir aðgerðum eftir að málið hefur verið skoðað nánar.

En þetta kostar allt mikla peninga, og ég vil leggja áherslu á það, að ég held að við hljótum, hvort sem okkur líkar betur eða verr, vegna þessara gífurlegu þarfa hjá Ríkisútvarpinu að gera allt í senn: að innheimta há afnotagjöld og halda auglýsingatöxtum í því hæsta sem við treystum okkur til. En bitt vil ég jafnframt leggja áherslu á, að við verðum einnig að skoða vandlega allan rekstur útvarpsins. Ég sé ekki betur en að það sé t.d. mjög skoðunarvert, þó að margt mæli því gegn, — þá sé það skoðunar

vert hvort ekki ætti að stytta að einhverju marki útsendingartíma sjónvarps, t.d. með því að fækka sjónvarpsdögum. — Ég er ekkert að fullyrða hver niðurstaða yrði af slíkri athugun. — Og ég gæti líka vel trúað því, að það væri einnig tímabært að skoða vandlega í framhaldi af því, sem þegar hefur verið gert, hvort ekki megi koma við aukinni hagræðingu í starfsemi þessarar umfangsmiklu stofnunar og t.d. í starfsemi sjónvarpsdeildar Ríkisútvarpsins, sem er nýrri deild, en hefur þó þegar fengið 10 ára reynslu.

Tillögur hagræðingarnefndar þeirrar, sem ég rétt vék að í upphafi þessa máls, hafa verið tilumfjöllunar og þær hafa komið til framkvæmda að nokkru leyti, þó ekki stærstu atriðin í þeim till., sem eru breyting á innheimtu afnotagjalda. En þar sem sérstök fsp. hefur verið lögð fram varðandi þetta efni, þá skal ég ekki fjölyrða um það að sinni. Ég vil aðeins segja það út af till. um breytingu á innheimtu afnotagjaldanna, þeirri till. að innheimta gjöld til Ríkisútvarpsins eingöngu af þeim sem borga tekjuskatt, að mér líst ekki á það. Hins vegar tel ég að sjálfsögðu rétt og skylt að athuga vandlega allar hugmyndir sem fram koma til hagræðingar og meiri hagkvæmni.

Ég má kannske aðeins víkja að því, fyrst ég er farinn að ræða svona vítt og breitt um útvarpið í tilefni af þessari þáltill., sem hér er til umr., að útvarpið og þá ekki siður sjónvarpið er að dómi okkar flestra áhrifamesti fjölmiðillinn í landinu. Þetta ber okkur að nýta til hins ítrasta í menningarviðleitni fámennrar þjóðar með takmörkuð fjárráð. Nú veit ég það, að útvarpsráð og dagskrárfólkið vinnur eftir mætti að þessum málum og gerir margt stórvel og leggur sig fram í sínu starfi, og ber ekki að vanþakka það sem gert er. Ég veit líka að um þetta mál, um dagskrá útvarps og sjónvarps, er stöðug umræða, hæði innan stofnunarinnar og utan hennar líka. Mig langar sem dæmi um þær umr., sem fram fara utan stofnunarinnar, að rifja upp örfáa punkta sem ég hripaði hjá mér eftir spjall um, dagskrá sjónvarpsins fyrir nokkru. En þessir minnispunktar sýna nokkuð vei, finnst mér, hvernig velviljað fólk hugsar og talar um þessa hluti þegar það reynir að kryfja þá til mergjar.

Í þessu spjalli kom það m.a. fram að menn sögðu sem svo a.ð dagskráin sætti oft gagnrýni og hað væri kannske ekki að ástæðulausu, en oft væri hún líka illa rökstudd. Það væri t.d. æskilegt að fá samantekið hversu löngum tíma er varið til að sýna erlent efni í sjónvarpinu og hversu löngum tíma fyrir innlent. Jafnframt þyrfti að koma fram hversu mikið af hvoru fyrir sig er hreint skemmtiefni án takmarks og tilgangs, eins og þar stendur, og hvað getur talist hafa gildi til upplýsingar og fræðslu. Og menn töluðu um að það væri æskilegt að athuga alveg sérstaklega hvort ekki bæri að auka hlut hins innlenda efnis og þá með viðráðanlegum kostnaði. Og svo fóru menn að velta því fyrir sér hvað væri hægt að gera til þess að auka hlut innlenda efnisins án þess að til gífurlegs kostnaðar kæmi. Og þá voru m.a. nefnd þessi atriði: Örstuttir málvöndunarþættir þar sem jafnframt almennri málvöndun væri glimt við nýyrði yfir tækniorð og önnur hugtök sem eru að ryðja sér til rúms. Bókmenntakynning og upplestur úr völdum ritum með myndum og teikningum frá sögusviði og öðru sem snertir söguefni. Kynning námsgreina og atvinnuvega var nefnd. Sumt af þessu er sjónvarpið með. Kynning einstakra héraða, fagurra staða eða ferðaleiða með myndum og uppdráttum, - þetta er atriði sem sjónvarpið hefur tekið upp og spurning hvort þar er hægt að gera meira og kannske í öðru formi. Kynning á margvíslegu efni sem hverju mannsbarni er nauðsynlegt að kunna sem best skil á, t.d. hver skuli verða fyrstu viðbrögð þegar kviknað hefur í húsi. Og svo voru nefnd atriði eins og kynning á störfum ýmissa stofnana, bæði ríkisstofnana og stofnana í einkaeign, á sviði menningarmála, atvinnumála o.s.frv., o.s.frv., og var þá látin í ljós sú skoðun að slíkar stofnanir mundu láta í té ódýra og jafnvel ókeypis aðstoð á þessum vettvangi og að þessir þættir gætu orðið forvitnilegir og fróðlegir með tiltölulega litlum tilkostnaði. Og mér dettur nú í hug í þessu sambandi það sem ég gagnrýndi í sjónvarpsviðtali þegar ég var í þriðja skipti kvaddur í sérstakan þátt út af námslánum margumræddum, á sama tíma og ég hafði einu sinni eða aldrei verið kvaddur til að ræða önnur mál sem til meðferðar voru í rn. á sama tíma. Það væri mikilsvert að taka upp jákvæða kynningu á því sem verið er að gera víðs vegar í þjóðfélaginu og að gera hana aðlaðandi fyrir augu og eyru þeirra sem heima sitja. En þetta rifja ég upp sem dæmi um það, hvernig velviljað fólk ræðir þessi mál sín á milli þegar þau ber á góma almennt. (Gripið fram í: Hvaða velviljaða fólk?) Þetta er nú samantekið úr viðtölum við ýmsa kunningja mína, og ég held að það skipti ekki máli, enda hef ég ekki skrifað nein nöfn á þetta minnisblað. En ef hv. þm. hefur ekki náð því sem ég var að segja um þetta, þá get ég lánað honum blaðið á eftir. En sem sagt ekki meira um þetta almennt.

En út af dagskránni vil ég að lokum víkja að tveimur eða þremur sérstökum og afmörkuðum atriðum sem mér finnst að varði nýtingu þessara ríkisfjölmiðla í almannaþágu. Ég vil fyrst minnast á það atriði, að vaxandi tóbaksog áfengisneysla — já, og reyndar neysla annarra fíkniefna, bæði hjá ungum og öldruðum, er vitanlega mikið áhyggjuefni. Og mér finnst eðlilegt að menn spyrji og án allrar áreitni þá: Flytur t.d. sjónvarpið nægilega eða eðlilega mikið efni sem til þess sé fallið að fræða um skaðsemi þessara efna, sem ég nefndi, og vekja athygli á kostum þess að lifa og starfa óháður þessum ávanaefnum? Og í annan stað: Er það kannske hugsanlegt að dagskrá t.d. sjónvarpsins, einstakir þættir hennar, séu til þess fallnir jafnvel að ýta undir neyslu tóbaks og áfengis? Hefur þetta verið ígrundað sérstaklega hjá þeim sem ráða efnisvali og gerð dagskrár? Og í annan stað langar mig að minna á það að ofbeldi, fjársvik og afbrot margvísleg hafa vaxið mjög að undanförnu hér á landi, að talið er, — og því miður er það víst enginn vafi — og þá er spurningin þessi, hvort það sé hugsanlegt að dagskrá sjónvarps eða einstakir þættir hennar séu sérstaklega til þess fallnir að örva þessa þróun, t.d. ofbeldishneigð, — örva þessa þróun fremur en draga úr henni. Hvað um endalausar sýningar glæpa- og ofbeldisverka inni í hvers manns híbýlum? Er það ekki rétt sem fréttir herma — ég hef áreiðanlega heyrt það eða lesið einhvers staðar — að aðrar þjóðir setji upp rannsóknarnefndir og hugleiði mjög og ígrundi áhrif slíkra sýninga í heimahúsum, sýnikennslu sem sumir kalla stundum þegar menn taka meira upp í sig? Og ef við litum á málið frá hinni hliðinni. Er það hugsanlegt að sjónvarpið gæti með skipulögðum hætti veitt meiri stuðning en það nú gerir í baráttunni gegn þessari þróun? Þessar spurningar koma upp í hugann þegar farið er að ræða almennt þessi mál. en ég skal ekki fara lengra út í slík einstök atvik. Þetta var í raun og veru innskot því hér er verið að ræða um tæknilega og fjármálalega hlið þessara mála.

En ég vil svo aðeins segja það, að þessi till., sem hér er flutt, og fleiri till. varðandi Ríkisútvarpið bera vott um skilning alþm. á mikilvægi þessarar stofnunar. Mér ber vissulega að þakka þann áhuga og ég vænti þess og veit raunar að sú þn., sem þetta mál skoðar hér á Alþ., hún íhugar vandlega þessa till., bæði eina sér og þá ekki síður í tengslum við önnur þau verkefni sem úrlausnar biða á vettvangi Ríkisútvarpsins. En sem sagt, hvaðeina sem gert verður — og sumt af því verður að gera — það kostar peninga og þeir peningar koma ekki af himnum ofan, þeir koma frá skattborgurunum 4 einu eða öðru formi. En ég hygg nú samt að þá þyki fleirum betur ef búið er sæmilega að útvarpi okkar og sjónvarpi þannig að stofnunin geti haldið uppi vandaðri dagskrá og komið henni til skila sómasamlega. Ég held að þá þyki fleirum betur heldur en þó að við höldum niðri afnotagjöldunum og annarri tekjuinnheimtu vegna þessa málefnis. En þetta verður að fylgjast að. Það þýðir ekkert að gera framkvæmdaáætlanir nema um leið sé gert ráð fyrir tekjuöflun.

Að lokum vil ég svo minna á það, að þessi till., sem hér er til umr., og svo litasjónvarpsskýrslan og sú skýrsla milliþn., sem ég var að greina frá hérna áðan og dreift hefur verið, þetta allt saman fjallar eingöngu um málefni sjónvarpsins. En eins og fram hefur komið í þeim orðum, sem ég hef hér mælt, þá er vissulega einnig í mörg horn að líta bjá útvarpinu með viðhald tækja, endurnýjun, nýjungar ýmiss konar og raunar aðstöðu alla. Það er nokkuð sem ekki þarf síður að taka til athugunar, og ég mun beita mér fyrir því að sérstök athugun fari fram á þeim þætti í starfsemi Ríkisútvarpsins nánast í beinu framhaldi af þeirri athugun sem þegar hefur verið gerð í milliþn. um sjónvarpíð og dreifingu þess.