19.10.1976
Sameinað þing: 5. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
Kosning í fastanefndir skv. 15. gr. þingskapalaga
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Ég vil biðja hv. alþm. að reyna að vera eins stuttorða og mögulegt er, því að það var ekki meiningin að hér færu fram almennar umr., heldur að hv. þm. frá flokkunum, einn frá hverjum flokki, fengju að gefa skýringar í sambandi við þetta mál. Því vænti ég þess, að þeir, sem á eftir koma, verði mjög stuttorðir.