09.12.1976
Neðri deild: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

108. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Eðvarð Sigarðsson:

Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. 3. þm. Norðurl v. sagði, að undanfari þeirrar breytingar, sem gerð var á framleiðsluráðslögunum í fyrra, var mjög langur áróður sem hafði verið rekinn þér af tilteknum öflum fyrir því að kaupmenn fengju í hendur alla mjólkursölu, sérstaklega hér á samsölusvæðinu og reyndar víðar um landið. Ég segi eins og hann, að ég var alltaf mjög tortrygginn á að þetta væri rétta leiðin og að mjólkursölunni væri nokkru betur borgið hjá kaupmönnunum heldur en með þeim hætti að Samsalan hefði hana áfram.

Nú var það, sem gert var í fyrra með breytingu á lögunum sem miklar umr. urðu um á hv. Alþ. þá, einvörðungu að taka einkaleyfið til smásöluverslunar á mjólk úr höndum Samsölunnar og mjólkurbúa í landinu, — aðeins það að taka þetta einkaleyfi, en lögin banna engan veginn að Samsalan eða önnur mjólkurbú í landinu reki áfram smásöluverslun. Það er rétt að það sé undirstrikað rækilega.

Sú staða málanna, sem upp er komin og í ljós kom þegar breytingarnar á framleiðsluráðslögunum voru ræddar hér í þingi í fyrra, er ekki afleiðing sjálfrar breytingarinnar. Þegar þessi breyting er gerð er þegar yfir helmingur mjólkursölunnar hér í Reykjavík ekki í höndum Samsölunnar, heldur þegar kominn í hendur kaupmannanna. Það, sem gerir að Samsalan leggur niður sínar búðir, er sérstakur samningur sem Samsalan og samtök kaupmanna gera með sér þar sem Kaupmannasamtökin skuldbinda sig til að kaupa eða yfirtaka allar búðir Samsölunnar. Þetta er út af fyrir sig engin sérstök afleiðing að þeirri breytingu sem gerð var í fyrra, heldur samningur á milli tveggja aðila. Það er þess vegna ekki rétt hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. að segja að hér sé ekki við Samsöluna að sakast að einu eða neinu leyti. Það er ekki rétt. Hér eiga áreiðanlega þessir aðilar báðir hlut að máli, bæði Samsalan og Kaupmannasamtökin.

Ég stóð hér í æðimiklum umr. í fyrravetur þegar þessar breyt. voru gerðar og dró þá fram öll þau atriði sem síðar hafa sérstaklega verið sett á dagskrá. Varðandi þennan hluta af breytingum laganna, — það voru önnur og kannske ekki síður stórmál sem fólust í þeirri breytingu sem gerð var á framleiðsluráðslögunum s.l. vetur, — en varðandi þennan þátt breytinganna lagði ég höfuðáherslu á aðallega þrennt:

Í fyrsta lagi lagði ég áherslu á öryggisleysi starfsfólksins og þá vanvirðu að það skuli hreinlega geta átt sér stað að jafnstórt fyrirtæki og Samsalan er og Kaunmannasamtökin skuli geta gert með sér samning sem breyti svo gjörsamlega öllum kjörum þess fólks, sem starfað hafði hjá Samsölunni, nm 160 afgreiðslustúlkna, eins og gert var ráð fyrir með þeim samningi sem þessi samtök höfðu gert sín í milli. Starfsfólkið er ekki að neinu spurt, ekki það minnsta, fær ennin áhrif að hafa á jafnafdrifaríkar ákvarðanir um eigin hag og hér er um að ræða. Þetta var það fyrsta og það sem blasti náttúrlega við öllum og felur í sér ákaflega mikið ranglæti gagnvart ekki bara þessu fólki, sem þarna var um að ræða, heldur snúa málin svona að verkafólki yfirleitt þegar eitthvað svipað er á ferðinni.

Í öðru lagi lagði ég ríka áherslu á, að þessi breyting og það að leggja niður allar samsölubúðirnar mundi tvímælalaust skapa verri þjónustu við neytendur. Ég tek þar mjög undir það sem hv. þm. Magnús Torfi Ólafsson sagði hér áðan. Ég hafði raunar uppi sömu rök, að sérstaklega eldri hverfin og það fólk, sem ekki sækir stóru kjörbúðirnar, hefur ekki aðstöðu til þess, — þjónustan við þetta fólk mundi áreiðanlega versna til mikilla muna; og svo einnig hitt, sem að neytendunum snýr, að þetta mundi áreiðanlega hafa í för með sér hærra verð á mjólkinni þegar kaupmennirnir væru orðnir einráðir og þegar frá liði mundi það valda hærra verði á mjólk.

Og svo í þriðja lagi — og það er kannske ekki það sísta — að heilbrigðisaðstæður allar og tillit til heilbrigðisþjónustu í þessu efni mundi tvímælalaust verða a.m.k. fyrsta kastið mun lakara en áður hafði verið. Þar studdist ég alveg sérstaklega við álit sem borgarlæknir hafði þá látið í té, þar sem hann bókstaflega sýndi fram á, að einmitt heilbrigðishlið þessara mála mundi verða lakari með þessum skiptum. Ég benti svo hins vegar sjálfur á dæmi sem ég þekkti, þar sem þetta var í raun og veru fyrir neðan allar hellur, einmitt þessi hlið málsins.

Það kom í ljós þegar landbn. þessarar deildar var að rannsaka þessi mál. að það væri hreinlega ekki tæknilega hægt að tæknivæða búðir kaupmannanna á þeim tíma sem ætlaður var til þeirra framkvæmda sem lögin gerðu ráð fyrir, og þess vegna var umþóttunartíminn lengdur um nokkra mánuði, þ.e.a.s. til 1. febr. n.k. En ég hygg að það sé bara af þessum einum ástæðum enn of skammur tími.

Þetta vildi ég benda á hér og endurtaka. Það voru hæði á nóttu og degi í fyrra hér miklar umr. um þessi mál. og þá virtist það ekki hafa mikið bergmál út í borgina. En það hefur hins vegar komið núna á síðustu mánuðum og vikum allmikið á kreik einmitt af hálfu bæði neytenda og starfsfólksins í mjólkurbúðunum.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði að það væri of seint að taka þessi mál fólksins í búðunum fyrir núna. Málið lá nákvæmlega eins fyrir hv. alþm. í fyrravetur, þegar lögin voru sett. Þá var bent á öll þessi atriði og það rækilega, en þeim var ekki sinnt. Það var ekki gert of seint. Það var gert um leið og það var ljóst hvernig ætti að standa að þessum málum af hálfu Samsölunnar og samtaka kaupmannanna.

Ég skal ekki lengja umr. hér með því að endurtaka það sem er margbúið að segja í þessu efni. En ég legg áherslu á að einmitt sú leið, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, verði farin og að það verði gert í tæka tíð, að málina verði borgið áður en þingið fer í jólafrí.