08.12.1976
Efri deild: 18. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (715)

91. mál, stjórnarskipunarlög

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki þreyta hv. þd. með löngu máli nú þar sem ég hef áður mælt fyrir frv. sem gengur inn á þetta efni. En mér þykir hlýða, þó ég hafi áður lýst því yfir að ég fagnaði framkomu þessa frv., að endurtaka þau orð. Að meginefni tel ég að fari saman hugmyndir okkar alþfl.-manna og alþb.-manna, — að meginefni, segi ég og tek þar t.d. það sem sagt er í 1. mgr. 1. gr. þessa frv., að það er, má segja, nákvæmlega eins og við höfum verið að skilgreina þessi mál undanfarið, ýmist í þáltill. eða nú í frv.: Öll verðmæti í sjó og á sjávarbotni innan efnahagslögsögu Íslands svo og almenningar, afréttir og önnur óbyggð lönd utan heimalanda eigi að vera sameign þjóðarinnar allrar, einnig námur í jörðu, orka í rennandi vatni og jarðhiti neðan við 100 m dýpi.

Ég vil líka taka undir þau orð sem hv. flm. mælti hér áðan, að það er brýn nauðsyn fyrir þjóðina að marka þessum málum ákveðið form þar sem við lifum í þjóðfélagi sem er sífellt að breytast og viðhorf eru sífellt að breytast til þessara eigna. Þau eru að verða eftirsóttari og eftirsóttari, og það er nauðsynlegt til þess að forðast deilur m.a. að marka þessum málum glögg mörk. Ég tel að hér skipti markmiðið meginmáli, ekki leiðirnar að markmiðinu, og því ætla ég ekki að hefja deilur um hvor leiðin sé heppilegri. Ég get vel hugsað mér að einmitt þessi leið, sem hér er nefnd, sé að sumu leyti hagkvæmari heldur en við alþfl.-menn höfum verið að nefna, en að meginefni stefna þessi frv. að sama takmarki.

Það er kannske rétt að taka fram, af því að ég koma því kannske ekki nógu vel til skila þegar ég var að mæla fyrir frv. okkar alþfl: manna, um muninn á 100 m dýpi eða 200 m dýpi varðandi jarðhita, að áður höfðum við einmitt í þáltill. þessi mörk, en þegar frv. okkar var endanlega samið, þá hafði ég í huga að kannske væri rétt að taka tillit til þess að tækni hefur fleygt fram, þannig að eigandi lands yfir jarðhíta getur nú e.t.v. notfært sér án aðildar ríkisins jarðhita á 200 m dýpi þó hann gæti það ekki fyrir nokkrum árum. En þetta er ekkert atriði fyrir mér.

Hins vegar er einn töluverður munur á stefnumörkun þessa frv. og okkar alþfl.- manna og það er um veiðiréttinn. Ég viðurkenni að við höfum töluvert velt vöngum yfir veiðiréttinum. Hann tilheyrir tvímælalaust eða tilheyrði tvímælalaust jarðeigendum og var þá hér áður fyrr ekkert annað en hlunnindi. Nú tel ég að mál hafi breyst mjög mikið. Þetta er meira en hlunnindi, nú er veiðiréttur eftirsótt gæði, fyrst og fremst eftirsótt tómstundagaman, og þess vegna er mikilsvert hvernig yfir honum er ráðið. Ég benti á það í minni framsöguræðu og annarri ræðu, þegar ég talaði fyrir frv. okkar alþfl.-manna, að eitt meginmarkmið okkar með því að taka veiðiréttinn undan jörðunum sem eign og láta undir eign ríkisins sem síðar mætti vera í höndum sveitarfélaga, veiðifélaga eða jafnvel einstaklinga sem hefðu sýnt alveg framúrskarandi áhuga á fiskrækt, að það, sem fyrir mér vekti og okkur flm., væri að verjast því að veiðirétturinn gæti orðið braskvarningur í höndum jarðeigenda, og það er mergur málsins. Nú veit ég að það eru ugglaust fleiri leiðir til að því marki heldur en í frv, okkar alþfl: manna og einhver hugvitssamur maður hér í þingdeildinni kynni kannske að koma með frv. í þá áttína og væri það ágætt.

Það, sem ég vildi sem sagt vekja athygli á að þessu sinni, er að í mínum augum er markmiðið megintilgangur, en ekki endilega leiðirnar, og markmiðið er að þessar umdeildu og eftirsóttu eignir, sem eru taldar upp og í okkar frv., þurfa að lýsast alþjóðareign, bæði til að koma í veg fyrir deilur og til þess að auðveldara verði að nota þær.

Ég ætla aðeins að víkja að því sem kom fram í umr. um frv. okkar alþfl.- manna, þó ég nennti þá ekki að gera athugasemd við það, að ábúðarlög, sem sett voru í fyrra, ættu að koma í veg fyrir ýmiss konar vandkvæði með jarðeignir sem ég hafði bent á í minni framsöguræðu, m.a. að góðar jarðir í þéttbýlum sveitum ættu ekki að fara í eyði vegna þess að margir væru eigendur að þeim og enginn fengist til að kaupa þær. Ég skal játa það, að það er rétt að ábúðarlögin reyna að koma í veg fyrir þetta, en ég hef þó séð að enn hefur það ekki tekist og ég gæti nefnt mörg dæmi einmitt úr minni gömlu heimasveit sem sýna þetta glögglega. Ég veit um afbragðsjörð, sauðfjárræktarjörð, að vísu á byggðarenda, en þangað er vegur og sími og allt sem fara gerir og skammt í næsta bæ hún hefur ekki fengist keypt vegna þess að eigendur eru það margir, tíma ekki að láta jörðina og jörðin liggur í eyði. Ég veit líka um frægt dæmi, sem ég get ekki stillt mig um að endurtaka hér og ég hef sagt frá áður í Sþ., þegar seld var jörð sem óðalsjörð fyrir 150 þús. kr., lánaðar úr jarðeignasjóði 250 þús, til að kaupa jörðina fyrir. „Óðalseigandinn“ var 72 ára gamall þegar hann keypti jörðina, hafði aldrei gifst, átti engin börn, og nú er hann fluttur af jörðinni, jörðin stendur auð og í eyði, en er „óðalsjörð“ og hefur verið „óðalsjörð“ í tvö ár. Svona eigum við ekki að láta koma fyrir. Og þetta hefði ekki komið fyrir hefði verið búið að setja undir svona leka.