13.12.1976
Neðri deild: 22. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1151 í B-deild Alþingistíðinda. (809)
94. mál, rannsóknarnefnd til að rannsaka innkaupsverð á vörum
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það liggur hér fyrir Sþ. fsp. varðandi verðlagsmál og varðandi sérstaklega könnun verðlagsstjóra á verðmyndun frá hv. varaþm. Eyjólfi Sigurðssyni, en röðin hefur ekki enn komið að þessari fsp. Hún hefur þess vegna ekki verið tekin hér til meðferðar. Ég hef í sjálfu sér kosið að svara þeirri fsp. áður en þessi þáltill. er rædd hér og áður en ég tek þátt í umr. um hana, en ég vil þó aðeins segja hér örfá orð í tilefni af þessari till. um skipun rannsóknarnefndar til að kanna þau málefni sem þar er um fjallað.
Það er vissulega ekki ofmælt að það málefni, sem þarna er um fjallað, verðmyndun, er málefni sem varðar allan almenning og þess vegna ástæða til þess að hann fylgist vel með í þeim efnum. Væri jafnvel ástæða til þess að almenningur almennt fylgdist enn meir með því en hann gerir í raun og veru hvernig verðlagi er háttað, hefði meira verðskyn og sýndi það í reynd. En því miður hefur hingað til farið of lítið fyrir því að neytendur létu sig nægilega skipta þennan þátt, hvert verðlagið væri, og sjálfsagt væri það að mörgu leyti besta verðlagseftirlitið sem hægt væri að hugsa sér, það væri neytendurnir sjálfir ef þeir fylgdust nógu vel með í þessum efnum og væru nógu vakandi.
Ég tel þá nýbreytni, sem tekin hefur verið upp af hálfu verðlagsstofnunarinnar, að kynna sér einmitt þennan þátt í verðlaginu, verðmyndunina, mjög mikilsverða. Þar er um nýbreytni að ræða, og ég álít þann þátt í raun og veru miklu mikilvægari heldur en sumt af því sem Verðlagsskrifstofan hefur stundum verið að fást við En það, sem ég vil leggja áherslu á, er að sú könnun, sem hefur átt sér stað af hálfu verðlagsstjóra og samanburður á verðlagi í Bretlandi og hér, er aðeins fyrsta skref, fyrsta sporið sem þarf að stiga í þessum efnum. Og ég held að það sé einnig rétt að fara mjög varlega í því að draga of miklar ályktanir af þeirri könnun út af fyrir sig. Það þarf ýmislegt fleira að athuga til þess að traustur grundvöllur verði fenginn fyrir samanburði. Það er auðvitað ljóst af þessari athugun að þarna er um mikinn verðmun að ræða, en það geta verið á honum ýmsar skýringar. Sumar nefndi hv. flm. og sumar munu hafa komið fram í sjónvarpsþætti sem verðlagsstjóri var í, að ég hygg, en ég sá því miður ekki og veit ekki hvað þar hefur farið fram. En það er engan veginn víst að þær skýringar, sem enn hafa komið fram í þessu efni, séu fullnægjandi Þess vegna þarf og er ætlunin og er farið að vinna að því að halda þessari rannsókn áfram. Og þá þarf að gera það þannig ekki hvað síst, að það sé leitað t.d. til nágrannalandanna. við skulum segja Norðurlandanna, og safnað bar upplýsingum um verð á hliðstæðum vörum fluttum frá t.d. Bretlandi og þeim sem keyptar voru inn ti1 Íslands og fluttar hingað. Þegar slíkur samanburður liggur fyrir og tillit er svo tekið til ýmissa atriða sem óhjákvæmilega verður að taka tillit til. til kostnaðar m.a. þá fyrst væri fenginn grundvöllur undir nokkurn veginn traustar ályktanir.
Svo að ég svari því sem ég ætlaði að svara fsp., þá er sem sagt ákveðið að þessari könnun verður haldið áfram. Verðlagsstjóri hefur þegar tekið upp samstarf við Norðurlöndin í því efni, og það hefur verið stofnað til samvinnu um þessi efni þar, sem á að létta þessa könnun og þennan samanburð. Og ég geri mér vonir um að þegar upplýsingar hafa fengist um þau efni, þá geti verið frekar hægt að draga ályktanir sem á má byggja um þessi efni. En ég vil enn undirstrika það, að það er ekki rétt að mínu mati að alhæfa um of ályktanir af þessari einu könnun, af þeim verðsamanburði sem fór þarna fram varðandi eitt land. Það þarf fleira að koma til.
Eins og ég sagði áðan, þá sá ég ekki þennan sjónvarpsþátt og get því ekki dæmt um staðhæfingu hv. þm. Garðars Sigurðssonar um að verðlagsstjóri hefði fyrst og fremst gefið þá skýringu eða alltaf komið með þá skýringu að um prósentuálagningu væri að ræða og þess vegna hefðu innflytjendur ekki hvöt til að kaupa inn ódýrt, heldur hið gagnstæða, hvort þessi staðhæfing sé rétt eða ekki. Ég er hissa á því ef hann hefur lagt á þetta atriði mjög mikla áherslu. En hvað um það, í því sambandi vil ég taka fram að það er nú heimild til þess í lögum um verðlag að láta þá njóta þess, sem gera hagstæðari innkaup, og leyfa þeim bærri álagningu en ella. Þess eru dæmi að það hafi verið gert. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að beita þeirri heimild í enn ríkari mæli og miklu ríkari mæli en gert hefur verið, því að það er ekki hægt að segja að henni hafi verið beitt í ríkum mæli, og skapa aðilum þannig einmitt hvöt til þess að gera sem hagstæðust innkaup.
Ég er ekki sérstaklega trúaður á að þetta sé nein algild skýring á því að verðlag sé nú hátt að innflytjendur freistist til þess að kaupa inn dýrara vegna þess að álagningin er í mörgum tilfellum, þar sem um hámarksverð er að ræða, hundraðshlutaálagning. Ég held að innflytjendur séu það margir að samkeppni á milli þeirra á ýmsum sviðum sé a.m.k þó nokkur, og m.a. höfum við Samband íslenskra samvinnufélaga sem stóran innflytjanda, og ég vil alls ekki ætla fyrirsvarsmönnum slíkra almannasamtaka það, að þeir fari að kaupa inn dýrar en ella til þess að fá hærri álagningu. Ég skal ekki vera með neinar fullyrðingar um að þetta geti ekki átt sér stað í einhverjum tilvikum, en ég held að það sé hænið að segja að þetta sé almenn skýring á því að verðlag sé hátt eða að þetta fyrirkomulag á álagningu freisti manna til þess að gera óhagstæð innkaup. Það held ég að sé vafasamt að fullyrða almennt. En eins og ég sagði, þá er að mínum dómi ástæða til þess að beita í mun ríkari mæli en gert hefur verið því heimildarákvæði að leyfa heim hærri álagningu sem gera sýnilega hagstæð innkaun, láta ekki eitt yfir alla ganga í því efni, hvernig sem innkaupunum er háttað. Ég það verður kannað. Auðvitað er einn þátturinn í þessari könnun á verðmyndun. sem þarf að fara fram, umboðslaun Það þarf að athuga nánar hvernig þeim þætti er háttað.
Ég er nú að ljúka máli minn. Ég vil þó að lokum segja þetta viðvíkjandi þessari till. sem her liggur fyrir um skipun rannsóknarnefndar, að þessi könnun. sem hún gerir ráð fyrir, er einmitt í gangi, hún er framkvæmd af verðlagsstofnuninni. Ég tel að Verðlagsskrifstofan, sé henni séð fyrir nægum og hæfum starfskröftum, en óskir um það hafa verið settar fram, að það væri bætt við starfslið hennar, þá sé hún betur í stakk búin til þess að framkvæma slíka könnun heldur en þingmannanefnd. Þó að ég vilji auðvitað ekki gera lítið úr hv. alþm., þá held ég að slík þingmannanefnd mundi óneitanlega verða — og ekki er það að lasta — að styðjast við einmitt kannanir og athuganir sem verðlagsstofnunin hefur látið fram fara.
En ég vil svo leggja líka áherslu á það, að hvað sem verður um verðlagsefrirlit, þá er einmitt gert ráð fyrir því í þeim frumvarpsdrögum, sem unnið hefur verið að, að þessi þáttur haldi áfram og hans eigi að gæta í starfsemi Verðlagsskrifstofunnar, þ.e. að fylgjast með sjálfri verðmynduninni og grípa inn í ef þar á sér stað eitthvað óeðlilegt að hennar dómi.
Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, að ég álít að í sjálfu sér sé Verðlagsskrifstofan eða verðlagsstofnunin eða hvað sem þið viljið kalla hana hæfari en þingmannanefnd til þess að inna þetta hlutverk af hendi, og hún hefur þegar fengið sambönd og hefur þegar tekið upp samvinnu við aðila í öðrum löndum varðandi þetta efni.
Það er margs að gæta þegar svona samanburð á að gera á verði. Hv. flm. drap t.d. á hluta ríkissjóðs, hvað hann tekur þarna í fjáröflunartollum. Það má vel vera að þessi dæmi, sem nefnd voru, séu neysluvörur. En jafnvel á neysluvörum eru nú mjög misháir tollar og að ég best veit á sumum neysluvörum alls engir tollar, þannig að þessu er dálítið misjafnt háttað. Þetta þarf líka að taka inn í dæmið og bera saman, ef athugað er hvernig útkoman er í öðrum löndum, hvort ríkið tekur með hliðstæðum hætti tekjur af þessum varningi þar.
Það má endalaust deila um það, með hverjum hætti ríkið á að afla sér tekna. En þeir, sem gera kröfur til þess að ríkið sinni ýmsum samfélagslegum þörfum og leysi ýmis samfélagsleg vandamál, þeir hljóta líka að játa það, að almannavaldið, ríkisvaldið verði að hafa einhverja möguleika til að afla sér tekna, og þá getur þetta verið ein leiðin og er leiðin sem viða er farin, að ég held, og hefur verið farin hér lengi. Spurningin er hvort það kemur betur við að þeirra tekna sé aflað með einhverju öðru móti en gjöldum á að vísu kannske neysluvörur, en þó neysluvörur sem sumir neita sér um, en aðrir nota meira af.
Ég skal, herra forseti, ekki hafa þessi orð fleiri, en vildi aðeins benda á þetta, að ég tel að það sé eðlilegt að sú n., sem fær þessar till. til athugunar, kanni þær ábendingar sem ég hef sett fram, hvort þessi könnun sé ekki betur komin hjá Verðlagsskrifstofu, sem þegar hefur hafið slíka könnun, kannske ekki rétt að kalla það rannsókn, heldur en hjá þingmannanefnd.