09.12.1976
Neðri deild: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1075 í B-deild Alþingistíðinda. (754)

108. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Flm. (Svava Jakobsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég hef ásamt hv. þm. Eyjólfi Sigurðssyni og Magnúsi T. Ólafssyni leyft mér að flytja frv. til l. um breyt. á l. um framleiðsluráð landbúnaðarins. 1. gr. frv., efnisatriði þess, hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Aftan við bráðabirgðaákvæði komi ný mgr., svo hljóðandi:

Þó er Mjólkursamsölunni skylt að reka áfram a.m.k. 10 mjólkurbúðir í Reykjavík og öðrum þéttbýlisstöðum, þar sem þörfin er mest, næstu 5 ár eða til 1. febr. 1982, svo fremi að nægilega margar afgreiðslustúlkur, sem nú eru ráðnar, óska að starfa áfram.“

Svo sem hv. alþm. muna var í fyrravor gerð breyting á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins og í þessari lagabreytingu fólst m.a. það að einkaréttur Mjólkursamsölunnar og mjólkurbúa til smásölu mjólkurvarnings var afnuminn. Það er rétt að það komi skýrt fram vegna misskilnings sem orðið hefur vart utan þings a.m.k., að með þessum lögum var Mjólkursamsölunni engan veginn meinað að reka mjólkurbúðir sínar áfram. Hins vegar var vitað að Mjólkursamsalan og Kaupmannasamtökin höfðu gert með sér sérstakan samning um að kaupmenn keyptu verslanir samsölunnar eða tækju að sér mjólkursöluna í verslunum sínum.

Það var auðvitað vitað að slík gerbreyting á mjólkursölumálum mundi valda umtalsverðri röskun, og til þess að auðvelda þá breytingu var umþóttunartími veittur með bráðabirgðaákvæði. Það bráðabirgðaákvæði hljóðaði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Breytingar þær, sem felast í 3.–8. gr. frá eldri ákvæðum, skulu koma til framkvæmda eigi síðar en 1. febr. 1977. Tímabil það, sem líður frá samþykkt laganna, skulu aðilar nota til að koma sér saman um ýmis framkvæmdaatriði sem ekki er búið að ganga frá, svo sem yfirfærslu eigna, ráðningu starfsfólks, fyrirkomulag á afhendingu og móttöku mjólkur og greiðslu á andvirði varanna og önnur slík atriði sem nauðsynlegt er að semja um.“

Frv. okkar gengur út á það að frvgr. bætist við þetta bráðabirgðaákvæði.

Hér var, eins og hv. þm. muna, veittur 8 mánaða umþóttunartími. Það var fyrirsjáanlegt að heil starfsstétt yrði lögð niður ef Mjólkursamsalan sæi sér ekki fært að halda áfram mjólkursölu. Hér var um það að ræða að 165 konur, sem starfað höfðu hjá Mjólkursamsölunni, mundu missa atvinnu sína. Höfðu sumar þeirra starfað mjög lengi hjá Mjólkursamsölunni. því miður hefur verkafólk og launafólk enga tryggingu í lögum fyrir atvinnuöryggi þegar svona hlutir gerast. Í þessu tilfeili lá hins vegar fyrir yfirlýsing frá Kaupmannasamtökunum um að afgreiðslustúlkur mjólkurbúða Samsölunnar skyldu hafa forgang til vinnu við þau störf sem þær gætu tekið við í verslunum þeirra ef þær kærðu sig um. Frsm. minni hl. landbn., hv. þm. Eðvarð Sigurðsson, átaldi það harðlega í umr. á Alþ. í fyrravor, þegar þessi lög voru samþykkt, að ekki skyldi betur gengið frá þessum málum þessarar starfsstéttar. En það kom fram í máli hans sú von, að Mjólkursamsalan mundi ekki ganga svo harkalega fram í að leggja niður búðir sínar að hún gætti ekki hagsmuna þessa starfsfólks og þeirra neytenda sem breytingin mundi bitna hvað harðast á. Mjólkursamsalan hafði ekkert samráð haft við starfsfólk sitt eða það stéttarfélag, sem í hlut á, þegar hún ákvað þessa breytingu, enda þótt fyrirsjáanlegt væri að þarna mundi verða um stórfelldan atvinnumissi að ræða og umtalsverða röskun á lífi þessa fólks. Þessi vinnubrögð ber að átelja.

Nú er komið í ljós að til stórvandræða horfir með atvinnuöryggi fjölmargra þessara kvenna því að Mjólkursamsalan virðist leggja allt kapp á að leggja búðir sínar niður fyrir 1. febr. Öllum konunum, sem hjá Mjólkursamsölunni starfa, hefur verið sagt upp störfum nú, en um 120 þeirra eru enn óráðnar í önnur störf. Liðlega þriðjungur þessara kvenna munu vera fullorðnar, og þarf ekki að tíunda það hér hversu erfitt er fyrir fullorðnar konur að fá vinnu eða ganga að nýjum störfum. Þá þarf vart að minna á að fjöldi þessara kvenna eru einu fyrirvinnur síns heimilis og það er ekki hægt að slæva samviskuna með því að vísa til einhverrar fyrirvinnu sem ekki er til.

Að dómi flm. þessa frv. hefur umþóttunartíminn verið of skammur til þess að ganga frá málum þessarar starfsstéttar svo að sómasamlegt megi teljast. Þróun mála frá samþykkt laganna tel ég að hafi sannað þetta ótvírætt. Það er líka skoðun flm. að Mjólkursamsalan eigi siðferðilegum skyldum að gegna við það starfsfólk sem unnið hefur á hennar vegum árum saman. Mjólkursamsalan á því að mati okkar að taka þátt í að leysa þann vanda sem nú steðjar að. Við teljum rétt og sanngjarnt að lengja umþóttunartímann vegna ráðningar starfsfólksins og viljum þess vegna skylda Mjólkursamsöluna til að reka a.m.k. 10 mjólkurbúðir áfram næstu 5 árin, meðan nægilega margar starfsstúlkur, sem nú eru ráðnar, óska eftir að vinna áfram. Við gerum okkur ljóst að þetta leysir engan veginn vanda allra þeirra kvenna sem í hlut eiga, en væntanlega þá þeirra sem breytingin bitnar hvað harðast á.

Við teljum töluna 10 mjög sanngjarna og hófsama, og þótt einhverjir kunni að segja að það sé harkalegt að skylda Mjólkursamsöluna til þess að reka búðir áfram, þá bendum við á að hér er ekki um að ræða skilyrðislausa skuldbindingu. Skuldbindingin er háð því að þær konur, sem nú eru, vilji starfa áfram, og frv. felur því engan veginn í sér að Mjólkursamsalan sé skyldug til þess að ráða nýtt starfsfólk enda þótt þetta 5 ára tímabil sé ekki liðið. Hins vegar mundu a.m.k. 20 og jafnvel fleiri, allt upp í 30 konur þá starfa þessi 5 ár eða fá a.m.k. lengri frest til þess að ráða sínum málum ef þetta frv. yrði samþ., miðað er við að tvær konur séu að jafnaði í hverri húð eða jafnvel 3 í sumum. Þá teljum við einnig að hag neytenda verði betur borgið með lengri umþóttunartíma, enda kemur það fram í frvgr. að þessar búðir skuli vera þar sem þörfin er mest.

Ég vil geta þess, að á vegum heilbrigðisráðs Reykjavíkurborgar hefur starfað n. til þess að fylgjast með þessum málum og reyna að fylgjast með því hvernig mjólkursölu í Reykjavík verði háttað eftir þessa breytingu. Samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, munu nú um 12 verslanir Samsölunnar í Reykjavík vera seldar. Þá eru æðimargar eftir. Og tíminn líður óðfluga. Það er ekki nema hálfur annar mánuður til 1. febr., og ef Mjólkursamsalan ætlar að leggja niður allar sínar búðir 1. febr. og engin trygging fyrir því hverjir taki við þessum verslunum sem óseldar eru, þá verður mjög alvarleg eyða í mörgum hverfum í Reykjavík hvað snertir mjólkursöluna.

Mér er kunnugt um að það hafa komið í ljós ýmis konar vandkvæði við þessa yfirfærslu mjólkursölunnar. Það kostar mikið fé að búa verslanir þeim tækjum sem þarf til þess að uppfylla kröfur um hollustu í mjólkursölu, og það eru margir kaupmenn vanbúnir að leggja út í þau útgjöld og því mikil óvissa ríkjandi í þessum málum. Má segja að vegna neytenda einnig sé nauðsynlegt að Alþ. taki þessi mál föstum tökum nú þegar. I:g legg áherslu á það, að fresturinn rennur út 1. febr. Þing fer bráðum í jólafrí og situr ekki meginhluta janúarmánaðar. Ég vil því leyfa mér að beina þeim tilmælum til þeirrar n., sem fær þetta frv. til meðferðar, að hún taki rösklega til hendi til þess að þessi mál leysist farsællega. Ég legg áherslu á að það er skylda alþm. þegar þeir sjá fram á að umþóttunartíminn var of skammur, — það var hlutur sem var ekki svo auðvelt að sjá fyrir, en nú stöndum við frammi fyrir því að sá umþóttunartími, sem veittur var, var of skammur, og þegar ein afleiðingin er sú, að 120 konur missa atvinnu og sjá ekki fram á annað margar hverjar en atvinnuleysisstyrk, þá ber Alþ. beinlínis skylda til að taka í taumana.

Hæstv. forseti. Ég legg til að málinu verði vísað til 2. umr. og landbn.