08.12.1976
Neðri deild: 18. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1039 í B-deild Alþingistíðinda. (720)
58. mál, innheimta gjalda með viðauka
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Virðulegi forseti. Á þskj. 60 er frv. til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka, eins og þar segir, 140%. Þetta frv. er áður kunnugt hv. þm., hefur verið flutt á nokkrum þingum að undanförnu, en ekki talin ástæða til að festa umræddan gjaldaviðauka, hins vegar leitað heimildar á hverju ári til að innheimta þessi ákveðnu gjöld með þeim gjaldaviðauka sem ég áður gat um. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið. Það er, eins og ég áður gat um, kunnugt hv. þm.
Ég legg til að að lokinni 1. umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh: og viðskn.