14.12.1976
Sameinað þing: 31. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1236 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

1. mál, fjárlög 1977

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Ég kem nú hingað upp til þess að mæla nokkur orð með brtt. sem ég hef flutt við fjárl. ásamt öðrum hv. þm. En í upphafi máls míns vil ég lýsa undrun minni og mótmæla þeim vinnubrögðum sem átt hafa sér stað í sambandi við meðferð samnings við Elkem Spigerverket.

Stefán Jónsson upplýsti það hér áðan, að í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld hefði verið haft eftir fréttastofu Reuters að íslenska ríkisstj. hefði þegar samþykkt eða undirskrifað þessa samninga, og eins og við vitum hafa þessir samningar ekki enn verið lagðir fyrir Alþ. Ég er reyndar ekki mjög kunnugur þingsögunni, en ég held eða mér finnst einhvern veginn að þetta hljóti að vera og séu ný vinnubrögð í sambandi við jafnstórt mál og þetta.

Ofan á þetta bætist svo það, að við alþb.-menn erum að frétta það núna og heyra frá meðþm. okkar að þessu frv. hafi verið dreift hér til stjórnarþm. og alþfl.-þm. í fyrradag eða gærkvöld. Við alþb.- menn höfum ekki séð þetta frv. enn þá. Hvers lags vinnubrögð eru þetta og hvað er verið að dylja fyrir okkur? Er verið að reyna að dylja þetta fyrir okkur fram yfir þessa umr., þannig að við gætum ekki tekið þetta mál til einhverrar umr. hér? Hvers lags vinnubrögð eru þetta? Hvað er verið að fela? Og mér er spurn líka: Hvað er verið að gera með því að undirskrifa þessa samninga áður en Alþ. fær tækifæri til að ræða þá? Er þar verið að handjárna stjórnarþm., þetta mikla, stóra, föngulega lið, þennan stóra meiri hl. sem hæstv. ríkisstj, hefur að baki sér? Ja, maður hlýtur að álykta að eitthvað sé þannig að þetta mál megi ekki fá þinglega meðferð áður en það er undirritað. Er kannske óttast að það kæmu aðrar raddir úr Vesturlandi ef þetta mál væri borið undir aðila þar heima núna, þó að sumir aðilar þar hafi verið tilbúnir að samþykkja það á síðasta ári? Er kannske hætt við því að þeir akurnesingar, sem fóru til Noregs og voru að skoða slíkar verksmiðjur sem þessar, mundu kannske láta eitthvað heyra frá sér til Alþ. um hvernig uppákoma það var sem þeir skoðuðu þar?

Ég vil undirstrika það að ég mótmæli þessum vinnubrögðum, bæði því, að þegar skuli hafa verið undirritaður þessi samningur, og einnig því, að þingskjölum skuli hafa verið útbýtt til sumra eða nokkurs hluta þm. og ákveðinn hluti þm. og það eingöngu alþb.-menn skildir eftir og fá ekki þessi plögg í hendur. Það væri vitaskuld freistandi að ræða þetta mál svolítið meira. Það væri eðlilegt að þetta mál væri rætt hér allvel, en ég verð þó að sleppa því að sinni.

Ég sagðist hafa komið hingað upp til þess að fylgja eftir þremur brtt. sem ég stend að ásamt fleirum. Ég hef flutt eina brtt. sem beint tilheyrir Vesturlandi, þó að þar bjóðist vissulega að flytja margar fleiri brtt., og langar mig í upphafi aðeins að ræða um það.

Ég sakna strax þess að í till. fjvn. skuli ekki vera króna í íþróttahús á Hellissandi. Ég sakna þess einnig að það skuli ekki vera króna til endurbyggingar skólastjórabústaðar. En bæði þessi mál taldi ég og veit ekki annað en hafi verið undirbúin og send beiðni til fjvn. Ég hef því miður ekki í höndum gögn um beiðnir sveitarfélaga á Vesturlandi önnur en beiðnir Akraneskaupstaðar og Borgarness. Ég sé þó í hendi mér að fjárveitingar til byggðarlaganna á Snæfellsnesi hafa að meira og minna leyti verið skornar niður og þar ekki komið það sem við höfum búist við og þörf er á. Ég sé t.d. að til Ólafsvíkur eru aðeins 6 millj. til skóla, en þar er ábyggilega mikil þörf á því að fá fulla fjárveitingu til þess að hægt sé að hefja framkvæmdir. En ég tel að sú upphæð, 6 millj., sé til engra hluta nothæf nema til svokallaðra undirbúningsstarfa, og harma ég það að þar hafi ekki verið meira lagt til.

Eins og ég segi, þá hef ég ekki aðstöðu beinlínis til þess að ræða um fjárveitingar til þorpanna á Snæfellsnesi, en mig langar aðeins til þess að benda hér á nokkur atriði í sambandi við beiðnir Akraneskaupstaðar og Borgarness.

Það hefur löngum verið, sjálfsagt alltaf, fyrsti líður í beiðnum Akraneskaupstaðar um fjárveitingar til sjúkrahússins. Sjúkrahús Akraness er sjúkrahús Vesturlands og sjálfsagt þjónar það fleiri íslendingum heldur en vestlendingum, og þeir á Akranesi hafa staðið sig mjög vel í því að byggja þetta upp og þjónusta sjúkrahússins á Akranesi verið að öllu leyti til mjög mikillar fyrirmyndar. Akraneskaupstaður fer fram á það að ríkissjóður veiti á fjárl. í ár 122 millj. Það, sem kemur fram í till. fjvn. að veitt skuli til sjúkrahússins á Akranesi, er 41 millj. En ógreitt er til Akraneskaupstaðar vegna framkvæmda ársins í ár 23 millj., þannig að raunveruleg fjárveiting til Akranessjúkrahússins er tæpar 20 millj. vegna framkvæmda ársins 1977. Ég harma vitaskuld að það skuli ekki hafa verið hægt að vera með stærri hlut þarna, en ég veit að þarna hefur verið unnið að eins og hægt var, og efa ég ekki að formaður fjvn, hafi gert þá hluti sem mögulegir voru til að koma þessari fjárveitingu eins hátt og hægt er. En við vestlendingar hörmum það allir að þarna skuli ekki vera um stærri upphæð að ræða.

Ég held að ég verði nú að hlaupa yfir næstu atriði og vil nefna næst íþróttahús. Á Akranesi er verið að byggja mjög myndarlegt íþróttahús og vangreiddur hluti ríkissjóðs vegna fyrri framkvæmda og vegna framkvæmda ársins í ár er 17 millj. Fjvn. leggur til að veittar verði til íþróttahússins 11 millj. þannig að það vantar 6 millj. upp á að akurnesingar fái greiðslur sínar frá fyrri árum. Þetta er — ja, ég vil nærri því segja ámælisvert, vegna þess að akurnesingar þurfa á góðu húsi til íþrótta að halda og hafa verið sérstaklega duglegir við að koma þessu húsi upp.

Því miður eru það ekki eingöngu akurnesingar sem lenda í því að hlutur þeirra gagnvart íþróttahúsi sé skorinn niður. Nákvæmlega sama skeður í Borgarnesi. Þar er útkoman sú, að um þessi áramót mun skuld ríkissjóðs við Borgarnessveitarfélagið vera 37 millj. Það, sem fjvn. leggur til að veitt verði í ár, eru 12 millj., þannig að Borgarneshreppur á þá inni hjá ríkissjóði 25 millj. Það er byrjað á þessu húsi, á íþróttahúsinu í Borgarnesi, 1973, þannig að í ár ætti raunverulega að vera síðasta fjárveitingarár til hússins, og skil ég ekki hvernig ríkisstj. ætlar að geta raunverulega sagt við borgnesinga: Meiri peninga fáið þið ekki frá okkur.

Í sambandi við hafnirnar í Vesturl. er það svo, að kannske gætum við sagt að sumu leyti þarna vestra að það sé nú ekki svo afleitt. Ég veit þó ekki hvað akurnesingar segja, ég kann ekki alveg að meta það, en þeir fá nú ekki helminginn af fjárveitingarbeiðni sinni. Og ég geri ráð fyrir því að sama sé uppi um hafnirnar vestur á Snæfellsnesi, að öllum finnist þeim þessar fjárveitingar litlar. En ein höfn er sem er algerlega strikað yfir og fær ekki krónu, og það er Borgarneshöfn, þrátt fyrir það að um Borgarneshöfn muni fara líkast til næstmest vörumagn af höfnum á Vesturlandi, komi næst á eftir Akranesi. Ég get ekki að því gert að mér finnst einhvern veginn sú lykt af þessu í sambandi við það að veita ekki fé til framkvæmda við Borgarneshöfn, m.a. vegna þess að höfnin liggur undir stórskemmdum og má búast við því, ef gerir allvont vestanveður, að þar geti orðið stórskemmdir, og heimamenn eru mjög hræddir um að svo geti orðið, svo hefur reyndar þegar átt sér stað, — að það sé sú lykt af þessari afgreiðslu í sambandi við Borgarneshöfn að það sé veríð að hugsa um að það mætti vel fara svo að það mætti bara leggja Borgarneshöfn niður. Hæstv. ríkisstj. stendur fyrir því að leggja 450 millj. í hugsanlegt ævintýri við Grundartanga — og gæti ekki verið að hún sé að hugsa um að púkka Borgarnesi saman við Grundartanga og nota Grundartangahöfn fyrir Borgarnes? Ég segi fyrir mitt leyti: Ánægja okkar, sem erum fyrir vestan Hvítá, minnkar nú svolítið við tilkomu Hvítárbrúar, ef ætti að nota hana til að réttlæta það að Borgarneshöfn yrði lögð niður og þar lokað fyrir eðlilega þróun um vöruflutninga og annað sem þar gæti átt sér stað.

Það mætti náttúrlega lengi halda svona áfram, og ekki efa ég að ef væru tekin fyrir önnur kjördæmi á svipaðan máta og þetta, væri það nákvæmlega sama dæmið. Dæmið er vitaskuld það, að alls staðar er dregið úr hinum sameiginlegu framkvæmdum þegnanna, samneyslan er dregin til baka eins mikið og hægt er og minnkandi framkvæmdir úti um landsbyggðina á alla vegu.

Ég held að ég snúi þá að því að ræða þær till. sem ég hef staðið að.

Í fyrsta lagi vil ég þá nefna þá till., sem ég stend að með hv. þm. Karvel Pálmasyni og Braga Sigurjónssyni, um hækkun á framlagi til jöfnunar á námskostnaði. Þessir hv. þm. hafa nú rætt þessa till., þannig að ég vil aðeins leggja áherslu á það, að þetta atriði, að kostnaður sé sem jafnastur til aðstöðu til náms, nauðsyn þess skilja vitaskuld allir. Fyrir okkur landsbyggðarmenn og landsbyggðarunglinga má ekki aðeins það verða okkur til trafala, að þarna sé aukinn kostnaður, að það bætist við þá erfiðleika að þurfa að fara í burtu og vera fjarri heimilum sínum yfir námstímann að námskostnaður sé að mörgu leyti hærri. Ég vænti þess að hv. þm. sjái ástæðu til að standa að þessari brtt. okkar, ef hv. fjvn. gerir það ekki á milli umr. að laga þetta til.

Ég hef svo ásamt hv. þm. Stefáni Jónssyni og Lúðvík Jósepssyni flutt till. um að draga úr þeim mismun sem nú er á hitunarkostnaði fyrir skóla sem hitaðir eru með olíukyndingu, borið saman við þá skóla sem hitaðir eru með jarðvarma, og til þessa verði veittar 20 millj., menntmrn. setji reglur um skiptingu fjárins. Svo sem hv. þm. er kunnugt hefur það verið og er eitt af höfuðbaráttumálum Sjálfstfl. að sögn þeirra sjálfstæðismanna að auka frelsi sveitarfélaga. Aðferðin til að koma þessu frelsi í framkvæmd hefur verið sú að draga úr þátttöku ríkisins í ýmsum þáttum kostnaðar, sem sameiginlega var greiddur af ríki og sveitarfélögum, og skilja sveitarfélagið eftir án nýrra tekjustofna. Stundum hefur þessi frelsisöflun til handa sveitarfélögunum tekist það vel, að ekki hefur aðeins komið frelsi til þess að greiða allt, heldur hefur einnig fengist frelsi til þess að koma á slíkri mismunun milli sveitarfélaga um greiðslu ákveðinna kostnaðarliða að sveitarstjórnir kvarta undan frelsinu. Till. sú, sem ég flyt hér á þskj. 179 ásamt þeim Stefáni Jónssyni og Lúðvík Jósepssyni, er flutt með það fyrir augum að freista þess að fá hv. Alþ. til að leiðrétta þann mismun sem á sér stað í sambandi við hitakostnað skólahúsnæðis. Alþ. hefur viðurkennt og gert nokkrar úrbætur í sambandi við mismun hitakostnaðar íbúðarhúsnæðis. Það er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að reynt verði einnig að lagfæra þann mismun sem á sér stað í sambandi við upphitun skólahúsnæðis. Þátttaka ríkissjóðs er ekki lengur fyrir hendi til að jafna hitunarkostnað skóla, og engar reglur eru þar að lútandi í sambandi við hvernig það ætti að vera ef einhverjir fjármunir eru settir til þessa. Þess vegna leggjum við til að menntmrn. verði falið að búa til reglur sem eðlilegar þættu til að úthluta þessu fé. Það þarf ekki að hafa að mínu viti miklu fleiri orð um þessi mál. Það vita allir hve þarna er gífurlegur mismunur á milli þeirra sveitarfélaga, sem hafa aðstöðu til þess að hita skóla sína með jarðvarma, og þeirra, sem verða að hita skóla sína með olíu, og það hlýtur að vera réttlætiskrafa að þessu verði kippt í lag.

Svo flyt ég till. ásamt með Benedikt Gröndal um það að Tónlistarfélagi Neshrepps verði veittur byggingarstyrkur að upphæð 400 þús. kr. Forsaga þessa máls er sú, að vorið 1974 tók fólk sig til á Hellissandi, Rifi og Gufuskálum eða á þeim stað, sem einu nafni er nefndur Neshreppur utan Ennis, undir Jökli, að stofna tónlistarfélag. Þeir drifu í því að útvega kennara sem var kominn með haustnóttum og hóf starf við barnaskólann og síðan frjálst starf og kenndi tónlist þar vestra. Kom fljótt í ljós að ýmsir annmarkar voru á því að koma þessum kennara fyrir, og veturinn 1974–1975 var það oft þannig að þessi kennari og nemendur hans urðu að vera allar götur þar til á miðnætti við lærdóm og kennslu. Tónlistarfélagið var þó ekki af baki dottið og hugði á áframhaldandi starf Tónlistarskólans, og var enn á ný ráðinn kennari haustið 1975, en yfir sumarið, meðan ekki var verið að hugsa beint um kennsluna, var ekki mjög mikið hugað að því að það þyrfti að bæta kennsluaðstöðuna og kennsluhúsnæðið. En þegar átti til að taka og setja skólann haustið 1975 lá það beint fyrir að nær óframkvæmanlegt var að koma starfi skólans öðruvísi við en á svipuðum tímum og áður, þ.e.a.s. að skólinn gengi fram undir miðnætti, nema einhvers staðar fengist sérstakt húsnæði fyrir þessa kennslu eða starfsemi.

Við vorum það heppin í Neshreppi utan Ennis að til forustu í Tónlistarfélaginu okkar höfðu valist konur, mjög duglegar, bjartsýnar, sem tóku sér fyrir hendur, þegar svo var komið að það virtist vera útilokað að hægt væri að reka skólann, að skipuleggja sitt lið og kunningjana í kringum sig og byggja yfir skólann. Þessar konur eða forusta Tónlistarfélagsins stóð fyrir því í októbermánuði 1975 að byggja heila kennslustofu við skólann okkar heima að fengnu leyfi hreppsnefndar til þess að tengja hitakerfi og rafmagnskerfi úr skólanum inn í þessa stofu. Það var gert á einum mánuði, og eftir þennan mánuð flytur skólinn þar inn og hefur starfað þar síðan. Og ekki nóg með það að skólinn og hin frjálsa starfsemi, sem á sér stað í sambandi við tónlistarkennsluna fyrir vestan, starfi þar, heldur er þessi stofa jafnframt kennslustofa undir tónlistarstarfsemi grunnskólans.

Tónlistarfélagið bjóst nú við að eftir slík vinnubrögð heima í héraði mundi lítið þurfa annað en að skrifa hv. fjvn. í fyrra og biðja um þátttöku ríkisins í þessum málum. Og þær tóku sig til og skrifuðu. En því miður, einhvern veginn datt þetta bréf upp fyrir. Bjartsýni þeirra datt nú ekkert upp fyrir fyrir það. Fyrst ekki komu peningar á fjárl., þá réðust þær á bankastjóra og einhvern veginn höfðu þær það af milli hátíðanna í fyrra að slá bankastjóra Landsbankans þannig við að hann bjargaði fjármálunum yfir á árið 1976, því sem þær höfðu vonast til að fá frá Alþ. Þær hlóðu á sig víxlum og hafa þannig bjargað þessum málum til þessa dags. Þegar leið að haustdögum í haust, — ég sé að þær hafa skrifað fjvn. Alþingis 16. nóv., — þá er enn með bjartsýni reynt að knýja á dyr Alþ. og fjvn. og beðið um styrk til þessarar framkvæmdar. Það mátti náttúrlega búast við því að það að byggja heila skólastofu hlyti að kosta þó nokkuð mikið og þarna hlyti að vera þó nokkur upphæð. Jú, viti menn, þær leggja hér fram kostnaðarreikning yfir bygginguna og segja að hún hafi kostað 2.3 millj. Eðlilegt hefði verið að þá hefði nú Tónlistarfélagið farið fram á að fá 1 millj. 150 þús. Nei, nei, þær eru það hógværar að þær segja: „En þar sem ýmsir aðilar styrktu framkvæmd þessa með peningagjöfum og sjálfboðaliðavinnu, sem metin hefur verið að upphæð 700 þús., telst beinn kostnaður vera 1.6 millj. Við leyfum okkur að fara fram á helming þeirrar upphæðar, 800 þús. kr.“ Ég set helming þeirrar upphæðar til að vita hvort ekki er hægt að koma því í gegn, og eftir að fjvn. er búin að setja þetta í ruslakörfu og ágætir þm. okkar hafa gleymt að koma þessu áfram, þá vænti ég nú þess að menn skilji þá baráttu, sem þessar ágætu konur hafa staðið í, og þær fái helminginn af því sem þær hafa beðið um. Ég veit ekki hvort á að nefna það, en eðlilegast og skemmtilegast væri ef þær fréttu það að sú hefði lausn Alþ. orðið á þessu máli, — það er verst að formaður fjvn. er farinn, — að fjvn. hækkaði þessa brtt. mína upp í 800 þús. og sýndi þessum ágætu konum þarna vestur á Snæfellsnesi, að Alþ. eða fjárveitingavaldið tæki rösklega undir þegar eins er að unnið og þær hafa gert í sambandi við þetta mál þarna hjá okkur heima í Neshreppi utan Ennis.