13.12.1976
Efri deild: 21. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (797)
116. mál, viðbótarsamningur milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég mæli hér með örfáum orðum fyrir frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd viðbótarsamning við samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum. Frv. fjallar um það, að Alþ. heimili ríkisstj. að fullgilda þann samning sem ég nefndi hér áðan og undirritaður var í Stokkhólmi 21. júlí 1976 og er prentaður sem fylgiskjal á þskj. 139.
Þessu frv. fylgja svofelldar athugasemdir frá rn.:
„Árið 1972 var undirritaður samningur milli Norðurlandaþjóðanna um aðstoð í skattamálum. Veitti Alþingi ríkisstj. heimild til að fullgilda þann samning með lögum nr. 111 31. des. 1972. Var síðan gengið frá fullgildingu samningsins og tók hann gildi þann 1. jan. 1973.
Aðstoð sú, sem í samningnum felst, er einkum tvenns konar: Annars vegar gagnkvæm aðstoð við rannsókn skattamála og skipti á upplýsingum og hins vegar gagnkvæm aðstoð við innheimtu skatta. Á þeim tíma, sem liðinn er frá gildistöku samningsins, hefur nokkur reynsla fengist af ákvæðum hans og í ljósi þeirrar reynslu hafa sérfræðinganefndir unnið að gerð viðbótarsamnings. Náðist samkomulag milli þeirra um viðbótarsamning á þessu ári og er hann birtur á fylgiskjali með lagafrv. þessu. Breyt. þær, sem í viðbótarsamningnum felast, varða allar gagnkvæma aðstoð við rannsókn og öflun upplýsinga. Mikilvægasta breyt. er fólgin í 3. gr. viðbótarsamningsins, en þar er gert ráð fyrir að fulltrúar skattyfirvalda í einu ríki geti fengið leyfi til að vera viðstaddir rannsókn í skattamálum í öðru aðildarríki.
Mun viðbótarsamningurinn væntanlega geta auðveldað skattaeftirlit.“
Að öðru leyti vísa ég til samningsins sem prentaður er sem fylgiskjal, eins og áður sagði, og leyfi mér að lokinni þessari umr. að leggja til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.