19.10.1976
Sameinað þing: 6. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (83)
239. mál, rafmagn á sveitabýli
Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja hér fram fsp. á þskj. 17. Fsp. er til iðnrh. og er svo hljóðandi:
„a. Hver er ástæða til þess að Rafmagnsveitur ríkisins geta ekki sinnt beiðnum um tengingu íbúðarhúsa í sveitum við rafveitukerfi Rafmagnsveitna ríkisins?
b. Hve margar beiðnir liggja nú fyrir um tengingu sem Rafmagnsveiturnar hafa ekki getað sinnt?
c. Hve mörg eru þau sveitabýli sem enn hafa ekki fengið rafmagn frá samveitum, en þó er ráðgert að fái það síðar?“
Ástæðurnar til þess, að ég legg fram þessar fsp., eru þær, að ég varð þess var á s.l. sumri að í mínu kjördæmi voru allmargir aðilar sem kvörtuðu sáran undan því að þeir fengju ekki hús sín tengd við rafmagnsveitukerfi ríkisins þó að húsin væru tilbúin til slíkrar tengingar. Ég vil taka það fram, að hér er um tengingu á tilbúnum húsum að ræða við rafveitukerfi þar sem þegar er búið að leggja aðaldreifilínurnar um sveitirnar, svo að hér er ekki um það að ræða að það standi á slíkum dreifilínum. Ég hef einnig orðið var við það, að svipað hefur gerst í öðrum kjördæmum landsins. Það virðist snúa heldur einkennilega við, þegar lagt er í fjárfrekar framkvæmdir til þess að koma upp raforkuverum og búið er að leggja aðaldreifikerfi um sveitir, þá skuli standa á því að tengja notendurna við kerfið. En það hefur ábyggilega borið allverulega á þessu. Því vildi ég mjög gjarnan að hæstv. iðnrh. svaraði þessari fsp. minni.
Ég vildi fá einnig upplýst hvað hér er um mikið vandamál að ræða, hve margir aðilar eiga hér hlut að máli, og einnig þá um það, hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar eða muni verða gerðar til þess að reyna að kippa þessu máli í lag. Jafnframt vildi ég svo að hæstv. ráðh. gæfi hér upplýsingar um annað atriði þessara rafmagnsmála, sem er í rauninni hinu óskylt, en bað er hvað þeir sveitabæir séu margir sem enn hafa ekki verið tengdir við samveitukerfið, en eru þó á áætlun eða er þó ráðgert að tengja við kerfið.
Ég vænti þess að hæstv. ráðh. sjái sér fært að svara þessum spurningum.